Morgunblaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Ég er sjúkur í
flottar laglínur.“
á morgun
ÚR VERINU
ÍSFIRÐINGARNIR Guðmundur
Guðmundsson og Jón Páll Hall-
dórsson komu færandi hendi í sjáv-
arútvegsráðuneytið í gær og afhentu
Einar K. Guðfinnssyni sjávarútvegs-
ráðherra forláta mynd af fyrsta ís-
lenska vélbátnum, Stanley frá Ísa-
firði. Guðmundur er fyrrverandi
útgerðarmaður og framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins Hrannar hf.
sem gerði út aflaskipið Guðbjörgina.
Jón Páll er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Norðurtangans á Ísa-
firði. Myndin var í eigu Guðmundar
og prýddi skrifstofu Hrannar hf. um
árabil.
Árni Gíslason og Sophus J. Nielsen
höfðu á sínum tíma forgöngu um að
vél yrði sett í Stanley og 25. nóv-
ember 1902 var bátnum siglt fyrir
eigin vélarafli um Pollinn á Ísafirði.
Fjórum dögum eftir reynslusigl-
inguna fór Árni í fyrstu veiðiferðina á
íslenskum vélbáti. Þetta markaði
upphafið að mestu framfarasókn í at-
vinnusögu þjóðarinnar. Í hugum
flestra er vélvæðing í sjávarútvegi og
tilkoma togaranna í upphafi síðustu
aldar tákn iðnbyltingar á Íslandi.
Með henni varð verðmætaaukning í
þjóðarbúskapnum slík, að þær breyt-
ingar sem urðu á samfélaginu í kjöl-
farið, á undraskömmum tíma, eiga
sér vart hliðstæður meðal þjóða. Þeg-
ar litið er til atvinnusögu okkar þá
hlýtur upphaf vélvæðingar þýðing-
armesta atvinnuvegarins að rísa
hæst.
Mikil saga býr í myndinni af Stanl-
ey. Einar K. Guðfinnsson veitti gjöf-
inni viðtöku og þakkaði fyrir þann
hlýhug sem býr að baki gjöfinni.
Vestfirðingar Jón Páll Halldórsson, Einar K. Guðfinnsson og Guðmundur
Guðmundsson með myndina af fyrsta vélbátnum.
Höfðingleg gjöf
TRILLUKARLINN Jón
Trausti Jónsson á neta-
bátnum Gunnari RE,
var að venju brosmildur
er hann var að landa
afla sínum í Reykjavík
nú í vikunni. „Æ, vinur
það var ekki mikill afli í
dag,“ svaraði Jón að-
spurður um aflabrögð.
„Ég er bara með 7 net,
sem ég lagði út af Kjal-
arnesinu, ætli ég sé
ekki með um 100 kíló í
dag. Ég er ekkert að
stressa mig á þessu
enda ekki nema með 7
tonna þorskkvóta. Ég er
í annarri vinnu með
þessu, ég er háseti á
sanddæluskipinu Sóley
og tek mér frí til að ná
þessum kvóta,“ sagði
Jón, „en annars er ég
að hugsa um að selja
kvótann og hætta
þessu.“ Jón sagði að tíð-
arfar hafi verið með
eindæmum leiðinlegt í
vetur og lítið fiskerí, og
ekki hafi hann orðið við
að loðnan hafi gengið
inn á miðin, sem væri
bagalegt þar sem fisk-
inn vantar æti. Morgunblaðið/Alfons
Æ, vinur,
það var
lítið í dag
HOLLVINIR skattgreiðenda, sem
eru nýstofnuð félagasamtök, kynntu
starfsemi sína fyrir almenningi í
Kringlunni í gær.
„Hollvinir skattgreiðenda hafa
það að markmiði að standa vörð um
hagsmuni skattgreiðanda en fjár-
munir þeirra eru afar eftirsóttir af
ýmsum aðilum, þ. á m. marg-
víslegum hollvinasamtökum öðrum.
