Morgunblaðið - 19.03.2006, Page 43

Morgunblaðið - 19.03.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 43 UMRÆÐAN Hlíðasmári 15 • 201 Kópavogur • Sími: 585 0100 Guðmundur St. Ragnarsson - Löggildur fasteignasali            DALSEL 27 - ENDARAÐHÚS - OPIÐ HÚS KL. 15-17 Í DAG! Stærð í fermetrum: 174 Fjöldi herbergja: 7 Tegund eignar: Raðhús Verð: 35.4 millj. Lýsing eignar: NÝTT! ENDARAÐH. - 5 SVEFNH.174,3 FM.+ 30 FM.BÍLG. + GOTT LEIKSV. Glæsilegt, mikið endurnýjað og vel skipulagt 3ja. hæða endaraðhús samtals 200 fm. eign í Seljahverf- inu. Falleg eign með mikið útsýni yfir Reykjavík og Snæfellnesið. Húsið var málað að utan árið 2004. 1.HÆÐ: Eldhús sem var nýlega stækkað og nýuppgert. Stofan er sérstaklega rúmgóð, útgengi út á góðar suðvestursvalir. Beikiparket er á flestum gólfum eignar. 2.HÆÐ: Á efri hæðinni eru fjögur góð svefnherbergi öll parketlögð. Hjónaherbergið er með útgengi út á suðvestursvalir og góðum skápum. Þvottahús er á hæðinni. Baðherbergið er nýuppgert, baðkar m/sturtu nýjar hvítar flísar á gólfi og vegg, upphengt klósett með mósaík flísalögðum kassa, falleg ný innrétting undir vaski og spegill yfir, handklæðaofn á vegg. JARÐHÆÐ: Á neðri hæð er mjög rúmgott herbergi og úr því útgengi út í garð, parket á gólfi , sem nýtist vel fyrir ungling, eða sem skrifstofa . Einnig er hægt að útbúa baðherbergi á neðri hæð og leigja herbergið út eða nýta sem gott sérherbergi eða gestaherbergi. BÍLAGEYMSLA: Gott sérstæði í bílgeymslu og með því sér geymsla sem er fyrir utan uppgefna fer- metratölu því er eignin er u.þ.b. 200 fm. að stærð með bílgeymslu. LÓÐ+SAMEIGNLEG LÓÐ:Eigninni fylgir stór lóð fyrir framan og aftan húsið. Mikið af leiktækjum á sameiginlegri barnvænni lóð fyrir Dalselið. Stutt í Ölduselsskóla, leikskóla og í alla þjónustu! Allar nánari upplýsingar veitir: Áslaug Baldursdóttir, sölumaður í síma: 822-9519 Sími 575 8500 Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali Í dag á milli kl. 14-16 verður til sýnis mjög falleg 80 fm 2ja herb. íbúð á 2. h. í lyftuhúsi við Norðurbrú 5 í Garðabæ. Húsið er byggt 2004. Íbúðin skiptist þannig að gengið er inn í hol með fataskáp, eldhúsið er með fallegri eikarinn- réttingu og góðum tækjum, stofan er rúmgóð með suðvestursvölum út af, baðherbergið er flísalagt með baðkari og tengingu fyrir þvottavél og svefnherbergið er með skápum. Það er parket á öllum gólfum nema á baði. Sérgeymsla í kjallara og innangengt í bíla- geymslu. Áhv. 16,2 m. V. 21,9 m. Eiríkur Ingi tekur á móti gestum. OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18 OPIÐ HÚS NORÐURBRÚ 5 - BÍLGEYMSLA SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS Í DAG HÁBERG 14 - BREIÐHOLTI Vel skipulagt 5 herb. 140 fm parhús á tveimur hæðum, neðri hæð 102 fm og efri hæð 38 fm. Eignin er fjögur herbergi, forstofa, gangur, stofa/borðstofa, eldhús, bað- herbergi og geymsla, einnig gott vinnurými á efri hæð. Suðausturgarður út frá stofu. Geymsla fylgir eign við inngang í hús. Upphituð gangstétt að húsi. Vel staðsett með stækkunarmöguleika, stutt í alla þjónustu. Verð 30.900.000. Sveinn Eyland starfsmaður Fasteign.is tekur á móti þér og þínum í dag milli kl. 14 og 16. Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali SVÖLUHRAUN - HAFNARFIRÐI - Sérlega vel staðsett einbýli á einni hæð - Mjög gott 183 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 32,5 fm bílskúr. Húsið er sérlega vel staðsett innarlega í lok- uðum botnlanga með fallegum og skjólsælum garði í mikilli rækt. Við baklóð hússins er óspillt hraunið á tvo vegu en nærvera þess skapar einstaka umgjörð um húsið. Húsið er mjög skemmtilega hannað með stórum stofum og fjórum góðum herbergjum. Verð 43,9 milljónir. Upplýsingar gefur Jón Gretar Jónsson á skrifstofu Húsakaupa eða í síma 840 4049. ÁSTÆÐA þess að við hjónin ákváðum að setjast niður og skrifa um hjónabandið eru greinar sem hjónin Einar Karl Haraldsson og Steinunn Jóhannesdóttir hafa rit- að saman og í sitt hvoru lagi um hjónabönd samkynhneigðra. Það væri of langt mál að kryfja allar þær hugmyndir sem þar koma fram en í stuttu máli þá