Morgunblaðið - 31.03.2006, Side 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
Fjöldi gómsætra osta
á Matur 2006 í Fífunni
um helgina.
Komdu og smakkaðu!
UPPSAGNIR sjálfstætt starfandi
hjartalækna á samningi við Trygg-
ingastofnun ríkisins taka gildi frá
og með morgundeginum, 1. apríl.
„Samninganefnd Læknafélags
Reykjavíkur var boðuð á fund sl.
þriðjudag en þeim fundi var aflýst
með 20 mínútna fyrirvara. Ég hef
ekkert heyrt í fulltrúum Trygg-
ingastofnunar eða samninganefnd-
ar heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins síðan þá. Ég veit
ekki hvað þeir eru að hugsa. Við lít-
um svo á að boltinn sé hjá þeim og
höfum verið að undirbúa hvernig
við höldum áfram að sinna okkar
sjúklingum utan samnings. Þjón-
ustan verður algerlega óbreytt af
okkar hálfu,“ segir Þórarinn
Guðnason, formaður Félags sjálf-
stætt starfandi hjartalækna.
Sjálfstætt starfandi hjartalækn-
ar sögðu upp samningi við TR um
síðustu áramót og taka uppsagn-
irnar gildi 1. apríl.
Náist ekki samningar verða
sjúklingar að greiða allan kostnað
við komur til hjartalækna en TR
hefur að meðaltali greitt um tvo
þriðju af kostnaðinum.
„Greiðslufyrirkomulagið breyt-
ist,“ segir Þórarinn. „Við hættum
að taka að okkur að vera milliliður
við Tryggingastofnun ríkisins og
fyrirkomulagið verður rétt eins og
hjá tannlæknum, við tökum við
fullri greiðslu hjá sjúklingunum en
það er ekki á okkar ábyrgð hvort
eða hvernig Tryggingastofnun tek-
ur á endurgreiðslum. Við munum
áfram veita öllum fulla þjónustu en
verðum þá að innheimta sam-
kvæmt gjaldskránni.“
Þórarinn segir að sjálfstætt
starfandi hjartalæknar geti ekki
unnið eftir þeim samningi sem í
gildi hefur verið. Í nóvember og
desember á síðasta ári hafi hjarta-
læknar í raun þurft að standa
straum af stærstum hluta kostn-
aðar við meðferð hjartasjúkl-
inganna.
„Augljóslega geta hjartalæknar
ekki tekið á sig skuldbindingar TR
á þennan hátt til frambúðar,“ segir
hann.
Vaxandi eftirspurn
„Vandinn er til kominn vegna
þess að einingar í samningnum
vegna hjartalækninga eru allt of
fáar og kláruðust í lok október.
Þegar einingarnar eru búnar eiga
sjúklingarnir samkvæmt samn-
ingnum að fá þjónustu áfram en
læknarnir verða að veita Trygg-
ingastofnun frá 50–100% afslátt.
Það sem eftir er dugir ekki fyrir
launa- og rekstrarkostnaði hjá
okkur.“
Þórarinn segir að eftirspurn eft-
ir þjónustu hjartalækna fari ört
vaxandi af ýmsum ástæðum, m.a.
vegna hærri meðalaldurs þjóðar-
innar og þess að fleiri lifa með
hjartasjúkdóma vegna bættrar
meðferðar. Einnig hafi aðsóknin
aukist eftir að ýmsir hafi í fjölmiðl-
um hvatt fólk til þess að fara í skoð-
un og eftirlit hjá hjartalæknum til
að koma í veg fyrir ótímabær
dauðsföll. Í mörgum tilvikum hafi
þetta orðið til þess að sjúkdómar
hafa uppgötvast og verið með-
höndlaðir í tíma.
Uppsagnir samnings hjartalækna við Tryggingastofnun ríkisins taka gildi á morgun
Sjúklingar greiða fullt
gjald eftir 1. apríl
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
SENDINEFND bandarískra stjórnvalda
kom hingað til lands í gær og mun í dag
eiga fund með íslenskum embættismönn-
um til að ræða hvernig
vörnum Íslands verði
háttað í framtíðinni.
Alls eru 26 menn í
bandarísku sendinefnd-
inni, en formaður nefnd-
arinnar er Carol van
Voorst, sendiherra
Bandaríkjanna á Ís-
landi.
Nefndarmenn eru frá
bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu, varnarmálaráðuneytinu og
höfuðstöðvum Evrópudeildar Bandaríkja-
hers í Stuttgart.
Þeir, sem fara fyrir nefndinni, eru Mark
Pekala vara-aðstoðarutanríkisráðherra,
James Townsend sem fer fyrir NATO-
samstarfi í varnarmálaráðuneytinu, Noel
Preston, flotaforingi í bandaríska flotanum
og yfirmaður bækistöðva flotans í Evrópu,
Richard Mills, hershöfðingi og aðstoðarað-
gerðastjóri Evrópuherstjórnar Bandaríkj-
anna og Thomas Coon, hershöfðingi í Evr-
ópuherstjórn Bandaríkjanna.
