Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 69

Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 69 Gildir á öll undankvöld og forkaupsrétt á úrslitakvöld. 2500 kr. Sala hefst Mán. 20.mars kl.16 í Loftkastalanum. tryggðu þér aðgangspassa nroD- kulísurnar 19 ÉG sit í herbergi í „Rúm ogmorgunverðar“-húsi í smá-bænum Thomastown í Suð- austur-Írlandi og hripa þessi orð. Ég og litla fjölskyldan mín erum á tveggja vikna ferðalagi um eyjuna grænu, ætlum að taka nettan rétt- sælis hring, skoða og upplifa. Far- tölvan stendur á rúminu og ég í stól upp við hornið, pínu boginn í baki. Tölvan er tengd í rafmagn, fyrir til- stuðlan straumbreytis, en kerfið hér og á Bretlandseyjum er allt annað. Það er enginn nettenging í bæn- um. Heyrði reyndar af því að eitt hús hér væri nettengt, en tengingin virkaði hins vegar ekki. Það var ver- ið að mála herbergið þar sem lín- urnar eru og þær eru víst í maski eftir það. Textann þurfti ég því að senda frá Cork City, sem er í suðr- inu. Í gær kíkti ég á krána (pöbbinn) sem er á móti gistiheimilinu. Eddie Murpy heitir hann (já, ég veit, þetta er mjög fyndið) og var stofnaður ár- ið 1920. Þrátt fyrir að íbúar hér séu ekki nema 1.700 eru um tuttugu pöbbar í bænum. Thomastown er allsérstakur bær. Í gegnum hann liggur einn af aðalumferðarveg- unum hér í Írlandi, sem er íbúum nokkur þyrnir í augum. Fallegur er hann og „myndrænn“ og hér er lítill listaskóli sem hefur haft nokkur áhrif á hinn almenna bæjarbrag.    Þannig er Thomastown mikilltónlistarbær, dálítil Húsavík- urstemning í gangi. Slatti af hljóm- sveitum starfar í bænum og téður pöbb er að fá orð á sig fyrir að vera eftirsótt vin hér í Írlandi. Hljóm- sveitir í stærri kantinum hafa verið að spila á pöbbnum og hafa slegið af kaupkröfum með það að markmiði að fá að troða upp hér. Innviðir pöbbsins eru í þessum hefðbundna írska stíl. Ofurnotalegt, arinn úti í horni, manni finnst alltaf eins og maður sé í heimsókn hjá ömmu. Gestirnir röðuðu sér flestir í kringum barborðið, sumir slakir á kantinum, aðrir massaslakir í miðj- unni. Hópurinn var í yngri kantinum og barþjónarnir tveir rokkarar, ann- ar þeirra víst gítarleikarinn í helstu hljómsveitinni hér í bænum. Ein- staklega vinalegur og almennilegur náungi. Sá smellti síðan Kid A með Radiohead í græjurnar, og fékk platan að rúlla ótruflað allt til enda. Já, þetta var pínu á skjön einhvern veginn. Miðað við innréttingarnar áttu Dubliners að vera í græjunum, eitthvað sem manni finnst reyndar hæfa öllum írskum krám. Ekki framúrstefnulegt rokk frá Uxavaði. En þar sem ég sat þarna, slakur við arininn með guðaveigarnar Gu- inness í hendinni, fór ég einu sinni sem oftar að hugsa um Radiohead og hversu mikil snilld, hversu mikið þrekvirki þessi plata væri. Ég held að ég hafi ekki átt í fleiri rökræðum um nokkra sveit undanfarin ár og Radiohead. Og þá sérstaklega stuttu eftir að Kid A kom út árið 2000. Hail to the Thief virtist t.d. ekki gera neinum neinn sérstakan skurk. En þegar Kid A kom út var eins og fólk skiptist í tvær fylkingar. Fólk sem dýrkaði OK Computer og varð fyrir vonbrigðum og síðan þeir sem voru yfir sig hrifnir af Kid A og töldu þetta vera toppinn á ferlinum til þessa. Ég er í síðarnefnda flokknum.    