Réttur - 01.08.1981, Blaðsíða 36
það hafi verið ákvæði um það í hinni fyrstu íslensku lög-
gjöf, að það ætti að sjá öllum farborða, sem ekki gætu
séð fyrir sér sjálfir, hvort sem það stafaði af fátækt,
sjúkdómum eða elli, hverjar sem ástæður voru. Og nú
er þetta gert í öllum tilfellum. Það er alls ekki svo að
skilja að fólk sé í örþrifavandræðum hér á iandi, því
það á alltaf heimtingu á brýnustu þörfum og þá er þeim
fullnægt. Þess vegna er ekki sérstaklega knýjandi nauð-
syn á þessari löggjöf. Heldur þvert á móti. Það er full-
komin ástæða til að athuga, hvort ekki sé rétt að fresta
henni um stundarsakir.”
Jóhann Jósepsson: „Sósíalistar kippa sér ekki upp við
neitt í þessu efni og hjá þeim virðist ekki annað ráða en
metnaður og kappgirni. Þeir vilja keyra málið í gegn
hvort sem öðrum líkar betur eða ver. Það er vitað, að
framsóknarmenn eru frumvarpinu alls ekki fylgjandi í
hjarta sínu, en þeir eru kúgaðir til fylgis við það vegna
samningamakks á bak við tjöldin, aðeins af hræðslu um
það að sósíalistar muni annars hlaupa frá þeim úr rikis-
stjórninni.”
„Sá kaflinn af þessu lagafrumvarpi sem mér finnst
mjög óaðgengilegur er kaflinn um atvinnuleysistrygg-
ingar. Ég hef áður látið í ljós að ég er hlynntur því að
koma á föstu skipulagi á styrkinn til ellihrumra manna,
svo að þeir þurfi ekki að kvíða sulti í ellinni.”
,,En ég verð að segja, að mér finnst þjóðin komin
langt á villigötur, ef á að fara að lækna atvinnuleysis-
ástandið með atvinnuleysisstyrkjum.”
„Með því að innleiða það hér á landi, óttast ég að dregið
verði stórkostlega úr hvöt manna til að leitast við að
bjarga sér sjálfir. Ég veit að vísu að þessi bjargráð sem
nefnd eru sjálfsbjargarviðleitni, þau eiga ekki upp á
pallborðið hjá sósíalistum hér á landi.”
„Það er hægast að hártoga og reyna að gera óvinsælt
allt sem sagt er gegn þessu tryggingafrumvarpi, því
alþýðutryggingar eru, eins og ég hef áður sagt, fagrar á
að líta, skoðaðar úr nógu mikilli fjarlægð, áður en
menn eiga að fara að borga niður skattana sem þeim
fylgja. En hjá því verður ekki komist að benda á þá
hættu sem ég hef nefnt. Landslýðurinn þarfnast ekki
fyrst og fremst þessara trygginga. Það er ekki fyrst og
fremst þessar tryggingar, sem fólkið óskar eftir, að
minnsta kosti sá hluti þess sem þarfnast atvinnu. Til
þess að fólk megi hafa atvinnu er það ekki heillaráð að
taka peninga af einstaklingum, bæjarfélögum og ríkis-
sjóði til að viðhalda atvinnuleysi í Iandinu. En til sliks er
beinlínis stofnað með því að innleiða atvinnuleysistrygg-
ingar.” ,,... Þegar menn fara að gæta alls þessa þá
kæmi mér ekki á óvart þótt hugur manna breyttist,
þeirra sem séð hafa þessi tryggingamál sósíalista í hill-
ingum þegar þjóðin fer að taka úr umbúðunum alla
þessa böggla, sem fylgja skammrifi því, sem sósíalistar
hér rétta þjóðinni, alþýðutryggingum, þá þætti mér ekki
undarlegt þótt mörgum fátæklingum þætti allþröngt
fyrir dyrum, að margur verkamaðurinn segði að betra
hefði verið að taka þessi tryggingamál í fleiri skrefum
heldur en leggja öll þessi gjöld á í einu.”
Pétur Halldórsson, borgarstjóri og þingmaður Reyk-
víkinga:
„Mér finnst að í þessu frumvarpi, sem Iiggur fyrir og
kallað er um alþýðutryggingar, sé fólgin alvarlegasta
blekking, sem reynt hefur verið að hampa til þess að
trufla landslýðinn með. Mín skoðun er sú, að til þess að
landsfólkið verði ánægt með stjórn þessara manna, þá
dugi ekki lengur þeir skattar sem fyrir voru og ekki þeir
viðbótarskattar sem nú hafa verið lagðir á landsmenn.
Með þessu frumvarpi er enn bætt við nefsköttum á al-
menning, sem sósíalistar hafa áður sagt að væru gjör-
samlega ófærir.” ... „En með þeim kafla frumvarpsins
er bara verið að stofna félagssjóði fyrir sósíalista i kaup-
stöðunum.” (Hér er átt við atvinnuleysistryggingar.)
„Þetta er eins og allt annað sem ákveðið hefur verið í
samningum milli framsóknarmanna og sósíalista fyrr og
síðar, þar sem sósíalistum voru fengin öll vopn í hendur
til að ráða því gjörsamlega, hvort bændur eru sveltir eða
hvort þeir fá eitthvað lítilsháttar að borða fyrir náð Al-
þýðuflokksins.”
„Við sem búum í kaupstöðum erum lagðir í fjárhags-
greipar hinna harðhentu sósialista sem hafa fengið að
telja sig í meirihlútaaðstöðu um stundarsakir í lands-
stjórninni. Með þessum ákvörðunum hinna tólf stutt-
orðu lagagreina þykjast sósíalistar ætla að lækna at-
vinnuleysi í landinu. Mér liggur við að segja að það sé
glæpsamlegt athæfi að kalla þetta tryggingar. Þetta
fyrirkomulag verður sennilega tekið upp allsstaðar þar
sem sósíalistar hafa fimmtíu manna flokk og þar yfir í
kaupstöðum og kauptúnum, þar verða þessir flokks-
sjóðir myndaðir. Svo flytur fólk úr sveitum í þetta sælu-
ríki sósíalista í bæjunum, þar sem það fær opinbera
framfærslu án þess að vinna nokkuð í staðinn. Þetta er
svo gjörsamlega; ábyrgðarlaust og illa hugsað, eins og
flest annað sem gert er á þessu þingi.”
Garðar Þorsteinsson, Iandskjörinn: „Það er vitað að
það eru kommúnistar sem hafa knúið fram þessa af-
stöðu sósialista innan þingsins. Það eru þeir sem hafa
borið dýru loforðin upp á sósíalista og heimta efndir,
heimta atvinnu, hækkað kaup og lægra vöruverð. Úr
því að sósíalistar geta ekki lengur sannfært menn um að