Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 2
2 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUMÁL Fimm nauðgunarmál
eru nú til rannsóknar hjá kynferð-
isbrotadeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta staðfestir
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
deildarinnar.
Þessar fimm nauðgunarkær-
ur bárust allar fyrr í þessari viku.
Nauðganirnar sem kærðar hafa
verið áttu sér stað á höfuðborgar-
svæðinu. Ýmist áttu þær sér stað í
síðustu viku eða um helgina. Kon-
urnar sem kærðu eru á aldrinum
átján ára til fimmtugs.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins áttu nauðganirnar sér stað
á veitingahúsum og í gleðskap í
heimahúsum eftir veru á skemmti-
stöðum. Í fjórum tilvikum er einn
gerandi kærður en í einu tilviki eru
allt að fjórir kærðir. Þar er einnig
um að ræða grun um misneytingu
sem þýðir að til dæmis getur verið
um að ræða ölvunarástand eða ann-
marka sem gera það að verkum
að þolandi getur ekki spornað við
verknaðinum.
Öll þessi nauðgunarmál eru enn á
frumstigi hvað varðar rannsókn lög-
reglu á þeim. Í ljósi þess vildi yfir-
maður kynferðisbrotadeildar ekki
tjá sig um efnisleg atriði þeirra.
- jss
Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu:
Fimm nauðganir í rannsókn
FÓRNARLAMB Kynferðisbrotadeild
rannsakar nú fimm nauðgunarmál á
höfuðborgarsvæðinu.
MENNING Fermingarbörnin í
Hafnarfjarðarkirkju hafa í vetur
unnið að glæsilegu mósaíklista-
verki með listakonunni Alice
Olivia Clarke. Verkið heitir Lífs-
ins tré en Alice hannaði verkið
og bjó til stofn trésins og hvert
fermingarbarn bjó til eitt lauf-
blað á tréð.
Alice og börnin hafa staðið í
ströngu við að klára verkið enda
er fyrsta fermingin í kirkjunni á
sunnudag.
Líkt og félagar þess í náttúr-
unni mun tréð vaxa og dafna en
fermingarhópar næstu ára munu
bæta laufblöðum á það.
- sg / sjá Heimili & hönnun
Lífsins tré í Hafnarfirði:
Eitt blað á hvert
fermingarbarn
MÓSAÍKTRÉ Fermingarbörn Hafnarfjarð-
ar kirkju tóku þátt í gerð listaverksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LIST Fimm og hálfs metra há
eftirlíking af Eiffelturninum í
París, sem listamaðurinn Jón
Guðmundsson smíðaði úr 280.000
eldspýtum, hefur verið sett upp í
göngugötu Smáralindar og mun
standa þar fram yfir páska hið
minnsta.
Í tilkynningu frá Smáralind
segir að það hafi tekið listamann-
inn fimm ár að setja turninn
saman. Um mikla nákvæmnis-
vinnu sé að ræða, þar sem turninn
sé í réttum hlutföllum við sjálfan
Eiffelturninn í París. - kg
280.000 eldspýtna listaverk:
Eiffelturninn í
Smáralind
Hluthafafundur Landic Property hf. verður
haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Kringlunni
4–12 í Reykjavík, laugardaginn 4. apríl 2009 nk.
og hefst kl. 11.00.
Dagskrá:
• Stjórnarkjör
• Önnur mál
Stjórn Landic Property hf.
HLUTHAFAFUNDUR
LANDIC PROPERTY HF.
Sigurður, er ekki tímabært að
breyta um nafn á skólanum?
„Nei, skólinn er alltaf ferskur.“
Sigurður Sævarsson er skólastjóri Nýja
tónlistarskólans, sem fagnar þrjátíu ára
afmæli sínu um þessar mundir.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði enn eina
kannabisræktunina í umdæminu
í gærdag. Hún var í Ásahverfi í
Hafnarfirði.
Á fjórða hundrað plöntur
reyndust vera þar inni, og voru
þær allar á lokastigi ræktunar og
nær tilbúnar til vinnslu.
