Réttur - 01.01.1982, Page 2
Samtímis vofir önnur ógæfa yfir:
Ef afturhaldið vinnur i komandi kosningum, en Alþýðubandalaginu
tekst ekki að sigra, þá tekur sú „leiftursókn” íhaldsins við, sem afturhaldið
reynir nú að láta gleymast i lýðskrumi sinu: Dollarinn mun drottna og
hækka, — krónan falla, — vísitala verður afnumin — og aðalatriðið: At-
vinnuleysisbölið mun hveifast yfir ísland — eins og auðvaldslönd Evrópu
og Norður-Ameríku, þar sem það nú er 10%, upp undir 10. hver verkfær
maður atvinnulaus. Harðsvíruðustu atvinnurekendurnir, sem ekki eru færir
um að stjórna atvinnurekstri, álita atvinnuieysi skilyrði til að geta kúgað
verkalýðinn — og svipt hann smásaman eignum þeim og lýðréttindum, sem
hann hefur öðlast með 40 ára harðri stéttabaráttu og miklum þrældómi.
(Samanber: „Járnfrúna” og „Kúrekann”, er þau fengu völd.)
Afturhaldið „íslenska” mun svo sem auðmjúkur Nato-þræll láta
Kananum í té allt, sem hann óskar á Fróni: Breyta Helguvík í Hel-vík, —
koma upp risa-bensíngeymum svo flugvélarnar með atómsprengjurnar geti
notað Keflavíkurflugvöll sem brúarstólpa í loftbrúnni frá Kanada til Þránd-
heims.
Meó heljarbrú þeirri ætlar Kaninn í ofstæki sínu að umhverfa Evrópu í
geislavirkt helvíti, — og heldur í heimsku sinni að hann muni sjálfur sleppa,
ef hann aöeins sigar „djöfli” atómstríðsins á Evrópu, — svo notuð sé líking
Einsteins.
islendingar! Varist þá menn og flokka sem nú brugga alþýðu atvinnuleysi
og fátækt, en þjóð vorri banaráð til að þóknast Reagan!
*
Síðan 1942 — í 40 ár — hafa ekki verið háðar svo örlagaríkar kosningar
sem nú. Þá tókst íslenskri alþýðu að gera Sósíalistaflokkinn að því veldi, er
megnaði að umskapa ísland: í stað armæðu fátæktarinnar reis upp bjarg-
álna þjóð. Og í samstarfi við þá foringja Sjálfstæðisflokksins, sem einnig
höfðu reisn sem íslendingar og menn, tókst að vísa frá kröfu amerísks her-
valds um yfirdrottnun hér í heila öld: þrem voldugum amerískum herstöðv-
um á íslandi.
Nú er það lágkúran, sem meir og meir tekur við af reisninni I herbúðum
þeim.
Nú er það þjóð vor sjálf, sem verður að þekkja sinn vitjunartíma og bjarga
sér; frá áþján atvinnuleysis auðvaldslandanna — og úr helgreipum þess
bandaríska hervalds, er býður þjóðardauða heim.