Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 46
● Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók mynd á
heimili Kolbrúnar Hjartardóttur Útgáfufélag: 365 miðlar
ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjór-
ar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía
Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur
Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
FER EIGIN LEIÐIR
GULUR LJÓMI
Verslanir fyllast óðum
af ýmsum munum
og blómum í pásk-
a litunum.
BLS. 4
EINSTÖK AÐ GÆÐUM
Íslenskt hugvit og hráefni
einkennir framleiðslu Ullar-
vinnslunnar Frú Láru.
BLS. 4
Kolbrún Hjartardóttir safnar sérstæðum munum á heimili sitt. BLS. 6-7
ÍSLENSKA PARIÐ
Whirlpool AWZ7465
6kg tvíátta barkalaus ÞURRKARI með
6th Sense rakaskynjara, 2 hitastigum
og köldum blástri. Íslenskur leiðarvísir.
Whirlpool AWOD6730
1400 snúninga og 6kg ÞVOTTA-
VÉL með stafrænu kerfisvali,
6th Sense sem skynjar óhrein-
indi í vatni og flýtir þvottatíma,
rafeinda stýrðum kerfisveljara
og hitastilli, stafrænni niður-
talningu og ullarkerfi. Íslenskt
stjórnborð og leiðarvísir.
TILBOÐ
FULLT VERÐ 124.995
99.995
TILBOÐ
FULLT VERÐ 119.995
89.995
EYRARVEGI 21 SELFOSSI SÍMI 480 3700 - GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK SÍMI 464 1600 - GLERÁRGÖTU 36 AKUREYRI SÍMI 460 3380 - SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK SÍMI 569 1500
ÞVOTTAVÉL MEÐ ÍSLENSKU
STJÓRNBORÐI OG
ÍSLENSKUM LEIÐARVÍSI
HEIMILISHALD
SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR
● heimili&hönnun
Listakonan Alice Olivia Clarke
hefur undanfarnar vikur staðið í
ströngu við uppsetningu á mósaík-
listaverki í Hafnarfjarðarkirkju.
Listaverkið heitir Lífsins tré.
„Dóttir mín er að fermast í vor
og mig langaði að gera eitthvað
sérstakt sem myndi tengja ferm-
ingarbörnin betur við kirkjuna,“
segir hún og hefur fengið góða
hjálp frá fermingarbörnunum við
gerð listaverksins en hvert þeirra
hefur fengið að búa til eitt laufblað
á hið íðilfagra tré. „Lífsins tré er
því í raun samsafn margra lista-
verka þar sem ég bý til stofninn en
börnin búa til laufblöðin.“
Síðasti spretturinn var nú í vik-
unni enda þurfti tréð að vera full-
laufgað fyrir fyrstu ferminguna
sem fram fer á morgun, 29. mars.
Það er einnig afmælisdagur Alice
og því skemmtileg afmælisgjöf
sem hún gefur sjálfri sér, að ljúka
við þetta verkefni sem hefur tekið
blóð, svita og tár.
Alice segir það hafa veitt sér
mikla gleði að vinna með ferm-
ingarbörnunum og ekki síst dóttur
sinni sem hefur verið nokkurs
konar aðstoðarstúlka hennar en
hún mun einnig fermast í vor.
Líkt og félagar þess í náttúr-
unni mun lífsins tré vaxa og dafna.
Á næsta ári er ætlunin að næsti
hópur fermingarbarna muni bæta
við laufblöðum á tréð og svo verð-
ur enn bætt við tréð árið 2011 en
þá býst Alice við að verkinu verði
lokið að fullu. - sg
Alice Olivia Clarke er í óða önn að klára mósaíklistaverkið Lífsins tré. Hún hefur fengið dygga hjálp frá fermingarbörnum Hafnar-
fjarðarkirkju en hvert þeirra útbjó eitt laufblað á tréð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dóttir Alice, Signý, mun fermast í Hafn-
arfjarðarkirkju í vor og hefur aðstoðað
móður sína við gerð listaverksins ásamt
félögum sínum í fermingarfræðslunni.
