Réttur - 01.08.1981, Blaðsíða 46
Manana Lubisi
,,Því buddunnar lífæð í brjóstinu slær.”
Og svo segjast þessir herrar vera í Nato til
að vernda lýðræðið!
„Réttur” hefur hvað eftir annað vakið
máls á þeirri svívirðilegu kúgun, sem hinir
„hákristnu” kapítalistar Suður-Afríku beita
yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar, en lít-
inn hljómgrunn fengið hér heima. Ætti ís-
lensk verkalýðshreyfing að láta meira til sín
taka í þessari baráttu við fasismann.
Hundruð bestu forustumanna lýðræðis-
og þjóðfrelsisbaráttunnar sitja í fangelsinu á
Robben Island, flestir dæmdir til lífstíðar
fangavistar. Einhver göfugasti forvígismað-
Mashigo Mahlangu
ur mannréttindabaráttunnar, lést þar eftir
langa fangavist: Búinn Bram Fischer, sem
lesa má um í Rétti 1975, og Nelson Mandela,
foringi þjóðfrelsisbaráttunnar, hefur þegar
setið þar í 20 ár, dæmdur til lífstiðarfang-
elsis.
158