Réttur - 01.08.1976, Qupperneq 15
III.
VIÐTÖKURNAR
í „Verkamanninum" á Akureyri segir svo
frá þann 11. september 1926 að ég hafi kom-
ið heim með Novu 9- sept. (þá voru ferðalög
fréttir!) og segi fréttir á fundi í Verkamanna-
félaginu 12. september. Og í fundargerð
Jafnaðarmannafélagsins 13. september segir:
„Loks talaði form. um að hann og nokkrir
með honum væru að ráðast í að eignast
tímaritið „Réttur".
Það hefur verið ráðist af miklum krafti í
skrif og setningu eftir heimkomuna, því 26.
október er skýrt frá því í „Verkamanninum"
að ritið sé komið út, 10 arkir — 160 blað-
síður. Hefur það verið fljót afgreiðsla, allt
handsett þá í prentsmiðjum Björns Jónssonar
og Odds Björnssonar á Akureyri.
Þessari tímaritsútgáfu af hálfu okkar sósí-
alista var tekið mjög vel í blöðum verklýðs-
hreyfingarinnar:
„Alþýðublaðið” birti 28. september langa
fréttagrein um væntanleg eigenda- og rit-
stjóraskipti á „Rétti", tilkynnti hverjir ágæt-
ismenn hefðu lofað efni í tímaritið og hvatti
Alþýðuflokksmenn og alla frjálslynda menn
til að kaupa Rétt, tekið væri á móti áskrif-
endur á afgreiðslu Alþýðublaðsins, bókabúð
á Laugavegi 46 og hjá Arsæli Arnasyni,
Laugavegi 4. — Hallbjörn Halldórsson, sá
ágæti og róttæki sósíalisti, var þá ritstjóri
Alþýðublaðsins. — Þann 5. nóv. kom svo
frétt um útkomu heftisins og innihald þess.
„Skutull”, blað Alþýðuflokksins á ísafirði,
sem síra Guðmundur frá Gufudal ritstýrði þá
af mikilli snilli, birti 25. september langa
grein eftir Finn Jónsson um væntanlega
breytingu á Rétti, bar mikið lof á ritið og
aðstandendur þess. 30. okt. kom svo auglýs-
ing um útkomuna.
sE JETTFRö
U TlMARIT U
,••• ••••
UM ••;•
fj ÞJÓÐFJELAGS OG j j
;:I eSí MENNT N(4A R ArÁN* X
’•••.......................................................•••*
ii RITSTJÓRI: !!
i"i EINAR OLGEIRSSON i"i
.........................................................
: : XI. ARG. 3. OG 2. IIEIfTI l l
:ii; EFNISYFIRLIT: B11X
• • Davlð Sfcfánsson: Hrærekur konungur í Kálfskinni 3 j ;
•••• Einar Olgeirsson: Erlendir menningarstraumar. 10 ••••
•*•• M. Anderscn Nexö: Auðu sætin................. 25 •**•
Haraldur Guðmundsson: Togaraútgeröin........... 39 .55.
; : Upton Sinclair: Brjef til Judds............ 56 ; :
: : Einar Olgcirsson: lslensk lýðrjettindi....... 61 : :
Víðsjá (Camoens, Hetjur, Erlend skáld og erl. bókmentir) 69
•••? Siefán Jóh Sfefánsson: Um þjóðnýtingu......... 81 ••;•
•**• Ólafur Stefánsson: Úthýsing (kvæði)...........101 ; ;
; ; Brynjólfur Bjarnason: Kommúnisminn og bændurnir 102 ; ;
•••• Gunnar Bcnediktsson: Yfir eyðimörkina (ræða) .... 112 ••••
;**; Frá Rússlandi: 1) Framleiðsla og viðskitti S. S. S. R. 117 ; ;
Jí^ 2) Samvinnuhreyfingin í Rússlandi. #25#
; ; íslcnsk menningarmál: Rekstur kvikmyndaleikhúsa ; . 133 ; ;
Rfkisrekstur á sveitabúum. ; ;
,11, Neistar (Tolstoi, Lincoln, Wagner o. fl.) .**.
•••• Baráttan um heimsyfirráðin (Furstaeigmrnar, kolaverk- ••••
;**; fallið, Suður-Ameríka) .... ..... 143 ; ;
; ; Ritsjá (Munkamir á Möðruvöllum, Við þjóðveginn, Himin- ; ;
*;;* geimurinn) .............................. 152 ••••
:**: aðal’ömboðsmaður:
:##: Jón G. Guðmann, kaupmaður, P.O. Box 34, Ak. :##:
••••.................................... ..................;•*;
•*•• PRENTSMIÐJA ODDS BJÖRNSSONAR OG BJÖRNS JÓNSSONAR •**•
• * AKUREYRI MCMXXVI
•••• *•••
.% ,••„••••••,•••••••••• “*•••••••••••••••••'••••••••••••••••••••••••••••
„Eyjablaðið", hið nýstofnaða blað félag-
anna í Vestmannaeyjum tekur þó dýpst i
árinni af öllum verklýðsblöðunum um hið
nýja rit. Það birtir þriggja dálka grein um
Réttarheftið nýja á forsíðu og ber mikið lof
á.
Þannig mætti „Réttur" miklum skilningi
og vinsældum, er hann kom nú út sem fyrsta
og eina tímarit marxista á Islandi.
En sú eining, sem um hann var þá innan
Alþýðuflokksins stóð ekki lengi. I desember
þetta sama ár knúðu hægri menn (kratarnir)
151