Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 80
48 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
Ike og Tina Turner
Ike Turner var ágætlega
þekktur tónlistarmaður
þegar hann tók hina ungu
Anne Mae Bullock upp á sína
arma í byrjun sjöunda ára tugar
síðustu aldar og hóf að kenna
henni sitthvað um tónlist. Anne
Mae og Ike felldu hugi saman
enda virtist ekkert annað benda
til þess en að Ike væri fínn
náungi. Þau giftu sig í Mexíkó
1962 og skömmu seinna hófst
mikil frægðarför þessa dúetts
ásamt hljómsveit.
En þegar vinsældirnar tóku
að dvína fór Ike að sýna sitt
rétta andlit. Líkt og kvikmynd-
in What love got to do with it?
sýnir hvað best var Ike fauti af
verstu gerð og lamdi eiginkonu
sína af minnsta tilefni. Ike átti
samfara því erfitt með að hemja
áfengis- og kókaínfíkn sína og sambúðin varð því fljótlega hreinræktað
helvíti. Tina flúði frá manni sínum eftir miklar barsmíðar í júlímánuði
1976 í Dallas og hafði þá ekkert annað í vasanum en 36 sent og bensín-
stöðvarkort. Framhaldið þekkja flestir; Ike hvarf af sjónarsviðinu en
stjarna Tinu er kirfilega fest á himnafestingu tónlistarheimsins.
Sean Penn og Madonna
Samband Sean Penn og popp-
stjörnunnar Madonnu vakti
mikla athygli á níunda ára-
tugnum. Enda var Penn á
hraðri uppleið sem leikari í
Hollywood en Madonna hafði
fest sig í sessi sem einhver vin-
sælasta söngkona þess tíma.
Penn átt hins vegar í mikl-
um erfiðleikum með að höndla
pressuna í bókstaflegri merk-
ingu því hann lamdi ljós-
myndara götublaðanna í hvert
skipti sem hann náði til þeirra.
Hjónaband Madonnu og Sean
var einnig ákaflega storma-
samt og á meðan á hjónabandi
þeirra stóð kærði Madonna
hann fyrir heimilisofbeldi.
Penn fékk skilorðisbundinn
dóm; þau skildu skömmu síðar,
eða 1989.
Whitney Houston og Bobby Brown
Eitt umdeildasta og mest umtalaða hjónaband síðari ára
er án nokkurs vafa samband Whitney Houston og Bobbys
Brown. Stjarna Whitney skein bjart en ásókn þeirra beggja í
eiturlyf á borð við krakk og kókaín varð þó fljótlega til þess
að frægðin og framinn yfirgaf hjónakornin á svipstundu.
Þótt bæði reyndu að blása af öllum mætti á eiturlyfjasögur
og hjónaerjur þá lagði Whitney fram kæru á hendur Bobby í
maí 2004 fyrir heimilisofbeldi. Hún hefur boðað endurkomu
sína á tónlistarsviðið og kom meðal annars fram á góðgerð-
arsamkomu í febrúar á þessu ári og þótti standa sig vel.
Bobby og Whitney skildu í apríl 2007 og samkvæmt dómsúr-
skurði þarf Whitney ekki að greiða fyrrverandi eiginmanni
sínum krónu og hefur fullt forræði yfir dóttur þeirra.
Liza Minelli og David Gest
Eitt undarlegasta hjónaband seinni tíma var hjúskapur
söng- og leikkonunnar Lizu Minelli og tónleikahaldarans
Davids Gest. Þau voru gift í um það bil eitt ár eftir að hafa
verið á stefnumótum í hálft ár.
Þegar þau ætluðu að skilja eftir stormasamt samband og
mikla fjölmiðlaumfjöllun lagði David fram kæru á hendur
Lizu og sakaði hana um að hafa beitt sig ofbeldi meðan á
sambandinu stóð. Í kærunni kom fram að Liza hafi átt erf-
itt með að hemja skap sitt þegar áfengi var haft um hönd
og átti hún, samkvæmt Gest, það til að beita hann ofbeldi.
Kærurnar voru hins vegar látnar niður falla þegar gengið
var frá skilnaðinum.
Mike Tyson og Robin Givens
Mike Tyson og Robin Givens voru oft
nefnd „Fríða og dýrið“ í bandarískum fjöl-
miðlum. Enda Tyson einhver höggþyngsti
einstaklingur sem gengið hefur á þessari
jörð og hálfgert skrímsli í augum and-
stæðinga sinna. Givens var hins vegar
fíngerð leikkona sem vakið hafði athygli
fyrir leik sinn í gamanþáttunum Head
of Class.