Fermingarbörnin hjálpa
til við að móta lífsins tré
● Hvert laufblað á Lífsins tré endurspeglar eitt fermingarbarn sem fermist í Hafnarfjarðar-
kirkju í vor. Alice Olivia Clarke á veg og vanda að hinu metnaðarfulla listaverki.
É
g bjó í blokk sem barn ásamt bræðrum mínum tveimur. Í
blokkinni bjuggu fleiri börn og minnist ég þess að eitt aðal-
tómstundagaman okkar, sérstaklega í vondum veðrum, hafi
verið að leika okkur á stigaganginum. Við fórum í eltingar-
leik með tilheyrandi látum upp og niður stigana en efsti stigapallurinn
var stikk. Þegar æsingurinn varð of mikill og aðrir íbúar blokkarinn-
ar létu í sér heyra þustum við niður í kjallara og kúrðum okkur undir
neðsta stiganum og hvísluðum um heima og geima.
Í hjólageymslunni dvöldum við margar stundir og man ég sérstak-
lega þegar við lögðum geymsluna undir okkur í metnaðarfullri tomb-
ólusöfnun. Held ég að dótið sem safnaðist hafi einmitt dagað upp í við-
komandi geymslu foreldrum okkar til lítillar gleði. Við litli bróðir
gerðum líka fræðandi tilraunir á lýsispillum
sem við skárum í bita svo lýsið lak niður hand-
riðið en því fylgdi vissulega allsérstök lykt. Af
hverju þessar tilraunir fóru fram á stigagang-
inum er erfitt að segja, líklega var erfiðara að
rekja ódæðin til okkar en ef við hefðum gert
eitthvað viðlíka á heimilinu. Það var því eitt-
hvað heillandi við þennan stigagang sem þjón-
aði sem nokkurs konar félagsmiðstöð.
Og tíminn leið. Fjölskyldan flutti í einbýli í
úthverfi og maður vandist því að þurfa ekki að deila neinu með nein-
um. Sameignarþrif og skipti á ruslatunnum heyrðu sögunni til.
Og tíminn leið enn. Dóttirin flutti að heiman og eignaðist sína eigin
fjölskyldu, litla dóttur og tvær stálpaðar stjúpdætur og öll bjuggu þau
í sátt og samlyndi í blokk í Árbænum.
Svo áttaði ég mig á því um daginn að ég væri orðin gömul þegar
ég þaut fram á stigapallinn og gargaði á krakkana að vera ekki með
þessi læti á stigaganginum því hann væri ekki staður til að leika sér
á. „Drífið ykkur bara út í góða veðrið,“ hrópaði ég og fann gráu hárin
spretta úr kollinum.
Stigagangurinn hefur nefnilega ekki misst neitt af sjarma sínum
gagnvart börnum. Þau trampa upp og niður stigana, rífast um hver
hafi verið leiðinlegur við hvern, skilja svo skóna sína og úlpur eftir á
víð og dreif. Og allt fer þetta gríðarlega í taugarnar á gömlu konunni
mér. Kannski þarf ég oftar að rifja upp gamlar syndir áður en ég hef
upp skammarræðuna og temja mér umburðarlyndi. Reyni það næst.
Ævintýraheimur
stigagangsins
Við gerðum líka
fræðandi tilraunir á
lýsispillum sem við
skárum í bita svo
lýsið lak niður
handriðið á
stigaganginum.
REYK JAVÍ K ARTS FE STI VA L
15. – 31. M A Í
LISTAHÁTÍÐ
Í REYK JAVÍ K 29. maí
Íslenska óperan
„Djöfullegir en dásamlegir.”Evening Standard
Velkomin í Klúbb
Listahátíðar!
sjá www.listahatid.is
á www.listahatid.is
www.midi.is
og í síma 552 8588
„Þessi dásamlega myrki kabarett er eins og Kurt Weill
meitlaður af Aleister Crowley og útkoman er gjörsamlega
gallalaus. Stórfenglegt.” The Guardian
TIGER LILLIES
Á LISTAHÁTÍÐ
Miðasala hafi n
28. MARS 2009 LAUGARDAGUR2