Fréttablaðið - 28.03.2009, Blaðsíða 10
10 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
ATVINNUMÁL Um 130 störf við
sprota- og nýsköpunarfyrirtæki
hafa orðið til á vegum Nýsköpun-
arstofnunar Íslands frá því haust.
Stefnt er að því að 270 til viðbótar
verði til áður en árið er liðið.
Um sjötíu manns hafa fengið
störf við átaksverkefnið Starfs-
orka sem Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og Vinnumálastofnun ýttu
úr vör í janúar síðastliðnum í sam-
vinnu við félagsmálaráðuneyt-
ið og iðnaðarráðuneyti. Sigríður
Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,
segir stefnt að því að alls verði
300 störf til í þessu átaksverk-
efni.
Því er ætlað að hjálpa atvinnu-
lausum við að komast aftur á
vinnumarkað og er þannig háttað
að fyrirtæki sem vinna að nýsköp-
un og þróun geta ráðið til sín fólk
sem skráð er atvinnulaust. Vinnu-
málastofnun greiðir fyrirtæk-
inu þá grunnatvinnuleysisbætur
starfsmannsins ásamt átta pró-
senta mótframlagi í lífeyrissjóð.
Fyrirtækið skuldbindur sig á móti
til að greiða honum samkvæmt
gildandi kjarasamningum í allt
að eitt ár.
„Það er von okkar að eftir þann
tíma sem starfsmaðurinn hefur
unnið í verkefninu verði hann
orðinn það dýrmætur að fyrir-
tækið kjósi að ráða hann,“ segir
Sigríður.
Um 40 manns vinna í tveimur
viðskiptasetrum sem stofnunin
hefur komið á laggirnar í sam-
vinnu við Samtök starfsmanna
fjármálafyrirtækja, Landsbank-
ann og Íslandsbanka.
Þetta eru viðskiptasetrin Torg-
ið sem var opnað í desember síð-
astliðnum í húsnæði Landsbank-
ans í Austurstræti 16 og Kvosin
sem var opnuð í febrúar í hús-
næði Íslandsbanka í Lækjargötu.
Þrettán fyrirtæki starfa í Torginu
en tíu í Kvosinni. Þar vinna marg-
ir fyrrverandi starfsmenn bank-
anna sem misstu vinnuna í kjölfar
bankahrunsins.
Loks segir Sigríður að um 20
manns starfi í átta fyrirtækjum í
frumkvöðlasetrinu Eldey, sem hóf
starfsemi á háskólasvæði Keilis
síðastliðið haust. Flest þessara
fyrirtækja þar vinna að nýsköp-
un í orkuiðnaði. Auk þess rekur
miðstöðin frumkvöðlasetur að
Keldnaholti en þar hafa nú tólf
fyrirtæki aðstöðu.
Aðspurð hvort ekki sé erfitt
fyrir ný fyrirtæki að fóta sig í
þessu árferði segir hún að mun
erfiðara hafi verið fyrir frum-
kvöðlafyrirtæki í góðærinu þegar
þau urðu að keppa um starfsfólk
við fjármálageirann sem borgaði
afar há laun.
Þá hafi fjárfestar líka frekar
freistast til að leggja fjármagn í
hlutabréf en nýsköpun.
jse@frettabladid.is
Góðæri fyrir nýsköpun
Frá falli bankanna hafa um 130 nýsköpunarstörf orðið til hér á landi. Stefnt er að því að 300 til viðbótar verði
til á þessu ári. Kjöraðstæður fyrir frumkvöðlafyrirtæki segir framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar.
Árið 2006 flutti fyrirtækið Flaga
starfsemi sína úr landi. Það hannar
meðal annars svefngreiningarbúnað
sem notaður er til að greina hvort
fólk á við svefnraskanir að etja
eður ei. Sveinbjörn Höskuldsson
verkfræðingur var á meðal þeirra
sem misstu þá vinnu sína og var
útlit fyrir að þekking þeirra færi í
súginn því enginn vettvangur var
fyrir hana hér á landi. Hann og sex
kollegar hans tóku sig saman, settu
sig í samband við Nýsköpunarmið-
stöð Íslands og byrjuðu að hanna
svefngreiningartæki fyrir börn, en
slík tæki voru ekki til á markaði.