Bandarískur almenningur tók hins
vegar andköf þegar Givens og Tyson
birtust í viðtali við Barböru Walters
í sjónvarpsþættinum 20/20. Givens
var ekkert að skafa utan af hlutunum
í viðtalinu þótt Tyson sæti við hlið hennar
og héldi í hönd hennar, sagði hjónabandið
vera helvíti á jörðu, það versta sem hún
hefði upplifað og bætti því við að hnefa-
leikakappinn væri þunglyndur og notaði
geðlyf. Mánuði seinna sótti Givens um
skilnað frá Tyson og sagði hann hafa beitt
sig síendurteknu heimilisofbeldi. Givens
fór ekki vel út úr skilnaðinum því blökku-
mannasamfélagið sneri baki við henni og
sakaði hana um að hafa eyðilagt feril Mikes
Tyson. Hann var skömmu eftir skilnaðinn
dæmdur fyrir hrottalega nauðgun.
Chris Brown og Rihanna
Breska poppstjarnan
Rihanna var á góðri
leið með að verða ein
fremsta poppsöng-
kona heims þegar
nafn hennar lenti á
forsíðu heimspress-
unnar vegna miður
skemmtilegrar lífs-
reynslu. Henni og
unnustanum, Chris
Brown, lenti saman
eftir Grammy-verð-
launaafhendinguna
með þeim afleiðing-
um að Brown lamdi
hana. Myndir af
Rihönnu eftir árás-
ina fóru eins og
eldur í sinu um Netið
og Brown breyttist á
örskammri stundu
úr efnilegum rapp-
ara í óþokka.
Þegar fjölmiðlar komust svo á snoðir um að Rihanna hefði
tekið Brown aftur í sátt varð allt brjálað í Bandaríkjunum.
Oprah Winfrey biðlaði til Rihönnu um að segja skilið við
Brown, menn sem legðu hendur á konu sína einu sinni gerðu
það yfirleitt aftur og málið rataði alla leið til spjallþáttastjórn-
andans Larrys King á CNN en þar hvatti meðal annars Robin
Givens söngkonuna til að pakka saman og fara frá unnusta
sínum. Svo virðist sem viðvörunarorðin hafi borið árangur
því ef marka má síðustu fréttir vill Rihanna ekkert meira
með Brown hafa.
O.J. Simpson og Nicole Brown
O.J. Simpson átti mikilli vel-
gengni að fagna með ruðningslið-
inu San Fransisco 49ers í banda-
rísku ruðningsdeildinni NFL.
Hans verður þó sennilega alltaf
helst minnst sem sakbornings í
einum mest umtöluðu réttarhöld-
um síðari tíma, þegar hann var
sýknaður af morði á eiginkonu
sinni, Nicole Brown-Simpson, og
vini hennar, Ronald Goldman.
Forsagan er sú að O.J. var
handtekinn og kærður fyrir
að beita eiginkonu sína ofbeldi
árið 1989. Í kjölfarið skildu þau
að skiptum. Fjórum árum síðar
fundust Nicole og Ronald látin
en O.J. hafði tekið skilnaðinum
ákaflega illa.
Líf O.J. hefur síðan þá verið
eitt allsherjar klúður og nú síðast var hann handtekinn og dæmdur til langrar fangelsis-
vistar fyrir vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas.
Hinn seki Stormasamt og ofbeldisfullt
Fríða og dýrið
Undarleg blanda
Í sambúð með hrotta
Í viðjum vímunnarÁkall frá umheiminum
Ofbeldi í heimi hinna frægu
Heimilisofbeldi er í huga margra eingöngu bundið við lægri stéttir þjóðfélagsins og óreglufólk. Sagan hefur hins vegar kennt
okkur að staðreyndin er önnur og hefur stétt eða staða lítt með vandamálið að gera en það er helst að vandamálið sé oft betur
falið á „fínni“ heimilum. Nema þegar þú býrð kannski í Holllywood og færð þig hvergi falið fyrir ljósmyndurum og sviðsljósinu.
Freyr Gígja Gunnarsson fór baksviðs og kynnti sér sorglegar sögur í heiminum þar sem allt á að vera slétt og fellt.