Réttur - 01.08.1976, Side 58
ERLEND i
VIÐSJÁ
VESTUR-ÞÝSKALAND
Þingkosningarnar í Vestur-Þýskalandi 3-
okt. fóru svo að sósíaldemókratar fengu
42.6% greiddra atkvæða (45.8% 1972),
frjálsir demókratar 7,9% (8,4% 1972) og
kristilegir demókratar og CSU 48.6%. Héldu
því sósíaldemókratar og frjálsir demókratar
meirihluta með 10 þingsætum, sem er
mjög ótryggt, eins og reynslan hefur áður
sýnt.
Þróunin í Vestur-Þýskalandi er ískyggileg
og á sér djúpar ræmr. Bandamenn höfðu í
stríðslok gert um það samkomulag að þjóð-
nýta þýsku auðhringina miklu, er komið
höfðu Hitler til valda og báru ábyrgð á ógn-
um nasismans. Enska verkamannastjórnin
ætlaði að framkvæma þessa þjóðnýtingu, en
auðvald Bandaríkjanna neyddi hana til að
falla frá þeirri stefnu, eftir að Roosevelt var
látinn og kalda stríðið hafið. Síðan var Vest-
ur-Þýskaland tekið inn í Nato á móti vilja
þýsku verkalýðsamtakanna. Og nú er svo
komið að Vestur-Þýskaland er orðið sterkasta
auðvaldsríki Evrópu, fjárhagslega og hern-
aðarlega. Engar raunverulegar ráðstafanir
hafa verið gerðar til þess að uppræta þann
nasistaanda, sem heil kynslóð var alin upp
í. Sú kynslóð, sem nú lætur meir og meir til
sín taka í Vestur-Þýskalandi, hefur ekki
neina raunverulega hugmynd um glæpi nas-
ismans, en er farin að sjá Hitler-tímann í
ljósi valdadýrkunar. Sterkustu blöð landsins,
„Springerpressan" er erkiafturhaldssöm og að
sama skapi áhrifamikil.
Ofsóknir gegn kommúnistum og öðrum
róttækum mönnum eru þegar hafnar. Þeim
er með harðstjórnarlögum bannað að vera í
opinberum störfum („Berufsverbot"). Sér-
staklega eru kennarar ofsóttir á þennan hátt,
en jafnvel lestarstjórar við ríkisjárnbrautirnar
eru reknir, ef þeir eru í Kommúnistaflokkn-
um (DKP). Er hér byrjað á sama hátt og í
gamla Weimar-lýðveldinu, er verið var að
ryðja nasismanum braut. Eiga hægri sósíal-
demókratar sína sök á þessu, en þeir eru
einhverjir afturhaldssömustu kratar í Evrópu.
Astand og horfur í Vesmr-Þýskalandi eru
því uggvænlegar fyrir lýðræðið. Sterkasti
maður kristilegra demókrata er raunverulega
Strauss, foringi CSU í Bayern, sem gæti orð-
ið leiðtogi fasisma í nýrri mynd, þar í landi,
og Strauss fékk 60% allra atkvæða í Bayern.
Hættan er því augljós, þegar kristilega demó-
krata vantar aðeins tæp 2% í algeran meiri-
hluta. Og auðvitað er Vestur-Þýskaland nán-
isti bandamaður jafnt amerísku auðhring-
anna sem Bandaríkjastjórnar.
Það er því vissulega þörf á að verkalýðs-
og lýðræðisöfl Frakklands, Italíu, Bretlands,
Norðurlanda og annarra Evrópulanda myndi
sterkan varnarvegg gegn harðstjórnarhætt-
unni frá Vestur-Þýskalandi, því enginn veit
nær sá veiki, sundurgrafni varnarveggur, sem
vestur-þýska stjórnarsamsteypan er, kann að
bresta.
194