Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 42
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg Tómasdóttir og Roald
Eyvindsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd:
Nordicphotod/Getty Images Pennar: Hrefna Sigurjónsdóttir,
Kjartan Guðmundsson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Sólveig
Gísladóttir og Vera Einarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið
Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365.is
BARNVÆNT
Mér líður stundum eins og ég gæti opnað litla leikfangaverslun heima hjá mér án þess að ég þyrfti að kaupa eitt einasta leikfang.
Heima hjá mér er mjög mikið af dóti, mjög mikið.
Og þar sem stærð heimilins er innan við 90 fer-
metrar, sem sagt ekkert fáránlega rúmgott fyrir
fjögurra manna fjölskyldu, þá er oft dót úti um öll
gólf þegar líður á daginn og dót í hverju horni þegar
börnin eru farin að sofa.
Þetta byrjaði allt saman mjög rólega, ég held
að frumburðurinn hafi verið orðinn margra mán-
aða þegar fyrsta leikfangið birtist á heimilinu. Svo
smátíndist til af leikföngum, og á fyrstu jólum og
afmæli fékk hann ógurlega mikið. Sem þó er bara
brot af því sem er á heimilinu núna. Það hafa auð-
vitað verið nokkrir afmælisdagar og jól síðan þetta
var, og nýtt barn bæst við. Þar fyrir utan verð ég
að játa að hafa geymt töluverðan slatta af leikföng-
um æsku minnar og sama á við um húsbóndann.
Við þetta bætist heil hrúga frá stórum frænda og
útkoman er – heill hellingur.
Ég hef reyndar verið nógu sniðug til þess að
geyma talsvert af leikföngum í geymslunni, sumt
hafa börnin ekki séð enn, sumt hef ég dregið fram
og svo til baka. Einstaka sinnum hef ég tekið eitt-
hvað úr umferð um skeið og sannreynt að það góða
ráð að láta dót „hverfa“ gerir það sem nýtt þegar
það er svo tekið fram síðar. Það góða trix virkar
afskaplega vel, „nýja“ dótið verður mest spennandi
og efniviður leikja.
Þrátt fyrir þetta stend ég sjálfa mig að því að
hugsa um alls konar leikföng sem mér finnst börnin
vanta – eldhús, brúðuleikhús, töfrasett, eitt og annað
sem mig langar ógurlega til þess að þau eigi, senni-
lega því að mig langaði svo í það þegar ég var lítil!
En ég reyni að hemja mig. Á meðan heimilið lítur
að jafnaði út fyrir það að loknum kvöldmat að þar
hafi verið kastað sprengju, er kannski ekki málið
að kaupa meira dót, fyrir utan peninginn sem það
kostar. Og eins og það getur vafist fyrir öllum heim-
ilismeðlimum að ganga frá dótinu á sinn stað er
kannski ekki á það bætandi. Þar fyrir utan er ekki
endilega mest gaman alltaf að leika með leikföng,
venjulegir pottar duga oft vel eða koppar og kirnur
ýmiss konar.
Svo má ekki gleyma því að ætlunin var aldrei
að fylla heimilið af leikföngum. Nei, í draumum
mínum ætlaði ég að velja vel fáein gæðaleikföng úr
fyrir börnin að leika sér með. En svona getur maður
verið ósamkvæmur sjálfum sér þegar á hólminn er
komið.
Leikföng í hverjum
krók og kima
Jákvætt og hvetjandi
tónlistarumhverfi
Spýturóló Göngutúrar eru gott
fjölskyldusport og ekki verra ef
áfangastaðurinn er heillandi fyrir
börnin í fjölskyldunni. Ýmsar
skemmtigöngur má fara innanbæjar
og leggja leið sína á leikvelli
borgarinnar í leiðinni, til að fá útrás
fyrir klifur- og rennibrautarþörf
ungviðis sem og eldri fjölskyldu-
meðlima. Í Vesturbæ Reykjavíkur,
við Eiðisgranda, er skemmtilegur
leikvöllur, spýturóló, þar sem gaman
er að klifra í öðruvísi leiktækjum en
eru á flestum leikvöllum. Fullorðnir
geta líka reynt á hæfileikana í
þessum tækjum þar sem hægt er að
þjálfa handstyrk með því að lesa sig
eftir bjálkunum. Mikilvægt er þó að
ofmeta ekki eigin hæfni, því þótt
klifurhæfileikar hafi verið til staðar á
barnsaldri er ekki víst að þeir séu
enn til staðar á fullorðinsárum.
