Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 104
72 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Arnar Freyr Jóns-
son komst í fámennan hóp á
miðvikudaginn þegar hann
var í sigurliði Grindavíkur
í Stykkishólmi. Hann varð
þá aðeins níundi leikmað-
urinn í sögu úrslita-
keppni úrvals -
deildar karla sem
nær því að spila tíu
sigurleiki í röð.
Arnar Freyr varð
Íslandsmeistari með
Keflavík í fyrra þegar
liðið lenti 0-2 undir
í undanúrslitaein-
vígi á móti ÍR en vann
síðan sex síðustu leiki sína
og tryggði sér titilinn. Arnar
Freyr skipti síðan yfir í
Grindavík fyrir þetta
tímabil og hefur liðið
unnið fjóra fyrstu leik-
ina sína í úrslitakeppn-
inni í ár.
Njarðvík setti met með
því að vinna 11 leiki í röð
í úrslitakeppninni á árun-
um 1985 til 1988. Fimm
leikmenn Njarðvíkur tóku
þátt í öllum ellefu leikj-
unum og tveir til við-
bótar misstu aðeins úr
einn leik. - óój
Jafnar Arnar Freyr Jónsson met í úrslitakeppni karla?
Tíu sigurleikir í röð
SIGURSÆLL Arnar
Freyr Jónsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
KÖRFUBOLTI Það lak svitinn af
áhorfendum þegar þeir gengu út
úr DHL-höllinni seint í gærkvöld.
Það bað enginn um endurgreiðslu
eftir einhvern sögulegasta og lygi-
legasta körfuboltaleik sem spilað-
ur hefur verið á Íslandi og eflaust
víðar.
Skylmingakappar frá KR og
Keflavík börðust á banaspjótum í
hátt í þrjá klukkutíma. Eftir venju-
legan leiktíma og fjórar framleng-
ingar stóð uppi sigurvegari. Það
var KR sem hafði betur í tauga-
stríðinu endalausa og er þar með
komið í úrslitaleikina í deildinni.
Rosa með 51 stig
Dramatíkin var rosaleg allan tím-
ann. Jesse Rosa, sem skoraði 51
stig, tryggði Keflavík fyrstu fram-
lenginguna með körfu þegar sek-
únda var eftir. Helgi Már var
næstum búinn að skora síðan í
lokaskotinu. Sigurður Þorsteins-
son tryggði Keflavík aðra fram-
lengingu þegar 11 sekúndubrot
voru eftir af þeirri fyrstu. Þvílík
dramatík sagði fólk en það var nóg
eftir af spennu og fjöri.
KR var þrem stigum undir
þegar 6 sekúndur voru eftir af
framlengingu tvö. Þá skoraði Jón
Arnór Stefánsson einhverja rosa-
legustu þriggja stiga körfu sem
sést hefur um leið og leiktíminn
rann út. Fólkið í húsinu trúði vart
sínum eigin augum og gárungarn-
ir héldu því fram að á þeim tíma-
punkti hefðu sprengitöflur gengið
manna í millum í stúkunni.
Það var engin dramatík í lok
þriðju framlengingar. Í þeirri
fjórðu reyndist þrek KR meira og
taugarnar sterkari. Keflvíkingar
hafa þó ekkert til að skammast sín
fyrir þó svo þeim hafi verið sópað
úr mótinu. Þeir börðust af kjarki
í gær og geta gengið upprétt-
ir eftir ótrúlegan slag gegn ein-
hverja besta liði sem hefur spilað
á Íslandi.
„Þetta var bara geðveiki. Ég
meina fjórar framlengingar.
Maður hefur aldrei lent í öðru eins.
Ég hef heyrt af svona leikjum en
átti ekki beint von á því að lenda
í einum,“ sagði Jakob Örn Sigurð-
arson, leikmaður KR, brosmildur,
sveittur og þreyttur eftir leik.
Lappirnar löngu farnar
„Þetta tók gríðarlega á líkamann.
Lappirnar voru löngu farnar og
maður gekk bara á þrjóskunni og
viljanum. Það var svo fáranlega
ljúft að vinna svona leik. Ég efa
að það gerist sætara,“ sagði Jakob
sem skoraði 31 stig.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflvíkinga, hafði ekki einu
sinni hugmynd um hversu margar
framlengingarnar hefðu verið
þegar Fréttablaðið hitti hann eftir
leik.
„Ég var löngu hættur að telja.
Þetta er þess utan líklega mest
svekkjandi tap sem ég hef lent í
á mínum ferli,“ sagði Sigurður
brúnaþungur og útúrtaugaður líkt
og aðrir í húsinu. „Það voru bæði
lið algjörlega búin á því og það
segir ekkert þegar lið tapar eftir
fjórar framlengingar.“
Sigurður var engu að síður afar
ósáttur við að tapa öllum leikjun-
um gegn KR. „Það á ekki að ger-
ast og ég er mjög ósáttur við það.
Við leggjum samt ekki árar í bát
og ætlum að byggja áfram upp lið
í Keflavík,“ sagði Sigurður sem
verður áfram þjálfari liðsins.
henry@frettabladid.is
TÖLFRÆÐIN ÚR LEIKNUM
KR-Keflavík 129-124
(46-58, 101-101, 108-108, 116-116)
Stig KR: Jakob Sigurðarson 31 (12 stoðs., 10
frák.), Jason Dourisseau 30 (13 frák.), Jón Arnór
Stefánsson 27, Fannar Ólafsson 18, Helgi Már
Magnússon 11, Darri Hilmarsson 6, Baldur Ólafs
son 4, Brynjar Björnsson 2.
Stig Keflavík: Jesse Pellot-Rosa 51 (14 frák., 8
stoðs.), Jón Norðdal Hafsteinsson 22 (11 frák.),
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 19 (17 frák.),
Hörður Axel Vilhjálmsson 17 (9 stoðs., 8 frák.),
Gunnar Stefánsson 8, Gunnar Einarsson 5, Þröst
ur Jóhannsson 2.
Meisturunum sópað í frí
í maraþonleik aldarinnar
Einhver ótrúlegasti körfuboltaleikur síðari tíma fór fram í Vesturbænum í gær.
Þá vann KR lið Keflavíkur, 129-124, í leik sem þurfti að framlengja fjórum sinn-
um. KR er því komið í úrslitaleikina þar sem það mætir Grindavík eða Snæfelli.
STIGAHÆSTIR Jesse Pellot-Rosa skoraði 51 stig en Jakob Sigurðarson, sem er hér til
varnar, var með 31 stig og þrennu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÓTRÚLEG BARÁTTA Keflvíkingurinn
Sigurður Gunnar Þorsteinsson reynir hér
að verjast Jóni Arnóri Stefánssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÓBÆRILEG SPENNA Þjálfarar KR fylgjast
með leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON