Morgunblaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
BORGARFERÐ TIL BERLÍNAR
59.900 kr.
INNIFALI‹:
BERLÍN
27. JÚLÍ – 1. ÁGÚST
Njótið Berlínar undir leiðsögn
Hjálmars Sveinssonar sem gjörþekkir
borgina. Í þessari fimm daga ferð
verður farið á alla markverðustu staði
Berlínar. Boðið upp á skemmtilega
siglingu í gegnum borgina, farið á
djasstónleika, kabarett og spennandi
veitingahús. Heilsdagsferð til
Potsdam og Wannsee, staðir sem
eiga sér langa sögu og merkilega.
Gist á Park Inn hótelinu á
Alexanderplatz í hjarta borgarinnar.
Flug með sköttum, gisting
í 5 nætur með morgunverði og íslensk
fararstjórn. Fararstjóri Hjálmar
Sveinsson, dagskrárgerðarmaður
HEIMSBORGIN
GÍFURLEGUR sinubruni varð á
Mýrum í Borgarfirði í gær þegar eld-
ur kviknaði við Snæfellsnesveg og
breiddist hratt út vestur á bóginn í
átt til sjávar og ógnaði bæjum á leið-
inni. Slökkviliðið í Borgarnesi, ásamt
íbúum á svæðinu, barðist í allan gær-
dag og fram á nótt við að verja hús-
eignir á svæðinu en þegar mest var
loguðu miklir eldar í skraufþurri og
þykkri sinunni og mosa á 60 ferkíló-
metra svæði.
Ekki urðu slys á fólki eða skepnum
en 70 kúm á bænum Laxárholti stóð
ógn af eldinum sem var allt í kringum
bæinn. Eldveggurinn var geysihár,
eða allt að 4 metrar og reykjarkófið
var svo þykkt að ekki sást til sólar um
hábjartan daginn. Ein ástæða þess að
eldurinn varð eins magnaður og raun
bar vitni var sú að lítið er beitt á
svæðunum og eldsmatur því gríð-
arlegur. Það voru hins vegar allt að
tólf bújarðir sem fóru undir eldinn að
sögn Guðjóns Kristjánssonar í Skíðs-
holtum, en hann taldi tún hafa bjarg-
ast. Mjög tæpt stóð með björgun
hans eigin býlis en eldurinn átti eftir
10 metra upp að húsunum þegar
tókst að stöðva framrás hans.
Tilgáta um logandi sígarettu
Lögreglan í Borgarnesi fékk til-
kynningu um brunann í gærmorgun
kl. 9 og voru upptök hans við Snæ-
fellsnesveg við bæinn Fíflholt. Lög-
reglan telur að einhver hafi hent log-
andi sígarettu í grasið með þessum
hrikalegu afleiðingum. Búskapur er á
Laxárholti og Ökrum en sumarhús er
í Vogi, auk þess sem búið er á bænum
Skíðsholtum þótt ekki sé þar stund-
aður landbúnaður.
Unnsteinn Jóhannsson bóndi á
Laxárholti sagðist aldrei nokkurn
tíma hafa upplifað annað eins, jafnvel
þótt menn hefðu í gegnum tíðina
brennt sinu á jörðum. „Það er gríð-
arlegur hiti af þessu og við höfum
reynt að verja okkur með haugsugu
og aðstoð slökkviliðs,“ sagði hann.
„Við höfum verið að bleyta mikið í
kringum húsin til að fá ekki eldinn að
þeim. Það er ekki eingöngu hætta af
eldinum heldur reyknum sem gæti
farið inn í fjósið. Vindáttin er hag-
stæð eins og er, norðaustan, en var
mun norðlægari fyrr í dag. Þótt eld-
urinn sé allt í kring hefur reykurinn
ekki lagst yfir bæinn heldur er rétt
yfir honum.“
Í gærkvöldi í ljósaskiptunum var
Unnsteinn ásamt liði sínu á leið að
eldlínunni til að troða niður óbrunnin
svæði með dráttarvélum til að hindra
að reykurinn bærist yfir að bænum.
„Reykurinn var biksvartur og sólin
var eins og eldrauður hnöttur. Það
var dimmt í dag og ég hef aldrei séð
annað eins,“ sagði hann.
Eins og náttúruhamfarir
Að sögn Bjarna Þorsteinssonar
slökkviliðsstjóra í Borgarnesi tókst
að hindra að eldur kæmist í tvö nýleg
íbúðarhús í Skíðsholtum. Líkti hann
ástandinu við náttúruhamfarir og
kvað lítið hægt að gera til að slökkva
eldinn. Eldurinn var það mikill að
hann sást til Akraness og hringdu
íbúar í bænum í slökkvilið til að
spyrja hvað væri að gerast.