Málsvarar skattgreiðenda eru mjög
fáir og fyrirferðarlitlir í samanburði
við þá sem telja sig umkomna þess
að krefjast útgjalda af hálfu skatt-
greiðenda í margskonar sérhags-
muna- og gæluverkefni. Með stofn-
un samtakanna Hollvinir
skattgreiðenda er brugðist við þessu
ófremdarástandi,“ segir í frétta-
tilkynningu frá samtökunum.
Markmiði sínu hyggjast Hollvinir
skattgreiðenda ná með tvíþættum
hætti. Annars vegar með því að berj-
ast gegn ásókn hins opinbera í fjár-
muni fólksins í landinu og hins vegar
með því að berjast gegn hvers konar
sóun á þeim fjármunum sem heimtir
hafa verið af skattgreiðendum í
krafti valdheimilda hins opinbera.
Hollvinir skattgreiðenda
ræddu við skattgreiðendur
Morgunblaðið/RAX
Gunnar Þórðarson ræðir um
ferilinn og áhrifavaldana í við-
tali við Bergþóru Jónsdóttur.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Hákon Örn Atlason, 27 ára, í 3 ára
fangelsi fyrir m.a. hættulega lík-
amsárás með hafnaboltakylfu og
fyrir ofbeldis- og líflátshótanir í
garð lögreglufulltrúa og fjölskyldu
hans. Maðurinn var einnig dæmd-
ur til að greiða manninum, sem
hann réðst á, rúma 1 milljón króna
í miskabætur. Héraðsdómur Norð-
urlands eystra hafði áður dæmt
ákærða í 18 mánaða fangelsi og
var sú refsing þyngd í Hæstarétti.
Ákærði var sakfelldur fyrir al-
varlega líkamsárás á þjóðveginum
í Öxnadal í ágúst 2004 með því að
slá annan mann eitt eða fleiri högg
í höfuðið með hafnaboltakylfu. Sá
sem fyrir höggunum varð höfuð-
kúpubrotnaði og fékk heilablæð-
ingu og tapaði heyrn á vinstra
eyra. Hæstiréttur segir, að Hákon
Örn hafi neitað að hafa barið hinn
manninn með kylfunni í höfuðið,
en framburður hans hjá lögreglu
og fyrir dómi hafi verið talinn
ruglingslegur og mótsagnakennd-
ur og því í heild ekki trúverðugur.
Þóttu ummæli, sem vitni höfðu eft-
ir Hákoni Erni bæði um fyrirætlan
hans fyrir atburðinn og um at-
burðinn sjálfan eftir hann, benda
til sakar hans. Þá taldi Hæstirétt-
ur sannað að hafnaboltakylfa hafði
verið flutt á staðinn að ósk Há-
kons.
Ákærði var að auki fundinn sek-
ur um aðra líkamsárás og fyrir að
hafa hass í fórum sínum. Þá var
hann fundinn sekur um brot gegn
valdstjórninni með því að hafa hót-
að lögreglumanni lífláti. Ákærði
hafði verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald í kjölfar líkamsárásarinn-
ar á Öxnadalsheiði og þegar lög-
reglumaður og fangavörður
kynntu honum úrskurðinn brást
hann mjög illa við, henti frá sér af-
riti því sem honum var afhent,
rauk til og sparkaði í klefahurð og
sagði að þegar hann yrði laus
myndi hann fara í næstu holu og
finna sér vopn og ganga frá lög-
reglumanni.
Þessar hótanir margítrekaði
hann á næstu dögum.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Ingibjörg Benediktsdóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólaf-
ur Börkur Þorvaldsson. Verjandi
var Hilmar Ingimundarson hrl. og
sækjandi Ragnheiður Harðardóttir
vararíkissaksóknari.
3 ára fangelsi fyrir hættu-
lega líkamsárás og hótanir