Réttur - 01.10.1972, Blaðsíða 59
Willy Brandt,
rikiskanslarl Sambandslýðveldisins.
Willi Stoph,
forsætisráðherra Þýzka alþýðulýðveldisins.
sé að byrja. Á þriðja áratug aldarinnar voru
þýzkir kommúnistar mjög framarlega í allri
áróðurstækni og skoðanamyndun. Frjáls boð-
un sósíalismans í blöðum og tímaritum, í
hverskonar listum, naut sín þá vel.
Hinsvegar að reyna að ná góðu samstarfi
við Sósíaldemókrataflokk Vestur-Þýzkalands
— og það mun enginn hægðarleikur. Sá
flokkur er nú, þrátt fyrir góðan formann,
einhver borgaralegasti krataflokkur Evrópu
— þótt hann svo hafi losnað við ýmsa aftur-
haldsskarfa undanfarið. Þó er æskulýðurinn
í honum („Juso") mjög sósíalistiskur og vax-
andi róttækni líkleg með tímanum, sökum
ólgunnar, sem nú er í æskulýð auðvaldsland-
anna. En vaxandi samstarf kommúnista og
sósíaldemókrata er nú hin mesta nauðsyn í
allri Evrópu. Vonandi er að — auk brýnna
þarfa samtímans — verði sameiginlegur
þýzkur arfur frá Marx og Engels og minning-
in um sameiginlega þjáningu undir blóðöxi
þýzka fasismans til að hjálpa þessum forustu-
flokkum þýzku ríkjanna til að finna leið til
samstarfs — þrátt fyrir allt.
BANDARlKIN
Nixon er endurkosin forseti Bandaríkjanna
— af auðnum og í krafti sjónhverfinga fjöl-
251
LL