Tveir karlmenn höfðu verið
handteknir vegna rannsókn-
ar málsins þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi. Þeir voru þá
í yfirheyrslu hjá lögreglu. Ekki
hafði verið tekin ákvörðun um
hvort krafist yrði gæsluvarðhalds
yfir þeim eða þeim sleppt að lok-
inni skýrslutöku. - jss
Kannabisræktun í Hafnarfirði:
Meintir rækt-
endur teknir
SVEITARSTJÓRNIR Kristján Svein-
björnsson, sem í desember sagði
af sér embætti forseta bæjar-
stjórnar Álftaness og dró sig í hlé
sem bæjarfulltrúi Álftaneslistans
hefur nú boðað endurkomu sína í
bæjarstjórn. Þetta kemur fram í
bréfi sem Kristján hefur sent bæj-
arfulltrúum. Kristján sagði af sér
í kjölfar lögreglurannsóknar sem
leiddi í ljós að hann stóð á bak við
nafnlausan óhróðurspóst sem birt-
ist á vefsíðu sveitarfélagsins og
fjallaði um eigendur lóðar fram-
an við einbýlishús hans. Kristj-
án segir í bréfinu að brotthvarf
hans hafi ekki skapað frið í bæjar-
stjórninni eins og hann hafi von-
ast eftir. - gar
Bæjarstjórnarforseti sem vék:
Vill snúa aftur í
bæjarstjórnina
FLÓTTAMENN Einn hælisleitendanna
fimm, sem átti að senda til Grikk-
lands í gær, vill gjarnan komast
heim til Albaníu í brúðkaup dótt-
ur sinnar í júní, en vill ekki fara
í gegnum Grikkland og ræða við
þarlend yfirvöld. Hann óttist að
þau hneppi hann í varðhald vegna
þess að hann hafi verið ólögleg-
ur innflytjandi þar. Maðurinn,
sem vill ekki koma fram undir
nafni, biður íslensk stjórnvöld að
tryggja að hann verði ekki áreitt-
ur í Grikklandi, sendi þau hann
þangað. Félagar hans vilja ekki
fara til Grikklands, heldur vera
hér.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráð-
herra kom í fyrrakvöld í veg fyrir
að hælisleitendurnir yrðu sendir
burt. Ráðherra vill bíða upplýs-
inga um aðstæður hælisleitenda
þar ytra, sem hafa verið gagn-
rýndar mjög,
meðal annars
af Flóttamanna-
stofnun Samein-
uðu þjóðanna.
Mennirnir
hafa verið á
Íslandi síðan í
fyrra. Tveir eru
Írakar, tveir
Afganar og einn
frá Albaníu. Þá
átti að senda
aftur á grundvelli upprunareglu
Dyflinnarsamkomulagsins.
Noordin Alazawi er nítján ára
Íraki. Hann segir að honum hafi
verið gert að yfirgefa Grikkland
á sínum tíma.
„Ég á kærustu hér og ef ég má
vera hér þá vil ég vera,“ segir
hann. Noordin er ósáttur við
aðferðir yfirvalda. Í marga mán-
uði hafi hann beðið í Reykjanes-
bæ eftir úrlausn sinna mála. Síðan
hafi honum skyndilega verið til-
kynnt af lögreglunni að hann
þyrfti að fara.
„Pabbi minn var drepinn í Írak
og hryðjuverkamenn þar ætl-
uðu að drepa mig líka. Ég var að
vinna í bandaríska sendiráðinu og
þeir rændu mér og létu fjölskyldu
mína borga mig úr haldi,“ segir
hann. Hann hafi ekkert þangað
að sækja lengur. Systkini hans og
móðir séu nú flóttamenn í Belgíu
og í Sýrlandi.
Haukur Guðmundsson, starf-
andi forstjóri Útlendingastofnun-
ar, segir ákvörðun ráðherra eðli-
lega í því ljósi að í ráðuneytinu
séu til meðferðar tvær kærur um
að fólk hafi verið sent til Grikk-
lands. Ráðuneytið vilji ljúka þeim
málum, áður en fleiri verði send-
ir þangað.