„Ég man að við vorum álitnir hálf
skrýtnir að vera frekar að berjast í
þessu fyrir grunnlaun í stað þess að
fara í fjármálageirann þar sem okkur
stóð til boða að vinna fyrir himinhá
laun,“ rifjar Sveinbjörn upp.
Nú hefur þetta nýsköpunarfyr-
irtæki þeirra, Nox Medical, lokið
hönnun á tækinu og samið við
annað fyrirtæki sem mun dreifa því
um allan heim. Tækið kostar um
720 þúsund og talið er að heildar-
markaður sé fyrir um 7.000 stykki
á ári. „Mér skilst það á dreifingar-
fyrirtækinu að þeir ætli sér að ná
nokkuð stórri markaðshlutdeild,“
segir Sveinbjörn. „Það var alveg
ómetanlegt að geta fengið þessa
aðstöðu hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands því það gerði okkur kleift að
einbeita okkur algjörlega að því sem
við gerum best.“
SAGAN AF NOX MEDICAL
130 NÝSKÖPUNAR- OG
FRUMKVÖÐLASTÖRF FRÁ
BANKAHRUNI
Starfsorka 70
Kvosin og Torgið 40
Eldey 20
MEÐ HUGVITIÐ Í HÖNDUNUM Sveinbjörn sýnir Sigríði hér svefngreiningarbún-
aðinn sem er afrakstur af miklu nýsköpunarstarfi. Búnaðurinn er nú á leið á
markað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Tveir karlmenn hafa
verið dæmdir fyrir að smygla
fljótandi kókaíni hingað til
lands frá Hondúras. Annar
þeirra var dæmdur í átján mán-
aða fangelsi og hinn í tólf mán-
aða fangelsi.
Fíkniefnalögreglan hér fékk
upplýsingar frá bandarísku
fíkniefnalögreglunni um að
rommflaska full af kókaínvökva
væri á leið til Íslands með póst-
þjónustunni FedEx.
Lögreglan skipti efninu út
fyrir annan vökva og lögreglu-
maður fór í dulargervi sendils
til viðtakanda flöskunnar. Í kjöl-
farið var viðtakandinn hand-
tekinn ásamt öðrum manni. Úr
vökvanum mátti vinna hálft kíló
af kókaíndufti.
- jss
Tveir karlmenn dæmdir:
Smygluðu fljót-
andi kókaíni
ZERVAS SYRGÐUR Yfir 200 manns,
þar af margir meðlimir Hells Angels
vélhjólagengisins, voru viðstaddir
jarðarför hins 29 ára gamla Anth-
ony Zervas í Sidney í Ástralíu í gær.
Zervas var barinn til dauða í átökum
vélhjólagengja á flugvellinum í Sidney
síðastliðinn sunnudag. Lögregla rann-
sakar nú málið.
Morgunblaðið og mbl.is hefur á að skipa harðsnúnu
liði blaðamanna og ljósmyndara sem hafa sópað til sín
verðlaunum að undanförnu. Blaðamannafélag Íslands
verðlaunar árlega fyrir bestu blaðamennsku ársins og
Virkjanakostir á Íslandi
Ragnar Axelsson
Besta umfjöllun ársins
2008 fyrir umfjöllun um
virkjunarkosti á Íslandi
Virkjanakostir á Íslandi
Önundur Páll Ragnarsson
Besta umfjöllun ársins 2008 fyrir
umfjöllun um virkjunarkosti á Íslandi
Verðlaun fyrir
íþróttamynd ársins
Verðlaun fyrir
skoplegustu mynd
ársins
Verðlaun fyrir mynd í
okknum daglegt líf
Golli
Starfsfólk Morgunblaðsins
sópar að sér verðlaunum
Halldór
Aðalverðla
íslenskra
myndskre
fyrir Krep
ádeilur á h
F
ít
o
n
/
S
ÍA