Fólki varð ljóst að Radioheadværi alvöru band þegar The Bends kom út árið 1995. OK Compu- ter kom út tveimur árum síðar og lofinu sem var ausið á plötuna þá er með ólíkindum, held að hún hafi ver- ið valin oftar en einu sinni sem besta breska plata sögunnar, þá iðulega af lesendum tónlistartímarita. OK Computer stendur enda fyllilega undir þessu öllu saman, platan er al- gjört meistaraverk. En Kid A er betri. Hún er betri því að aldrei hafa Radiohead, fyrr né síðar, sýnt aðra eins djörfung og hugrekki. Hér var komin hljómsveit sem stóð algerlega með sér og skeytti ekkert um hvað öðrum fannst, hvort heldur sem það var útgáfufyrirtækið eða aðdá- endur. Að fylgja OK Computer eftir með svona „súru“ verki var af mörg- um talið vísvitandi markaðssjálfs- morð. Radiohead hefur hins vegar aldrei verið „heilari“ en á þessari plötu, mögnuð framúrstefna í bland við frábærar lagasmíðar. Eftir því sem lækkaði í glasinu brast á með hverju snilldarlaginu á fætur öðru. Ég var búinn að gleyma því hversu ótrúlega sterk þessi plata er. Radiohead hefur ekki borið sitt barr efir plötuna. Afgangaplatan Amnesiac er brotakennd og Hail to the Thief lítt merkileg. Radiohead sett á sjálfsstýringu. Senn líður að nýrri Radiohead plötu. Ég er spenntur, ég tel að þeir geti þetta vel. Og klár er ég í rökræðuslaginn. Það væri nú ljúft að geta heimsótt Thomastown eftir nokkur ár, verið slakur á kantinum á Eddie Murphy og hlýtt á þriðja meistaraverkið frá Radiohead. Eddie Murphy og Radiohead ’Gestirnir röðuðu sérflestir í kringum bar- borðið, sumir slakir á kantinum, aðrir massa- slakir í miðjunni.‘ Pistlahöfundi varð hugsað til Radiohead á ferð sinni um Írland. arnart@mbl.is AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen eeee S.V. mbl eeee A.G. Blaðið G.E. NFS eee V.J.V. topp5.is eee Ó.H.T. RÁS 2 Magnaður framtíðartryllir með skutlunni Charlize Theron. FREISTINGAR GETA REYNST DÝRKEYPTAR eee V.J.V. Topp5.is eee S.V. MBL***** L.I.B. Topp5.is **** Ó.Ö. DV **** kvikmyndir.is Sýnd með íslensku tali. Hefndin er á leiðinni SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI THE MATADOR kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 16 ára. THE MATADOR VIP kl. 1:40 - 3:50 - 6 - 8:10 - 10:20 LASSIE kl. 2 - 3:50 - 6 AEON FLUX kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára. SYRIANA kl. 8:10 - 10:40 B.i. 16 ára BLÓÐBÖND kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 CASANOVA kl. 6 - 8:10 - 10:20 BAMBI 2 m/Ísl tali kl. 2 - 4:10 Litli Kjúllin m/Ísl tali kl. 2 - 4 LASSIE kl. 12 - 2:10 - 4:20 - 5:50 - 8 THE NEW WORLD kl. 8 - 10:40 B.i. 12 ára THE PINK PANTHER kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 10:10 BAMBI 2 m/Ísl tali kl. 12 - 2 - 4 MUNICH kl. 10 B.i. 16 ára DERAILED kl. 8 B.i. 16 ára LASSIE ER ENGRI LÍK OG ER SÍGILD. FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. MEIRA EN HETJA. GOÐSÖGN. Bleiki demanturinn er horfinn og heimsins frægasta rannsóknarlögregla gerir allt til þess að klúðra málinu… MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.