Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR í öldungadeild
Bandaríkjaþings ræða nú frumvarp
þar sem kveðið er á um hertar
reglur um ólöglega innflytjendur.
George W. Bush forseti er andvíg-
ur þeim flokkssystkinum sínum
sem vilja herða reglurnar og legg-
ur til málamiðlun. Ýmsir repúblik-
anar vilja hins vegar auka réttindi
ólöglegra innflytjenda sem eru allt
að 12 milljónum. Andstæðingar
hertra reglna benda á að ólöglegir
innflytjendur séu afar mikilvægir
fyrir efnahag landsins, þeir taka
gjarnan illa launuð störf sem fáir
Bandaríkjamenn vilja sinna.
Bush forseti notaði nýlega tæki-
færið við athöfn þar sem tugir
nýrra ríkisborgarara sóru í Hvíta
húsinu eið að stjórnarskránni og
sagði að innflytjendur hefðu auðg-
að Bandaríkin og þjóðin fagnaði
þeim. Samfélagið vildi fremur ýta
undir innflutning en amast við hon-
um.
Bush vill að að margir ólöglegir
innflytjendur fái tímabundið land-
vistar- og atvinnuleyfi og jafnframt
að þeir geti á endanum, ef þeir
standist kröfur, fengið ríkisborg-
ararétt. Dómsmálanefnd öldunga-
deildarinnar samþykkti á mánudag
með 12 atkvæðum gegn sex tillögu
um fyrirkomulag þar sem ólöglegir
innflytjendur gætu orðið vinnu-
gestir (e. guestworkers). Geta þá
ólöglegir innflytjendur greitt sekt
og, að því tilskildu að þeir séu með
hreint sakavottorð, sótt um leyfi til
að dvelja og starfa í landinu í þrjú
ár. Fjórir repúblikanar og átta
demókratar studdu tillöguna, and-
stæðingarnir voru allir repúblik-
anar.
Innflytjendur mótmæla
Málið er mikið hitamál vestra og
um síðustu helgi efndu stuðnings-
menn ólöglegra innflytjenda, sem
langflestir eru frá Mexíkó og fleiri
ríkjum Rómönsku Ameríku, til
fjöldafunda gegn frumvarpinu. Alls
eru um 14% Bandaríkjamanna, um
40 milljónir manna, frá löndum
Rómönsku Ameríku og ljóst að
þeir geta haft mikil áhrif í kosn-
ingum, einkum í suðvestanverðu
landinu þar sem þeir eru flestir.
Kosið verður um öll sætin í full-
trúadeild þingsins, þriðjung sæta í
öldungadeildinni og mörg ríkis-
stjóraembætti í haust.
Hins vegar eru margir Banda-
ríkjamenn mjög ósáttir við að fólk
geti dvalið með ólöglegum hætti í
landinu og jafnvel notið ýmissa
réttinda. Fulltrúadeildin samþykkti
í desember frumvarp sem kveður á
um að ólöglegir innflytjendur skuli
vera taldir glæpamenn. Einnig að
vinnuveitendur þeirra skuli greiða
háar sektir komist upp um athæfið.
Í tillögunni er kveðið á um
skyldu vinnuveitenda til að hafa
samband við heimavarnaráðuneytið
og ganga úr skugga um að útlend-
ingar sem þeir ráða hafi tilskilin
leyfi, séu ekki ólöglegir í landinu.
Einnig að sektir sem þeir greiða
sem laumast inn í Bandaríkin verði
hækkaðar og refsingar til handa
þeim sem koma aftur inn í landið
eftir að hafa verið vísað burt verði
þyngdar.
Afstaða Bush ekki
vinsæl meðal repúblikana
Innflytjendamálin voru efst á
baugi á leiðtogafundi þeirra Bush,
Vicente Fox, forseta Mexíkó, og
Stephens Harper, forsætisráðherra
Kanada, í Cancun á föstudag en
um mikið hagsmunamál er að ræða
fyrir Mexíkó-menn, eins og gefur
að skilja, í ljósi þess hversu mikill
straumur fólks er þaðan og til
Bandaríkjanna. En áætlað er að af
ólöglegum innflytjendum í Banda-
ríkjunum séu um sex milljónir frá
Mexíkó.
Bush ítrekaði á fundinum þann
vilja sinn, að innflytjendum verði
gert kleift að fá landvistar- og at-
vinnuleyfi í Bandaríkjunum. Virt-
ust þeir Fox vera á einu máli um
að mikilvægt væri að fyrirbyggja,
að Bandaríkjaþing samþykkti end-
anlega frá sér innflytjendalög í lík-
ingu við þau sem fulltrúadeildin
samþykkti í desember.
Með afstöðu sinni er Bush hins
vegar að stuðla að klofningi í
Repúblikanaflokknum á kosn-
ingaári, en sem fyrr segir skiptast
menn þar mjög í tvö horn hvað
þessa hluti varðar: aðilar í við-
skiptalífinu vilja gjarnan hafa að-
gang að ódýru vinnuafli, á meðan
aðrir repúblikanar vilja taka upp
harðari stefnu gagnvart ólöglegum
innflytjendum.
Málið hefur verið til umræðu í
öldungadeild Bandaríkjaþings í
vikunni en nokkrir repúblikanar úr
fulltrúadeildinni fóru á fimmtudag
afar hörðum orðum um það frum-
varp, sem dómsmálanefndin slagði
blessun sína yfir á mánudag. Og
Bush forseti var ekki undanskilinn
gagnrýni þeirra. „Hann hefur eng-
ar áhyggjur af því að fá kjósendur
upp á móti sér, hann þarf ekki að
berjast aftur fyrir endurkjöri,“
sagði Tom Tancredo, fulltrúadeild-
arþingmaður frá Colorado, sem
einna helst hefur beitt sér í málinu.
„Ég vildi óska að hann hugsaði
meira um hagsmuni flokksins síns
og ég vildi auðvitað líka óska þess
að hann hugsaði meira um hags-
muni lands og þjóðar.“
AP
Innflytjendur frá Rómönsku Ameríku mótmæla afstöðu fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í innflytjendamálum í Nashville í
Tennessee í vikunni.
Hart deilt um ólöglega inn-
flytjendur í Bandaríkjunum
Málamiðlun samþykkt
í dómsmálanefnd
öldungadeildar en
repúblikanar klofnir
! "#! $
% & &"'! ()*+ '' ,-
' ' . !!" %
/01
21
031
441
561
0/1
!
"
61
!
/1
#
!
051
$
071
%
041
&'
81
(& ))!*)+
&'
$
,
- .
/0!+
!
,
-
-
12
.
9 !
#$$%
Eftir Kristján Jónsson
og Davíð Loga Sigurðsson
Framtíðarsjóður
Ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga
Engin lágmarksinnborgun
Verðtryggður
Bundinn til 18 ára aldurs
Kjör haldast óbreytt þótt innstæða sé ekki
tekin út við 18 ára aldur
Vildarviðskiptavinur Sparisjóðsins sem gefur
fermingarbarni 5.000 króna gjafabréf í Framtíðar-
sjóð Sparisjóðsins eða meira fær 2.000 króna
viðbót við gjöfina frá Sparisjóðnum. Gefðu
gjöf sem stækkar í pakkanum!
Gjöfin vex í
pakkanum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
1
6
7
1
3
5.000 kr. verða 7.000 kr.
Kíktu á spar.is og reiknaðu út ávöxtun á
sparnaði í Framtíðarsjóði Sparisjóðsins.