Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 48
● heimili&hönnun
1. Klassísk lukt úr
versluninni Ylvu. Hana
er bæði hægt að fá í
grænu og svörtu og
kostar 2.490 krónur.
2. Teljós í flösku
sem hengja má upp
innan dyra eða á svölun-
um. Fæst í Húsgagna-
höllinni á 690 krónur.
3. Páskagul kerti
standa alltaf fyrir
sínu á þessum árs-
tíma. Fæst í Hús-
gagnahöllinni á
1.390 krónur.
4. Gulur og glær
olíulampi lýsir
upp hug og hjörtu.
Fæst í Húsgagna-
höllinni á 990 krónur.
5. Olíu-
ljós úr
fallega mótuð-
um kristal prýðir hvaða
heimili sem er. Hægt er
að fá mismunandi liti af
olíum. Þessi klassísku
ljós fást í versluninni
Gegnum glerið á 7.850
krónur.
6. Grænni birtu
stafar frá þessu sæta
teljósi sem er handskor-
ið. Hægt er að fá það í
ýmsum litum og fæst
það í versluninni Gegn-
um glerið og kostar
1.680 krónur.
Páskar í nánd
● Gulir og grænir litir boða komu vorsins. Margan
er farið að lengja eftir að sjá græðlingana kíkja
upp úr jörðinni og marka þar með lok vetrar.
Þangað til er hægt að ylja sér við falleg ljós
og luktir í litum vorsins.
5
2
6
1
3
Hin síðari ár hefur fjöldi hesta-
manna ráðist í endurgerð hest-
húsa sinna eða jafnvel byggt nýtt
frá grunni. Erna Árnadóttir innan-
hússarkitekt og faðir hennar, Árni
Matthías Sigurðsson, hafa frá lok
ársins 2003 hannað og smíðað inn-
réttingar í hesthús. Innréttingarn-
ar eru stílhreinar og formfagrar
með bogum úr ryðfríu stáli sem er
glerblásið og endist því vel.
Fyrirtæki þeirra feðgina, Króm
og stál, hefur séð um smíði innrétt-
inganna en þau Erna og Árni hafa
innréttað um 25 til 30 hús í allt.
Hægt verður að skoða hesthús með
innréttingum þeirra í dag, milli 15
og 17 í opnu hesthúsi sem haldið
verður að Kaplaskeiði 17 í hest-
húsahverfi Sörla í Hafnarfirði. - sg
Formfagrar innréttingar
● Það er liðin tíð að hesthús angi af hrossataði. Í dag vilja hestamenn hafa hátt til lofts,
og ferskt loft í húsakynnum hesta sinna enda eru þar oft á tíðum geymdir miklir gullmolar.
Erla gengur úr skugga um að allt sé í lagi með innréttingarnar fögru. Hægt verður
að skoða hesthús með innréttingum Króms og stáls í dag, laugardag, milli 15 og 17 í
svokölluðu opnu hesthúsi sem haldið verður að Kaplaskeiði 17 í hesthúsahverfi Sörla
í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
„Við höfum einbeitt okkur að ullarþæfingu síðan 2001 og létum
nýlega smíða þæfingarvél fyrir okkur hér á staðnum,“ útskýr-
ir Þórdís Bergsdóttir, eigandi Ullarvinnslunnar Frú Láru, en
Hallgrímur Jónsson, uppfinningamaður og þúsundþjalasmiður á
Seyðisfirði, hannaði vélina og smíðaði.
Þórdís segir íslenskt hugvit og hráefni einkenna alla vinnslu
Frú Láru en verksmiðjan er í samstarfi við íslenska listamenn og
hönnuði. „Við vinnum með Ingibjörgu Hönnu Pétursdóttur fata-
hönnuði en hún hefur markaðssett sínar vörur í Evrópu og nú í
Bandaríkjunum. Hún hannar efnin og við framleiðum.“ Einn-
ig er Frú Lára í samvinnu við listakonuna Bryndísi Bolladótt-
ur sem hefur hannað ýmiss konar heimilisvörur í þæfða ull, svo
sem lampaskerma og diskamottur.
Verksmiðjan vinnur í hreina lambsull sem er fínni en ull af
fullorðnu fé. Þórdís segir ullina einstaka að gæðum og það skorti
því ekki tækifærin með vinnslu úr íslenskri ull, vinnan strandi
helst á fjármagni. „Þróunarferlið hefur verið langt en við rennd-
um blint í sjóinn með þetta. Það er líka mikil vinna að fjármagna
svona nýsköpunarverkefni og ég veit að margir með góðar hug-
myndir gefast upp vegna þess,“ segir Þórdís. „Við getum þó hæg-
lega aukið við okkur og framleitt fyrir fleiri ef okkur tekst að út-
vega fjármagn, því nýja vélin er stór og afkastamikil.“ - rat
Hágæðaframleiðsla
Þórdís Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Ullarvinnslunnar Frú Láru á Seyðisfirði,
segir tækifæri búa í íslenskri ull. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bekkur eftir Bryndísi Bolladóttur en Ullarvinnslan Frú Lára þæfði áklæðið á
bekkinn. MYND/BRYNDÍS BOLLADÓTTIR
● Ullarvinnslan Frú Lára á Seyðisfirði hefur sérhæft
sig í að þæfa íslenska ull. Nú hefur vinnslan tekið í
notkun sérhannaða þæfingarvél.
4
28. MARS 2009 LAUGARDAGUR4