Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 66
Kolbrún Hjartardóttir býr ásamt
fjölskyldu sinni í fallega uppgerðri
íbúð í Skipholti, þar sem sérstæð-
ir munir ráða ríkjum. Sérstaka at-
hygli vekur myndarlegt hreindýra-
safn sem húsfreyjan hefur komið
sér upp á síðustu árum, en hún er
að eigin sögn haldin ólæknandi
söfnunaráráttu.
„Áhugann á hreindýrunum má
rekja til þess að ég er Hjartar-
dóttir og eitt sinn sagði pabbi að
hjörturinn væri konungur hrein-
dýranna. Upp frá því hefur mér
þótt mikið til þessara dýra koma
og ég fór ósjálfrátt að safna þeim,
tuskudýrum fyrir börnin og öðru-
vísi hreindýrum fyrir mömm-
una. Reyndar eru stundum skipt-
ar skoðanir um hvort þetta séu
hreindýr eða elgir,“ segir hún og
hlær. Bætir við að öll ættin sé
haldin þessari áráttu, og til marks
um það hafi frænka hennar verið
skírð Hind.
Hreindýr eru þó ekki það eina
sem Kolbrún safnar; alls kyns
skemmtilegir hlutir prýða heimilið
sem húsfreyjan hefur oftar en ekki
keypt á ferðalögum sínum. „Mark-
miðið er að finna að lágmarki einn
skemmtilegan og einstakan hlut
þegar ég fer til útlanda, eða eftir
því hvað það tekur stíft í budduna,“
segir Kolbrún, sem gefur suma
hlutina meðan aðrir rata í búslóð-
ina. En hvernig gengur að halda
öllu í föstum skorðum með svona
söfnunardellu?
„Ég geri mitt besta til að hafa
hlutina á ákveðnum stöðum og
skipti þeim svo reglulega út, set
þá inn í skáp til að hvíla þá og tek
þá svo aftur út þegar ég er í stuði.
Þá virka þeir eins og nýir og veita
kærkomna tilbreytingu svo maður
þarf ekki alltaf að kaupa eitthvað
nýtt,“ segir hún og viðurkennir
hlæjandi að vel hafi verið tekið til
fyrir komu ljósmyndara. - rve
Hreindýr í stofunni
● Kolbrún Hjartardóttir er haldin ólæknandi söfnunaráráttu. Heimili hennar ber þess skýr
merki því þar má finna ýmsa skemmtilega muni sem hún hefur safnað til sín um árin.
Svart og hvítt ræður ríkjum í stofunni. Kolbrún segist vera afar hrifin af svörtum lit, finnst hann róandi og er ekki á leiðinni að
skipta yfir í annan þótt hann sé kannski minna í tísku en áður. Borðið er íslensk hönnun, keypt í versluninni Kósý, og stólarnir
einnig þaðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta skemmtilega loftljós fékk Kolbrún
í Casa.
Þessi hilla hékk uppi á vegg í prent-
smiðjunni Eyrúnu í Vestmannaeyjum
sem var í eigu ömmu Kolbrúnar.
Maður Kolbrúnar og börn
gáfu henni kontrabassa í
afmælisgjöf, þar sem hana
hefur lengi dreymt um að
spila á hljóðfærið.
Tilboðsdagar
fram að páskum
20 - 70 % afsl.
Baðdeild Álfaborgar
Skútuvogi 4 - sími: 525 0800
Sturtuklefar - Baðinnréttingar
Hreinlætistæki - Blöndunartæki
Baðker ofl.
LÚR - BETRI HVÍLD
Eigum til á lager Slide Back rúm
tilbúin til afgreiðslu strax
www.lur.is
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
28. MARS 2009 LAUGARDAGUR