Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 40

Fréttablaðið - 28.03.2009, Page 40
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr. Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.500 kr. London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. München . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. New York . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 30.130 kr. Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Seattle . . . . . . . . . . . . . . . . frá 36.900 kr. Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr. *Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum. Besta verðið okkar* + Bókaðu á www.icelandair.is Allt verð miðast við lægsta verð í verðskrá og getur á einhverjum tímapunkti verið uppseld. Í fjöllunum í grennd við Seattle eru mörg af bestu skíðasvæðum í Washington. Snoqualmie (www.summitatsnoqualmie.com/winter) er vinsæll skíðastaður aðeins 45 mín. akstur austur frá borginni. Í Snoqualmie eru fjögur megin- svæði og góður snjór á veturna. Crystal Mountain (www.skycrystal.com) er eilítið lengra frá borginni en Snoqualmie. Þetta er stærsta skíðasvæðið í Washington og kjörinn staður fyrir skíða- og snjóbrettafólk; flestar brekkur eru auðkenndar með bláu (meðalerfiðar), en þarna finna allir brekkur við sitt hæfi og gönguskíðamenn hafa úr mörgum slóðum að velja. Gæðabjór á gráum degi Seattle snýr móti vestan- og suðvestanvindum frá Kyrrahafi svo að á öllum árstímum má gera ráð fyrir að það gerist oftar en ekki að „detti úr lofti dropar stórir“. Síattelítar hafa lært að bregðast við því eins og við Íslendingar og kunna að láta sér líða vel innandyra. Þar er það t.d. ríkari þáttur í daglegu lífi en víða annars staðar í Bandaríkjunum – og raunar mætti kalla það hefð á meðal heimamanna – að fá sér pintu af öli. Byrjað var að brugga á þessum slóðum þekktar tegundir af bandarískum bjór eins og Redhook, Maritime Pacific og Pyramid Ales. Á Seattlesvæðinu eru einnig allmörg lítil bjórgerðarhús og sönnum áhugamönnum um bjór og öl bjóðast mörg tækifæri til að gæða sér á „heimabrugguðum“, nýjum og ferskum bjór á notalegum kránum í Seattle. Náttúruparadís skíðamanna Vancouver, Vancouver Island, Victoria Seattle, nágrannabyggðir hennar og Washington-ríki hafa meira en nóg í boði fyrir ferðamenn. Samt er sjálfsagt að benda á að fyrir þá, sem hafa áhuga á að heimsækja þriðju stærstu borg Kanada og að margra dómi hina fegurstu þeirra, Vancouver, er hægt um hönd að bregða sér þangað frá Seattle. Hægt er aka en verður þá að hafa í huga að oft getur verið býsna mikil bið við kanadísku landamærin. Einnig er hægt að taka lest (Amtrak Cascades) til Vancouver en langskemmtilegast og þægilegast er að taka hraðferju (BC-Ferries - British Columbia Ferry Services) frá Bryggju 69 (Pier 69) í Seattle, skeiða með henni um Pugetsund, njóta stórkostlegs útsýnis af sjónum og koma svo í höfn í Victoria, höfuðborg Bresku Kólumbíu, syðst á Vancouver Island, eftir 2 til 3 klst. siglingu. Frá Victoria er svo hægt að taka aðra Önnur skíðasvæði upp frá Pugetsundi og ekki svo ýkja langt frá Seattle eru Stevens Pass, stórt svæði með brekkum sem henta allt frá byrjendum til snillinga, og Hurricane Rodge, minna svæði en ekki síður töfrandi staður í Olympic-þjóðgarðinum. Mission Ridge-skíðasvæðið (www.missionridge.com) er talið hið besta í Washington og sá staður sem helst er hægt að jafna við Vail og Telluride í Colorado eða Alta og Snowbird í Utah. Mission Ridge er efst í austurhlíðum Cascade-fjalla í tæplega 1.400 metra hæð yfir sjávarmáli og liggur ekkert skíðasvæði í ríkinu hærra en Mission Ridge. Frá Seattle til skíðasvæðisins eru um 240 km og að vetrarlagi er við það miðað að taki um 2 og hálfa klst. að aka þangað frá borginni. GÓÐIR NÁGRANNAR Í NORÐRI: Vancouver, Vancouver Island, Victoria Washingtonvín Áhugamenn um vínsmökkun og áður lítt þekktar vínlendur ættu að gera sér ferð til Washington þegar sumri fer að halla. Það kemur ókunnugum eflaust á óvart en vínræktarsvæði í Washington eru í öðru sæti á eftir vínræktarsvæðunum í Kaliforníu þegar kemur að vínframleiðslu. Nú munu vera nærri tvö hundruð vínræktar- og víngerðarfyrirtæki í Washington, langflest þeirra í Walla Walla-sýslu, í suðausturhluta ríkisins, og í Yakimadal þar sem einnig er umfangsmikil epla- og humlarækun. Merlotþrúgan er vinsælust á meðal vínræktarbænda í Washington. BC-ferju til Vancouver; siglingin tekur um 1 og hálfa klst. og ferjur ganga á milli 8 til 10 sinnum á dag. – Vert er að minna hér á að árið 2010 verða vetrarólympíuleikar haldnir á hinum glæsilega skíðadvalarstað Whistler, skammt frá Vancouver, einni þekktustu og vinsælustu skíðaparadís í Norður-Ameríku. Hlið að vesturríkjunum Í samstarfi við Alaska Airlines, stærsta flugfélagið í Seattle, er stefnt að því í sumar að bjóða samdægurs tengiflug frá Seattle til borga eins og Las Vegas, Los Angeles, San Francisco og fleiri. Seattle er einnig kjörinn upphafsstaður fyrir þá sem langar til að aka suður vesturströnd Bandaríkjanna, meðfram Klettafjöllum, og heimsækja t.d. Portland í Oregon og San Fransisco og Los Angeles í Kalíforníu. SEA MÍN NÝTT KYNNINGARVERÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.