Réttur - 01.08.1981, Síða 53
tvöþúsundasti) af hlutafélögum Bandaríkj-
anna, en þau gleypa 54,1% alls gróða hluta-
félaganna, að frádregnum sköttum.
Þessir auðjötnar eru kjarni hernaðarklík-
unnar og framleiða vígvélar þær, sem nú
ógna lífi mannkyns. Nefna má Boeing,
Northrop, McDonald-Douglas, United
Technologies og General Electric. Hlutur
100 stærstu auðfélaganna í framleiðslu fyrir
hermálaráðuneytið (Pentagon) steig frá 1970
til 1979 úr 69,7% í 72,1%. „Stóriðju- og
hernaðarklíkan”, þessir einræðisherrar
Bandaríkjanna, sem nú ráða Pentagon, ráð-
stafa því 173 miljörðum dollara af skattfé
bandarískra borgara, hafa 2 miljónir her-
manna og eina miljón almennra borgara
beint í þjónustu sinni, en 11% alls vinnandi
fólks í Bandaríkjunum lýtur boði þeirra og
banni sem atvinnurekenda. — Herforingjar
Bandaríkjanna verða, að lokinni herþjón-
ustu, hálaunaðir eftirlaunamenn auðhring-
anna fyrir dyggilega aðstoð.
Drápsiðja Bandaríkjahers hefur eftir
1945, — atómsprengjurnar á Hiroshima og
Nagasaki, — þegar valdið dauða yfir þriggja
miljóna manna, þar af tveggja miljóna í
Víetnam. í Mið- og Suður-Ameríku hafa á
síðustu árum verið drepnir yfir 110 þúsundir
með ameriskum vopnum af harðstjórum
þeim, sem auðvald Bandaríkjanna heldur
uppi í Chile, Uruguay, Guatemala, Para-
guay, E1 Salvador og forðum í Nicaragua.
Og nú stefnir Reagan og þeir „stórkaup-
menn dauðans”, er stjórna hernum, rakleitt
að múgmorðunum mestu: „litla kjarnorku-
stríðinu” í Evrópu, sem tafarlaust leiddi til
heimsstríðs og dauða 400—500 miljóna
manna vestan hafs og austan á fyrstu dögum
þess og gereyðingar menningar og mann-
kyns, ef áfram yrði haldið — og alþýða
Evrópu og Ameríku tæki ekki i tíma fram
fyrir hendurnar á þessum mannkynsböðlum.
Það er hart að sú mikla þjóð, sem gefið
hefur mannkyninu ýmsa af bestu mikilmenn-
um þess eins og Thomas Jefferson, Abraham
Lincoln og Franklin D. Roosevelt, skuli á ör-
lagastundu mannkynsins, þegar um tilveru
þess er að tefla, leggja allt vald um áfram-
hald mannlífs á þessari jörð í hendur eins
heimsks trúðs fyrirlitlegustu auðkónga og
herdrottna heims.
Okrið á þróunarlöndunum
Svo sem kunnugt er af mannkynssögunni
þá réð breska heimsveldið yfir fjórðungi
jarðarbúa nú í upphafi þessarar aldar og arð-
rændi íbúana vægðarlaust. Þannig styttist
t.d. meðalaldur Indverja um 10 ár þær aldir,
sem breska auðvaldið drottnaði þar.
Nú hefur bandaríska auðvaldið skapað sér
heimsveldi, sem gefur af sér margfalt meiri
gróða en breska heimsveldið nokkru sinni
gat sogið úr nýlendum sínum. En bandaríska
auðvaldið hefur annað hátt á: Það lætur
fæstar hinna arðrændu þjóða vera nýlendur
að fornum sið, heldur gerir þær að skulda-
þrælum sínum með veitingu hverskonar
lána, sem þessi „sjálfstæðu” lönd síðan end-
urgreiða með okurvöxtum, verða þar að auki
oft að hlýða hverskonar fyrirskipunum
hinna amerísku banka um innanlands- og
utanríkispólitík sína og veita hverskonar arð-
ránsaðstöðu í löndum sínum.
Afleiðing þessa arðráns er vaxandi fátækt
í „þróunarlöndunum”, sultur og hungur-
dauði.
Auðvald Bandaríkjanna hafði i gróða af
þessu „efnahagslega” heimsveldi sínu 5 milj-
arða dollara 1960, það voru orðnir 14 milj-
arðar dollara 1970 og nú 1980 var gróðinn
orðinn 80 miljarðar dollara. — Og allur þessi
165