Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 96
64 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Hvað er að frétta? Lóan að minnsta kosti komin.
Augnlitur: Brúnn.
Starf: Stílisti/búningahönnuður.
Fjölskylduhagir: Gift Magnúsi Guðmundssyni og
saman eigum við Sturlu, Egil og Völu. Nú og kötturinn
Greta Garbo.
Hvaðan ertu? Uppalin í Kópavogi og Köben.
Ertu hjátrúarfull? Já, þegar það passar mér, eða Val
eða Man U eða Íslenska landsliðinu eða …
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég elska Klovn, vand-
ræðaleg snilld.
Uppáhaldsmaturinn: Fyrsta grill sumarsins.
Fallegasti staðurinn: Flestir staðir fallegir ef maður er
í góðu skapi. Spurning um sjónarhorn. Lífið er oftast
fallegt.
iPod eða geislaspilari: Alveg sama.
Hvað er skemmtilegast? Hlæja.
Hvað er leiðinlegast? Fólk í fýlu.
Helsti veikleiki: Ég á mjög erfitt með að segja nei.
Helsti kostur: Þolinmæði.
Helsta afrek: Sturla, Egill og Vala. Snillingarnir þrír.
Mestu vonbrigðin? Að hafa aldrei komist í
splitt.
Hver er draumurinn? Að hitta Snorra
bróður minn með fjölskyldurnar, sem
fyrst.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Maggi
minn.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Óheiðarleiki.
Hvað er mikilvægast? Fjölskyldan,
umburðarlyndi og kærleikur.
HIN HLIÐIN MARGRÉT EINARSDÓTTIR STÍLISTI OG BÚNINGAHÖNNUÐUR
Vonbrigði að hafa aldrei komist í splitt
13.08.1970
Í Merg málsins er fjallað um
liðlega 9000 orðatiltæki,
notkun þeirra, uppruna og
sögu. Vandfundið er annað
eins safn dæma um fjölbreytni
tungmálsins og umhverfið
sem það er sprottið úr.
www.forlagid.is
AÐ KOMAST TIL MANNS
Reykjavíkurborg hefur ver-
ið verðlaunuð fyrir árangur
við hreinsun og endurreisn
miðborgarinnar á liðnu ári.
Jakob Frímann Magnússon
veitti verðlaununum við-
töku í London.
„Þetta er sérstaklega ánægjulegt
og óvænt því hér eru allar helstu
borgir heims undir,“ segir Jakob
Frímann Magnússon tónlistar-
maður og miðborgarstjóri.
Reykjavíkurborg hlaut að
kvöldi fimmtudags verðlaun
alþjóðasamtakanna ATCM fyrir
frábæran árangur við hreinsun
og endurreisn miðborgarinnar
á síðastliðnu ári, en ATCM eru
alþjóðasamtök miðborgarstjórna
700 borga og aðila tengdum mið-
borgarrekstri víðs vegar um
heiminn. Verðlaunaafhendingin
fór fram í Lundúnum á fimmtu-
dagskvöld á stjörnum prýddri
samkomu á Park Plaza River-
bank og tóku þeir Jakob Frímann
Magnússon miðborgarstjóri og
Gestur Guðjónsson, varaformað-
ur Umhverfisráðs Reykjavíkur-
borgar, við verðlaununum fyrir
hönd Reykjavíkurborgar. Jakob
vill ekki gera mikið úr sínum hlut
vegna þessa heiðurs sem borginni
fellur í skaut.
„Þetta er fyrst og fremst viður-
kenning á störfum framkvæmda-
sviðs borgarinnar þar sem Hrólf-
ur Jónsson og Guðmundur Vignir
Óskarsson eiga stærstan heiður-
inn af þessum verðlaunum. Ég
lít svo á að ég hafi tekið við verð-
launum fyrir hönd borgarstjóra og
þeirra tveggja fyrst og fremst.“
Til þess var tekið hve illa
útleikin miðborg Reykjavíkur
var í upphafi síðastliðins árs af
völdum veggjakrots og slæmrar
umgengni og hve áþreifanlegur
árangur varð af sameinuðu átaki
borgarstarfsmanna og sérstak-
lega sjálfboðaliða við að endur-
reisa hreina ásýnd Laugavegar
og nærliggjandi gatna auk þess
sem nærvera og samstarf mið-
borgarþjóna við lögregluyfirvöld
var talin skipta sköpum og stuðla
að aukinni öryggistilfinningu og
bættri umferðarstjórnun úr mið-
borginni, einkum að næturlagi um
helgar.
Meðal þeirra borga sem veittu
Reykjavíkurborg hvað harðasta
samkeppni voru borgirnar Leeds
sem veitti 12 milljónum punda til
endurreisnar og Belfast á Norður-
Írlandi sem náð hefur gríðarleg-
um árangri í bættri umgengni og
öryggisvörslu.