Sigríður
Tómasdóttir
skrifar
Suzuki-tónlistarnám byggir á hugmyndafræði japanska fiðlu-kennarans Dr. Shinichi Suzuki. Kennsluaðferðin nefnist móður-
málsaðferðin, og byggir hún meðal ann-
ars á því að skapa jákvætt og hvetjandi
tónlistarumhverfi fyrir unga nemend-
ur og gera foreldrana að virkum þátt-
takendum í náminu. Suzuki-deild hefur
verið starfrækt í Tónskóla Sigursveins
frá árinu 1987, og kennt er á fiðlu, selló
og píanó.
Synir Jóns hófu fiðlunám ásamt föður
sínum fjögurra og fimm ára gamlir.
Spurður hvernig námið sækist hjá þeim
feðgum segir Jón það ganga vel, þótt hver
þeirra búi yfir mismunandi hæfileikum
eins og gengur og gerist. „Ég reyni til
dæmis að halda í við eldri soninn. Það er
dálítið erfitt,“ segir hann og hlær. „Ég
lærði smávegis á píanó sem strákur og
er frekar fljótur að læra lögin. En vegna
þess að hann er ungur þá er eins og
hann tileinki sér öll smáatriðin mun
auðveldar. Þannig að meðan ég er að
gera mjög strúktúreraðar æfingar til
að ná þessum litlu atriðum eins og
réttri slökun í hendinni og fleiru í
þeim dúr, þá kemur það bara nátt-
úrulega hjá honum. Þegar kemur að
því að spila lögin hratt eða ná ákveð-
inni mýkt í spilamennskuna og
slíkt, þá er hann alltaf kominn
langt á undan mér. Þá bendir
hann mér vinsamlegast á að fara
inn í herbergi til að æfa mig,“
bætir Jón við og skellir upp úr.
Að sögn Jóns eyða feðgarnir
hver um sig í kringum fjórum
klukkustundum á viku í tíma-
sókn og æfingar á fiðluna, en
auk þess er boðið upp á hóp-
og hljómsveitartíma aðra
hvora viku. Æfingarnar snú-
ast að langmestu leyti um sígilda tónlist.
„Yngri sonurinn hefur nú þegar bitið í sig
að hann ætli sér að verða rokktónlistar-
maður þegar hann verður stór. Frændi
hans lærði á fiðlu á sínum yngri árum
og er góður bassaleikari í dag, og við
notum það sem gulrót fyrir strákinn;
Að ef hann er duglegur að æfa sig á
fiðluna verði hann rosalega góður
gítarleikari þegar fram í sækir.“
En hvernig skyldi Fjólu, mömm-
unni á heimilinu, ganga að um bera
þrjá fiðlunemendur með tilheyr-
andi háværum æfingum? „Það
er ekkert mál þegar strákarn-
ir eru að æfa sig, en þegar ég
er að gera tækniæfingarnar
mínar aftur og aftur pass-
ar hún bara upp á að vera
hinum megin í húsinu,“
segir Jón Thoroddsen.
- kg
Listræn fjölskylda
Jón og synir hans
Emil og Kári eru
saman í Suzuki-
fiðlunámi hjá Tón-
skóla Sigursveins.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
„Fiðlunámið býður okkur feðgunum upp á fastan tíma sem við getum eytt saman og það er auðvitað
hið besta mál,“ segir Jón Thoroddsen, forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Simdex. Jón og synirnir Emil,
átta ára og Kári, sex ára, hafa í nokkur ár stundað saman Suzuki-fiðlunám hjá Tónskóla Sigursveins.