Fundurinn sem hefst klukkan hálf tíu í
dag, fer fram í utanríkisráðuneytinu en
ekkert liggur fyrir um hvað hann muni
standa lengi. Er þetta fyrsti viðræðufund-
ur Íslands og Bandaríkjanna frá því
Bandaríkjaforseti tilkynnti íslenskum
stjórnvöldum 15. mars sl. að herþotur og
þyrlubjörgunarsveit yrðu kallaðar á brott
frá Keflavíkurflugvelli.
Boðar öflugra varnarsamstarf
Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, boðar öflugra varn-
arsamstarf við Íslendinga í grein í Morg-
unblaðinu í dag. Segir Burns að
Bandaríkjamenn hlakki til að setja fram
skoðanir sínar í viðræðunum, sem hefjast í
dag, og heyra milliliðalaust umleitanir og
tillögur Íslendinga.
„Yfirlýsingin frá því fyrr í þessum mán-
uði, um að Bandaríkin ætli að hætta því
verklagi að hafa varanlegan herafla á Ís-
landi, breytir ekki þessari samvinnu og
sameiginlega markmiði,“ segir Burns í
grein sinni. | Miðopna
Viðræður
um varnar-
mál í dag
Nicholas Burns
Á MORGUN mun hópur nemenda úr Mennta-
skólanum í Kópavogi standa fyrir fatamarkaði
í sjálfboðamiðstöð Rauða kross Íslands í
Hamraborg 11 en þetta er liður í tveggja ein-
inga áfanga um sjálfboðastarf í skólanum. Þar
verða notuð föt seld á vægu verði en ágóðinn
af markaðnum mun renna til götubarna í Mós-
ambík.
Að sögn Fanneyjar Karlsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Kópavogsdeildar RKÍ, er þetta
í fyrsta skipti sem slíkur áfangi er kenndur í
framhaldsskóla á Íslandi, en auk fatamark-
aðarins hafa nemendurnir tekið þátt í öðru
sjálfboðaliðastarfi, s.s. stuðningi við aldraða
og geðfatlaða ásamt því að starfa með ungum
innflytjendum.
Eyja Drífa Ingólfsdóttir og Eggert Þórberg-
ur Gíslason eru á meðal nemenda sem taka
þátt í verkefninu og aðspurð hvers vegna þau
hefðu valið þennan áfanga sagði Eyja að hún
hefði áður tekið þátt í sjálfboðaliðastarfinu en
Eggert hafði langað til að kynnast því. Er þau
voru spurð um úrvalið á fatamarkaðnum mátti
heyra að það yrði verulegt. Meðal þess sem
verður á boðstólum er barnaföt, dragtir, skór,
leðurjakkar og snjógallar ásamt fjölmörgu
öðru. Mögulegt verður að prútta.
Morgunblaðið/ÞÖK
Nemendur í MK safna fyrir götubörn í Mósambík
♦♦♦
ÍSLANDSPÓSTUR þarf ekki að
greiða Landsbankanum skaðabætur
vegna rúmlega 2 milljóna kr. fjár-
tjóns sem Landsbankinn varð fyrir
þegar starfsmaður Íslandspósts stal
peningasendingu í vörslu fyrirtæk-
isins sumarið 2003. Þetta kemur
fram í úrskurði úrskurðarnefndar
fjarskipta- og póstmála frá í gær.
Felldi nefndin þar með úr gildi
ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn-
unar (PFS) sem taldi Íslandspóst
ábyrgan.
Starfsmaðurinn hafði stolið nær 6
milljónum kr. í erlendum gjaldmiðli
og fannst megnið af fénu heima hjá
honum en hann hafði þó eytt um 2
milljónum króna. PFS úrskurðaði
Landsbankanum í hag í desember
2005 og kærði Íslandspóstur þá
ákvörðun til nefndarinnar. Taldi hún
að ekki væri hægt að fullyrða að
tjónið hefði verið afleiðing af eðlileg-
um verkháttum né að Íslandspósti
hefði átt að vera ljós sú áhætta sem
fylgdi því að starfsmaðurinn kynni
að haga sér á þennan hátt. Það hefði
ekki verið hluti af verksviði þessa
starfsmanns að sendast með pen-
inga. Vissulega hefði tjónið orðið
innan vinnutíma en væri þó ekki þess
eðlis að Íslandspóstur hefði mátt bú-
ast við slíkri hegðun starfsmannsins.
Þarf ekki að greiða skaðabætur
vegna þjófnaðar starfsmanns
OLÍUFÉLAGIÐ ákvað hækkun á eldsneyti
í gær. Lítrinn af bensíni hækkar um 2 krón-
ur en lítrinn af dísil- og gasolíu hækkar um
1 krónu. Eftir breytinguna er algengasta
sjálfsafgreiðsluverð á 95 oktana bensíni á
stöð með fullri þjónustu á höfuðborgar-
svæðinu 119,40 krónur og á dísilolíu 115,50
krónur. Verðið er nú orðið álíka hátt og það
var hæst á síðasta ári, en það fór í 119 kr í
ágúst í fyrra.
Eldsneyti
hækkar í verði