Að sögn Jakobs gátu fulltrúar
borgarinnar þess við afhending-
una að hér væri fyrst og fremst
verið að verðlauna forgangsröðun
borgaryfirvalda, en bæði borgar-
stjóri og borgarstjórn hefðu sett
málefni miðborgarinnar á oddinn
og áfram yrði haldið með þetta
átaksverkefni í þágu miðborgar-
innar sem bæði er andlit Reykja-
víkur gagnvart Íslendingum og
ferðamönnum fjölmargra þjóð-
landa. jakob@frettabladid.is
Reykjavík leggur Leeds og Belfast
sem miðborg í mestri framför
OKURIBITO Japanska Óskarsverðlaunamyndin verður sýnd á Bíódögum í Háskóla-
bíói.
Sautján myndir verða sýndar á
kvikmyndahátíðinni Bíódagar
sem verður haldin í Háskólabíói
17. apríl til 4. maí á vegum Græna
ljóssins. Opnunarmyndin verður
Me and Bobby í leikstjórn Frið-
riks Guðmundssonar sem fjallar
um samskipti Sæmundar Páls-
sonar og skáksnillingsins Bobbys
Fischer.
Á meðal annarra mynda verður
Man on Wire, sem hlaut Óskarinn
sem besta heimildarmyndin. Hún
fjallar um línudansarann og götu-
listamanninn Philippe Petit sem
framdi „listræna glæp aldarinn-
ar” árið 1974 þegar hann setti vír
á milli tvíburaturnanna og eyddi
svo 45 mínútum í að labba, dansa
og krjúpa á vírnum sér og öðrum
til skemmtunar.
Einnig verða sýndar Okuribito
frá Japan, sem fékk Óskarinn í ár
sem besta erlenda myndin, Froz-
en River, sem hlaut tvær Ósk-
arstilnefningar, Slacker Upris-
ing eftir Michael Moore þar sem
hann heldur fyrirlestra í banda-
rískum háskólum, þýska mynd-
in Die Welle og Two Lovers með
Joaquin Phoenix og Gwyneth
Paltrow í aðalhlutverkum. Önnur
áhugaverð mynd er Gomorra sem
fjallar um innviði ítölsku mafí-
unnar. Hún vann Gullpálmann
á Cannes-hátíðinni og BAFTA-
verðlaunin sem besta erlenda
myndin.
Miðasala á Bíódaga mun fara
fram á Midi.is og þar verður
einnig hægt að nálgast sýning-
ardagskrána í heild sinni.
17 myndir á Bíódögum
> DEKRAR VIÐ BÖRNIN
Uma Thurman óttast að hún dekri
börn sín svo mikið að þau verði
óviðráðanleg þegar þau eld-
ast. Leikkonan sem á dótturina
Mayu, tíu ára, og soninn Levon
Roan, sjö ára, segir móður sína
setja mikið út á uppeldisaðferð-
ir sínar, en Thurman viðurkenn-
ir að hún gefi börnum sínum oft
stórfenglegar gjafir til að reyna að
gleðja þau.
Önnur sólóplata
sellóleikarans
Hildar Guðna-
dóttur, Without
Sinking, og
hennar fyrsta
hjá breska
útgáfufyrir-
tækinu Touch,
er í tólfta sæti
yfir plötur árs-
ins hingað til
á bresku tón-
listarsíðunni
Factmagazine.
Hildur er þekkt
fyrir spila-
mennsku sína
með Múm og Stórsveit Nix Noltes
en sólóferill hennar virðist nú
vera kominn á flug.
„Tilfinningarík og sérlega róm-
antísk sellóplata frá þessum virta
íslenska listamanni þar sem þétt-
ur bassaleikur og rafhljóð sem
rétt heyrist í koma einnig við
sögu frá Jóhanni Jóhannssyni
og Skúla Sverrissyni,“ segir í
umsögninni. „Ekki síðan World of
Echo kom út með Arthur Russell
hefur eins „hefðbundið“ strengja-
hljóðfæri hljómað eins áhrifa-
ríkt.“
Without Sinking var að mestu
tekin upp í Berlín síðasta sumar.
Auk Skúla og Jóhanns spil-
aði faðir Hildar, Guðni Franz-
son, einnig á klarinett í tveimur
lögum á plötunni.
Ein af plötum
ársins til þessa
HILDUR GUÐNA-
DÓTTIR Sellóleikar-
inn fær góða dóma
fyrir sína aðra
sólóplötu, Without
Sinking.
VERÐLAUNUM VEITT VIÐTAKA Jakob Frímann í góðum hópi í London þar sem hann
tók við verðlaunum ATCM fyrir hönd borgarstjóra - verðlaun sem veitt voru fyrir
árangur við endurreisn miðborgar.