Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 102
70 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
„Ég get nú ekki neitað því að ég var örlítið áhyggjufullur um kvöldið.
Ég byrjaði nefnilega að hósta blóði fljótlega eftir leik og það stóð
yfir fram eftir kvöldi,“ sagði Hlynur Bæringsson, leikmaður og þjálfari
Snæfells, við Fréttablaðið. Það fór um áhorfendur í Fjárhúsinu á mið-
vikudag þegar Hlynur lenti illa á öxlinni undir lok leiksins. Óttuðust
menn það versta enda fallið skelfilegt.
„Bróðir minn er læknir og hann sagði mér að ég gæti
verið slakur ef ég myndi hætta að hósta blóðinu. Ef
ekki yrði ég að fara á spítala sem ég er nú ekkert
sérstaklega hrifinn af. Sem betur fer hætti blóðið
að koma upp úr mér áður en ég fór að sofa,“
sagði Hlynur sem neitar því ekki að hafa verið
aumur síðustu daga.
„Ég hef oft verið betri og í raun ekkert spes.
Ég er bara aumur í allri síðunni og mjóbakinu.
Það er samt ekkert brotið eða slitið. Ég hef
engar áhyggjur af þessu. Þegar ég verð búinn
að hita vel og adrenalínið fer að flæða mun
ég ekki finna fyrir þessu,“ sagði Hlynur sem
hafði ekki enn horft á atvikið þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær.
„Ég man bara eftir að ég hoppaði upp í frákastið og svo fann ég að
lappirnar voru ekki að fara rétta leið. Ég vissi því að ég myndi fá skell.
Það er ekki gott þegar lappirnar fara á flug og ágæt regla að hafa
lappirnar undir sér þegar maður hoppar upp,“ sagði Hlynur léttur.
Snæfell mætir til Grindavíkur í dag án Slobodans Subasic
sem var rekinn frá félaginu. Að sögn Hlyns var Subasic
einstaklega neikvæður og leikmenn liðsins orðnir
ansi pirraðir á honum.
„Við erum alls ekki að kasta inn hvíta hand-
klæðinu og gefast upp með þessu eins og eflaust
einhverjir halda. Þvert á móti teljum við okkur vera
sterkari án hans en með honum. Hann var orðinn
baggi á okkur,“ sagði Hlynur.
„Vonandi fer þessi breyting vel í mannskapinn og
menn mæti með gleðina og baráttuna að
vopni til Grindavíkur. Þetta leggst vel í mig
og ég held að við vinnum,“ sagði
Hlynur sannfærandi.
HLYNUR BÆRINGSSON: SPILAR GEGN GRINDAVÍK Í DAG ÞÓ SVO AÐ HANN SÉ AUMUR, MARINN OG BLÁR
Hlynur hóstaði blóði allt kvöldið eftir fallið
> Verður helgin „Haukahelgi“?
Stuðningsmenn Hauka gætu lent í því að fagna alla
helgina. Klukkan 16.00 í dag tekur kvennalið Hauka í
handbolta á móti FH og með sigri verða Haukastúlkur
deildarmeistarar og fá bikarinn. Karlalið Hauka tekur
síðan á móti HK á sama tíma á sunnudag og getur með
sigri einnig orðið deildarmeistari. Önnur bikarafhending
yrði þá. Á sunnudagskvöldið eru síðan Haukastelpurnar í
körfunni að keppa við KR í Vesturbæn-
um. Með sigri verða Haukastelpur
Íslandsmeistarar. Það gæti því orðið
glatt á hjalla hjá Haukafólki þessa
helgina.
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
lék á einu höggi yfir pari á öðrum
keppnisdegi opna Andalúsíu-
mótsins á Sevilla á Spáni í gær
en mótið er hluti af Evrópumóta-
röðinni í golfi. Hann er samtals
á tveimur höggum undir pari og
komst auðveldlega í gegnum nið-
urskurðinn.
Hann hóf leik snemma í gær-
morgun og var meðal fyrstu
manna til að klára. Hann byrjaði
á tíundu holu og fékk par á fyrstu
sex holunum. Birgir Leifur var
svo á ágætu skriði þar til á síð-
ustu þremur holunum er hann
fékk tvo skolla. Alls fékk hann
fjóra slíka í gær og þrjú pör.
Birgir Leifur púttaði ágætlega í
gær. Hann þurfti eitt pútt á níu
holum en þrípúttaði tvívegis, rétt
eins og á fyrsta keppnisdeginum.
Hann hefur ekki enn fengið
skramba á mót- inu en
náði sér í örn á níundu
holu á fyrsta
keppnisdegin-
um.
- esá
Birgir Leifur Hafþórsson:
Enn á góðu
skriði
BIRGIR LEIFUR
Keppir áfram
í Andalúsíu
á Spáni um
helgina.
NORDIC PHOTOS /
GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Einn leikur er í riðli
Íslands í undankeppni HM 2010 í
dag. Hollendingar mæta þá Skot-
um á heimavelli en Ísland mætir
svo Skotum í Glasgow á mið-
vikudaginn í næstu viku. Ólafur
Jóhannesson landsliðsþjálfari og
Pétur Pétursson, aðstoðarmaður
hans, eru staddir í Amsterdam til
að horfa á leikinn.
Skotar eru í bullandi vand-
ræðum því margir leikmanna
hafa annaðhvort þurft að draga
sig úr hópnum vegna meiðsla
eða voru þegar búnir að boða
forföll. Meðal þeirra má nefna
Alan Hutton, Stephen McManus,
David Weir, Kirk Broadfoot, Paul
Hartley, Barry Robson og James
McFadden.
Þá er Kris Boyd í fýlu út í
George Burley landsliðsþjálfara
og gefur ekki kost á sér.
Bert van Marwijk, þjálfari Hol-
lands, hefur þó úr fríðum hópi
leikmanna að velja og gæti þess
vegna stillt upp þeim Dirk Kuyt,
Klaas Jan Huntelaar og Robin
van Persie upp í fremstu víglínu.
Síðast þegar Skotar spiluðu í Hol-
landi, árið 2003, töpuðu þeir 6-0
og vilja þeir sjálfsagt ekki upp-
lifa þá raun aftur. - esá
Undankeppni Hm 2010:
Vængbrotnir
Skotar mæta
Hollendingum