Réttur


Réttur - 01.08.1981, Page 47

Réttur - 01.08.1981, Page 47
Y firlýsing Sósíalistaflokksins á Alþingi 2. október 1951: ,,Frá því Alþingi var slitið síðasta vor hafa gerzt þau tíðindi í iandi voru, að stjórnarskrá lýðveldisins hefur verið brotin af ríkisstjórninni og landið ofurselt erlendum her, sem að undirlagi ríkis- stjórnarinnar hefur hernumið landið. Alþingi hafa með þessu stjórnlagarofi verið settir tveir kostir. Annar er sá, að sœtta sig við framið of- beldi. En engin aðgerð Alþingis eftir á getur löghelgað þann verknað, sem vald- hafarnir auðsjáanlega óttuðust að aldrei fengist drýgður, efþing og þjóð yrðu látin ráða því áður að lögum. Alþingi getur tekið þann kost og þar með kropið vald- inu, svo sem það gerði á niðurlœgingar- tíma þjóðar vorrar hinum fyrra. En aldrei getur það afsalað þjóðinni þeim rétti, sem hún var rœnd með stjórnlagarofinu og hernáminu 5.—7. maí, réttinum til að ráða landinu og byggja það ein ogfrjáls. Hinn kosturinn er sá, að ómerkja að- gerðir ríkisstjórnarinnar og ógilda þar með þann hernámssamning, sem hún gerði við eitt sterkasta herveldi heims, eftir að hafa árum saman þegið fjárgjafir af ríkiþví og gert íslenska ríkið þeim fjár- gjöfum háð að hennar áliti. Þessi er sú leið, sem þjóð og þing fyrr eða síðar munu velja. Baráttan á Alþingi mun því héðan af fyrst og fremst mótast af því markmiði, svo sem var á undanförnum öldum, að endurheimta til þings og þjóðar fullt vald yfir landinu og algert fjárforrœði í hendur þjóðarinnar. Barátta íslendinga mun því beinast fyrst og fremst gegn því herveldi, sem lagt hefur undir sig landið, og þeirri landstjórn, sem það heldur uppi með fé sínu og segir fyrir verkum. Ég vil lýsa yfir því fyrir hönd Samein- ingarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins í byrjun þessa þings, að þeirri baráttu verður haldið áfram, unz sigur er unninn og hið erlenda herveldi verður að sleppa tökum á þjóð vorri og innrásarher þess að hrökklast burt af landi voru fyrir einhuga kröfum vopnlausrar en sameinaðrar þjóðar vorrar. Þessa yfirlýsingu vildi ég flytja hinu fyrsta Alþingi lýðveldisins, sem nú hefur störf sín í hernumdu landi á friðartím- um. ” 159

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.