líta þau svo á að ef Alþingi leyfir samkyn- hneigðum pörum að ganga í hjónaband feli það í sér afkynjun hjónabandsins og jafnvel einhvers konar vanhelgun líka. Það sem okkur þykir hvað undarlegast í málflutningi þeirra hjóna er rök- semdafærsla sem þau hafa sett fram og er einhvern veginn svona: Ef samkynhneigðum pörum verð- ur leyft að ganga í hjónaband breytir það merkingu þess hjóna- bands sem við gengum í svo mikið að rétt væri að spyrja fyrst öll hjón sem nú þegar hafi gengið í hjónaband leyfis þar sem ekki er víst að allir vilji vera í sams konar hjónabandi og samkynhneigðir enda er hjónaband einungis leyfi- legt á milli karls og konu. Þessa túlkun sína á orðinu hjónaband sækja þau beint í Biblí- una sem er gott og gilt en um leið mjög gölluð aðferð því orð Bibl- íunnar tilheyra öðrum tíma og þar er margt að finna sem allir eru sammála um að eigi sér enga rétt- lætingu í nútímanum. Þessi aðferð kallast bókstafstrú og það er okk- ar skoðun að þeir sem bera fyrir sig bókstafstrúarrök séu í raun að klæða sína eigin fordóma eða skoðanir í spariföt vegna þess að þeir þora ekki að segja hvað þeim raunverulega finnst. Hugtakið að koma út úr skápnum hefur verið mikið notað þegar einhver við- urkennir að hann eða hún elski einstakling af sama kyni. Ef fólk er ósátt við hjónaband samkyn- hneigðra þá er eðlileg krafa að viðkomandi komi út úr skápnum með þær skoðanir og rökræði þá afstöðu í stað þess að fela sig á bak við orðagjálfur um sögu hjónabandsins og merkingu þess í Biblíutextum. Einar Karl heldur því fram að með lagabreytingum sé verið að hefja stríð um merk- ingu hjónabandsins. Það stríð er þá löngu hafið því gildi hjóna- bands og merking þess hefur tekið breytingum í gegnum tíðina og ættu þeir sem fylgja Lúter að þekkja það gleggst. Í stuttu og einföldu máli þá mótmælum við því að merking okkar hjónabands breytist við að leyfa samkynhneigðum að giftast. Ef eitthvað er um þetta mál að segja þá er það að leyfa ekki sam- kynhneigðum einstaklingum sem elska hvorn annan að ganga í heil- agt hjónaband gengisfelling á okk- ar hjónabandi. Við mótmælum því að hjónaband okkar sé sett á ruslahaug- ana með þessum hætti. Við verðum stoltari af okkar hjónabandi ef við upplifum það ekki sem forréttindi held- ur sem sameign allra sem eru í sömu sporum og vilja njóta blessunar kirkjunnar. Við gætum valið að vera með hund út í biskupinn, við gætum kosið að mótmæla ríkiskirkju, við gætum hætt okkur í pælingar um merk- ingarfræði texta t.d. Biblíunnar. Kjarni umræðunnar felst hins vegar í þeirri spurningu hvort við viðurkennum í hjarta okkar að samband einstaklinga af sama kyni sé jafn eðlilegt og samband fólks af gagnstæðu kyni. Það er nefnilega svo að ef ekki er efast um þetta þá eru aðrir hlutir ekk- ert mikið að þvælast fyrir manni. Það hefur farið fram hjá okkur að hjónabandið sé hinn ævaforni rammi utan um æxlunarhlutverk mannsins eins og Steinunn heldur fram (sjá grein í Mbl. 21. jan. 2006). Það er nú einhvern veginn þannig að margir hafa verið í hjónabandi án þess að eiga börn sem segir okkur að hjónabandið geti haft annað hlutverk en að við- halda stofninum. Eins hafa margir átt börn án þess að vera í hjón- bandi og þá erum við ekki einu sinni að vísa aftur í tímann eða til annarra menningasvæða. Orðfæri í lagasetningum afkynj- ar okkur ekki. Þegar við göngum í heilagt hjónaband erum við að ját- ast annarri persónu. Þegar ég stend frammi fyrir þeirri spurn- ingu hvort ég vilji eiga Hrein/ Halldóru sem stendur mér við hlið er það ekkert að þvælast fyrir okkur að orðfæri laga sé með þeim hætti að það geti umfaðmað bæði hjón sem eru samkynhneigð og gagnkynhneigð. Hvers kyns hjón? Halldóra Gunnarsdóttir og Hreinn Hreinsson fjalla um hjónabandið ’Þegar ég stend frammifyrir þeirri spurningu hvort ég vilji eiga Hrein/ Halldóru sem stendur mér við hlið er það ekkert að þvælast fyrir okkur að orðfæri laga sé með þeim hætti að það geti um- faðmað bæði hjón sem eru samkynhneigð og gagnkynhneigð.‘ Halldóra Gunnarsdóttir Höfundar eru hjón. Hreinn Hreinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.