Réttur - 01.08.1981, Blaðsíða 56
I Ekuador 13,9
í E1 Salvador 9,5
í Dominikanska
lýðveldinu 4,8
í Kúbu 1,0
Af hverjum 1000 nýfæddum börnum
deyja á fyrsta aldursári:
í Paraguay 94,3
í Guatemala 80,7
í Chile 63,3
í Venezuela 43,7
í Kúbu 19,3
Eiturhernaður U.S.A. í Vietnam —
og víðar.
Enn þjást þúsundir Vietnama af sýkingu
frá eiturefnum, sem Bandarikin létu rigna
yfir þessa fátæku þjóð í 7 ára árásarstríði —
og landið ber sárin enn um áratugi.
Tvær miljónir Vietnama urðu fórnarlömb
þessa svívirðilega árásarhers bandarísku
auðkýfinganna.
44°/o allra skóga í Suður-Vietnam voru
meira eða minna eyðilagðir með slíkum
vopnum.
Og nú Iætur Bandaríkjastjórn leppstjórn
þá, sem hún er að reyna að halda við völdum
i E1 Salvador fá eitursprengjur til þess að
varpa úr lofti yfir þjóðfrelsissinna og
óbreytta borgara. Það skal ekkert til sparað
að halda níðingsstjórninni við völd. — Það
tókst samt ekki fyrir Bandaríkjunum i Viet-
nam — og svo mun og fara i E1 Salvador. —
Þeir háu herrar í Washington eru auðsjáan-
lega búnir að gleyma því að eitt sinn var upp-
reisnarher, sem barðist við ofurefli undir
forystu George Washingtons og sigraði
samt.
Upp komast svik um síðir
Bandaríski blaðamaðurinn Carl Bernstein
gat sér mikla frægð er hann ásamt Bob
Woodward ritaði bókina ,,A11 the President’s
men” (Allir menn forsetans) og afhjúpaði alt
Watergate-hneykslið og spillinguna þar í
kring.
Nú hefur Carl Bernstein afhjúpað i grein-
um í tímaritinu ,,New Republic” alt um hlut-
verk CIA og Bandaríkjastjórnar um ákvörð-
un um uppreisn í Afghanistan og vopnun
uppreisnarmanna. Carter forseti fyrirskipaði
aðgerðina, en Brezinski, öryggismálaráðu-
nautur hans, og Stansfield Turner, CIA-for-
stjóri sáu um framkvæmd vopnasending-
anna, sem var svo leynileg að Nato-banda-
menn Kanans fengu ekkert um hana að vita.
9. janúar 1980 skýrði CIA leyndarmála-
nefnd öldungaráðsins frá ráðagerðum um
uppreisnina. Til þess að rugla alla sem mest
var ákveðið að afla sem mest af sovéskum
vopnum, bæði í Egyptalandi og annarsstað-
ar og jafnvel framleiða nákvæma eftirlík-
ingu slíkra vopna. Bandaríkin og Saudi-Ara-
bía létu peningana í té, sem til vopnakaup-
anna þurfti, Bandaríkin 20—30 miljónir
dollara, Saudi-Arabía hið sama. Aðallega
fóru vopnasendingarnar um Pakistan en ein-
ræðisherrann þar, Zia-ul-Haq, (sá er lét myrða
Ali Butto) — óttaðist afhjúpanir, ef vopna-
sendingar lægju þar um tima og vildi láta
koma þeim tafarlaust yfir landamærin. En
þegar Bandarikjastjórn hét honum 3 mil-
jarða dollara láni, varð hann nokkru eftirlát-
ari.
Þegar Reagan varð forseti og sá nokkurn
árangur þessara aðgerða fyrirrennara sinna,
ákvað hann að efla þessar aðgerðir, er þegar
höfðu kostað yfir 100 miljónir dollara.
Bandaríska hervaldið hefur auðsjáanlega
allsstaðar allar klær úti — og horfir ekki í
168