Fyrir ári ráðlagði Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna Evr-
ópusambandsríkjum að senda ekki
hælisleitendur til Grikklands. Var
þetta gert vegna bágra aðstæðna
hælisleitenda þar í landi.
klemens@frettabladid.is,
jse@frettabladid.is
Einn hælisleitenda
vill komast heim
Einn þeirra fimm hælisleitenda, sem átti að vísa til Grikklands í gær, vill fara
heim til Albaníu, en óttast grísk yfirvöld. Hinir vilja ekki fara. Dómsmálaráð-
herra vill bíða upplýsinga um meðferð hælisleitenda í Grikklandi.
NOORDIN ALAZAWI Segist eiga kærustu á Íslandi og vill ekki fara til Grikklands
aftur. Fjölskylda hans sé sundruð um heiminn. Systir hans og móðir séu til dæmis í
Sýrlandi, en bróðir hans í Belgíu. MYND/KRISTJÁN CARLSSON GRÄNZ
HAUKUR
GUÐMUNDSSON
FÓLK Mikil veisla verður í Ráð-
húsinu í Þorlákshöfn í dag til
heiðurs Margréti Ingibjörgu
Halldórsdóttur sem varð eitt
hundrað ára á
miðvikudag-
inn. Að því er
kemur fram á
heimasíðu Ölf-
uss er hún elsti
íbúi sveitarfé-
lagsins. „Mar-
grét er fædd að
Litlu-Löndum
í Vestmanna-
eyjum 25. mars
1909 en á heima
á Mánabraut
16 Þorlákshöfn. Hún dvelur nú á
Dvalarheimilinu að Blesastöðum.
Margrét verður með afmælis-
veislu á laugardaginn í Ráðhús-
inu í Þorlákshöfn og er vinum og
vandamönnum boðið,“ segir á
heimasíðu Ölfuss. - gar
Elsti íbúinn í Ölfusi fagnar:
Hundrað ára
afmæli
EFNAHAGSMÁL Flatar afskrift-
ir skulda yrðu að vera bornar af
ríkissjóði eða erlendum kröfuhöf-
um að fengnu samþykki þeirra.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um starfshóps Seðlabankans um
skuldir heimilanna, sem birtar
voru í gær. Þá segir að fjárhags-
staða hins opinbera leyfi ekki svo
mikla tilfærslu skulda yfir á hið
opinbera, hvorki beint né í gegnum
frekari endurfjármögnun banka-
kerfisins. Slíkar aðgerðir verður
því að fjármagna að miklu leyti
með skattahækkunum eða niður-
skurði ríkisútgjalda.
Samkvæmt niðurstöðu hópsins
yrði kostnaður við 20 prósenta
flata niðurfellingu allra húsnæð-
isskulda um 285 milljarðar króna
að meðtöldum lífeyrissjóðslánum.
Kostnaður við fjögurra milljóna
króna niðurfellingu húsnæðis-
skulda á hvert heimili yrði enn
dýrari, eða um 320 milljarðar
króna sé miðað við áttatíu þúsund
heimili.
Starfshópurinn hefur haldið
áfram að greina gögn um skuldir
og eignir heimila síðan fyrstu
bráðabirgðaniðurstöður voru
birtar hinn 11. mars síðastliðinn.
Við greiningu á áhrifum ofan-
nefndra tveggja aðferða við
afskrift skulda var einungis skoð-
aður heildarkostnaður hverrar
aðgerðar og hvernig afrakstur
þeirra dreifist til ólíkra hópa út
frá eiginfjárstöðu.
- kg
Nýjar niðurstöður starfshóps Seðlabankans um niðurfellingu íbúðalánaskulda:
Fjögurra milljóna niðurfelling dýrari
MARGRÉT
INGIBJÖRG
HALLDÓRSDÓTTIR
STARFSHÓPUR Starfshópur
Seðlabankans um skuldir
heimilanna kynnti nýjar niður-
stöður sínar í gær.
SPURNING DAGSINS