Að sögn Guðjóns í Skíðsholtum var
enn 20-30 km langur eldrani um tíu-
leytið í gærkvöld og hafði öllum hugs-
anlegum mannskap verið safnað sam-
an til að hefta eldinn. „Vatnsöflun er
nokkuð góð og vandinn liggur ekki
þar, heldur frekar í því að Flóinn er
frostlaus og við komumst ekki út í
hann á móti eldinum,“ sagði hann.
„En það eru engar byggingar lengur í
hættu. Það skíðlogar þó á 20-30 km
löngum kafla. Ætli það séu ekki átta
til tólf beitarjarðir brunnar. Túnin
hafa sloppið í flestum tilfellum en það
brann alveg heim að bæ hjá okkur.“
Eitt notadrýgsta slökkvitækið sem
sannaði heldur betur gildi sitt í gær
voru öflugar haugsugur sem bændur
beittu gegn eldinum með ágætum ár-
angri. Sameinuðust þeir um nokkrar
haugsugur í einu og færðu þær á milli
þar sem eldurinn brann heitastur.
Við Laxárholt var eldurinn hvað
mestur þegar líða tók á kvöldið og var
farið þangað með flestar haugsug-
urnar og bænum bjargað. „Þær gera
ótrúlega hluti, því með stórum drátt-
arvélum er hægt að komast út í Fló-
ann þar sem ófært er bílum. Haug-
sugurnar gerðu því mjög stóra hluti
og björguðu miklu,“ sagði Guðjón.
Hann taldi ekki ólíklegt að girðingar
væru víða stórskemmdar, hvort held-
ur væru venjulegar girðingar eða raf-
magnsgirðingar.
Gífurlegur sinubruni á Mýrum ógnaði bæjum og brenndi tug jarða á um 60 ferkílómetra svæði
„Reykurinn biksvartur og
sólin eins og eldrauður hnöttur“
!"
#
$
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Hross voru á beit ekki fjarri eldveggnum, en ekki er vitað til þess að þau hafi lent í vandræðum. Búist er við að eldarnir logi áfram í dag.
SLÍKUR var reykurinn frá sinu-
brunanum á Mýrum í gær að skip-
verjar á frystitogaranum Baldvin
Njálssyni GK 400, gömlu Ráninni,
fundu fyrir reyknum lengst úti á
hafi. 26 manna áhöfn er á togar-
anum og sagði Björn Guðmundsson
matsveinn að mistur sæist mjög
greinilega í lofti. „Maður getur rétt
ímyndað sér hvernig Skaftáreld-
arnir hafa verið,“ sagði hann. Skip-
ið var um 20 mílur undan landi á
Faxaflóanum, miðja vegu milli
Reykjaness og Snæfellsness.
Togarasjó-
menn fundu
fyrir reyk
SINUELDUR fór úr böndunum í
Reykholtsdal í gærkvöld og var
unnið hörðum höndum að því að
slökkva hann áður en hann nálg-
aðist trjágróður á bænum Kletti
þar sem er ættarsetur Steingríms
Hermannssonar fyrrverandi for-
sætisráðherra en þar hafði faðir
hans Hermann Jónasson fyrrver-
andi forsætisráðherra hafið skóg-
rækt á árum áður.
Tveir bændur sem leyfi höfðu
til að brenna sinu misstu tök á eld-
inum í gær og að sögn Péturs
Jónssonar slökkviliðsstjóra í
Borgarfjarðardölum logaði eldur
á stóru svæði á afar þurri jörð-
inni. Flytja þurfti vatn langa leið
frá Reykjadalsá. Lið Péturs var
að koma úr öðru brunaútkalli við
Mófellsstaði í Skorradal þegar
það fékk þetta útkall.
Steingrímur Hermannsson lýsti
mikilli furðu sinni á því að mönn-
um skyldi leyft að kveikja í sinu
við aðrar eins aðstæður og voru í
gær. „Mér finnst það alveg fárán-
legt við svona aðstæður að leyfa
sinubruna yfirleitt. Mér skilst að
samkvæmt lögum geti slökkvilið
leyft slíkt ef viðkomandi ábyrgist
stjórn á eldinum. En hver ábyrg-
ist það við svona aðstæður? Það
ætti náttúrlega að banna þetta yf-
irleitt og halda þá ábyrga sem
gera svona lagað.“
Misstu tök á sinu-
eldi í Reykholtsdal