Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 16
16 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
Ef skoðaðar eru kannanir
mánuði fyrir kosningarnar
2003 og 2007 sést að staða
flokkanna getur breyst
aðeins á fjórum vikum.
Í báðum tilfellum dalar
Sjálfstæðisflokkurinn frá
könnunum. Framsóknar-
flokkurinn fær hins vegar
aðeins meira upp úr kjör-
kössunum en kannanir
mánuði fyrr sögðu til um.
Mánuði fyrir kosningarnar 2007
var Sjálfstæðisflokkurinn með
yfirburðastöðu í könnun Frétta-
blaðsins. Rúmlega 43 prósent sögð-
ust myndu kjósa flokkinn. Í kosn-
ingunum sem haldnar voru 12. maí
það ár fékk flokkurinn hins vegar
36,6 prósent atkvæða. Á þessum
mánuði dalaði flokkurinn því um
tæp sjö prósentustig. Mánuði fyrir
kosningarnar 2003 sögðust 39,0
prósent myndu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn en 33,7 prósent greiddu
honum atkvæði sitt í kosningun-
um sem haldnar voru 14. apríl
2003, 5,3 prósentustigum minna
en reiknað var með mánuði áður.
Framsóknarflokkurinn bætir
hins vegar við sig fylgi síðasta
mánuðinn bæði fyrir kosningarn-
ar 2003 og 2007. Í kosningunum
2003 fékk flokkurinn 8,8 prósentu-
stigum meira en könnun mánuði
fyrr hafði gefið til kynna. Þann
14. apríl 2003 sögðust 8,9 prósent
myndu kjósa flokkinn og óx fylgi
hans jafnt og þétt fram að kjör-
degi, þegar 17,7 prósent greiddu
þeim atkvæði sitt. Munurinn var
minni fjórum árum síðar. Þá var
fylgi flokksins 8,6 prósent mánuði
fyrir kosningar en hann hlaut 11,7
prósent atkvæða.
Fylgi Samfylkingar breyttist
nánast ekkert frá könnun Frétta-
blaðsins 14. apríl 2003 til kjör-
dags 10. maí. Í könnuninni mældist
flokkurinn með 31,1 prósent fylgi
og fékk svo 30,9 prósent atkvæða.
Fyrir kosningarnar 2007 bætti
flokkurinn hins vegar við sig 4,5
prósentustigum á þessum fjórum
vikum fyrir kosningar. Fóru úr
22,3 prósenta fylgi í 26,8 prósenta
kjörfylgi.
Vinstri græn styrktu sig aðeins í
aðdraganda kosninganna 2003, um
1,4 prósentustig, en fyrir kosning-
arnar 2007 dalaði fylgið frá því
mánuði fyrir kosningar fram að
kjördegi um 2,4 prósentustig. Bæði
árin var fylgið tveim mánuðum
fyrir kosningar mun hærra.
Frjálslyndi flokkurinn dalaði
hægt og rólega úr 10,5 prósenta
fylgi niður í 7,4 prósenta kjörfylgi
árið 2003. Fyrir síðustu kosningar
tókst flokknum hins vegar að bæta
við sig einu prósentustigi á sama
tímabili; fór úr 5,8 prósenta fylgi
í 7,3 prósenta kjörfylgi.
Af öðrum flokkum bætti Íslands-
hreyfingin við sig einu prósentu-
stigi síðasta mánuðinn fyrir síð-
ustu kosningar, fór úr 2,3 prósenta
fylgi í 3,3 prósenta kjörfylgi. Bar-
áttusamtök eldri borgara féllu hins
vegar úr skaftinu á síðasta mánuð-
inn fyrir kosningar árið 2007 eftir
að hafa mælst með 0,8 prósenta
fylgi mánuði fyrir kosningarnar.
Margt getur breyst á einum mánuði
FRÉTTASKÝRING: Fylgi stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga
FRÉTTASKÝRING
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR
svanborg@frettabladid.is
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins frá kosningum 1999 til 25. mars 2009.
14.apríl 2003Alþingiskosningar 1999 Alþingiskosningar 2003 Alþingiskosningar 200714. apríl 2007
0%
10
20
30
40
50
Baráttusamtök eldri borgara
Fylgi og úrslit kosn-
inga árið 2003
Könnun Fréttablaðsins 14.4.2003
0%
10
20
30
40
8,9
17,7
39,0
33,7
10,5
7,4
31,130,9
7,4
8,8
Ko
sn
in
ga
r
Fylgi og úrslit kosn-
inga árið 2007
Könnun Fréttablaðsins 14.4.2007
0
50
0%
10
20
30
40
Ko
sn
in
ga
r8,6
11,7
43,4
36,6
5,8
7,3
2,3
3,3
22,3
26,8
16,7
14,3