Réttur - 01.08.1981, Side 19
Roque Dalton:
Um höfuðverki
Það er fallegt að vera kommúnisti
þóttþað va/di okkur oft höfuðverkjum.
Vandinn er, að höfuðverkir kommúnista
ku vera sögulegir, það er að segja
þeir lceknast ekki með aspiríni
heldur aðeins með Paradís ájörðu.
Þannig er það.
Þegar við fáum höfuðverk í kapítalismanum
erum við hálshöggvin.
íbyltingarbaráttunni er höfuðið tímasprengja.
Við uppbyggingu sósíalismans
gerum við áætlanir um höfuðverki
sem draga þó ekki úr þeim, öðru nær.
Kommúnisminn er, meðal annars,
aspiríntafla á stærð við sólina.
(Roque Dalton fæddist í E1 Salvador árið
1935. Hann lagði stund á lögfræði, þjóðfé-
lagsfræði og mannfræði, og gerðist snemma
virkur í samtökum vinstri sinna í E1 Salva-
dor. Hvað eftir annað var hann fangelsaður,
og 1960 var hann dæmdur til dauða, en
dómnum var ekki fullnægt vegna þess að
einræðisherra var steypt af stóli 4 dögum
áður en aftakan átti að fara fram. Einu sinni
slapp hann úr fangelsi vegna þess að það
hrundi í jarðskjálfta. Roque Dalton dvaldist
árum saman í útlegð í ýmsum löndum, en
lengst á Kúbu. Þaðan fór hann til E1 Salva-
dor árið 1974 sem liðsmaður skæruliðahreyf-
ingarinnar ERP. 10. maí 1975 var hann drep-
inn. Þar voru að verki öfgasinnaðir félagar,
sem höfðu klofið sig út úr ERP. Roque
Dalton gaf út fjölmargar ljóðabækur, auk
ritgerðasafna um bókmenntir og stjórnmál.
Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi.
131