Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 45
UMRÆÐAN
Í LEIÐARA Morgunblaðsins
föstudaginn 17. mars sl. er öryggi
borgarbúa gert að umtalsefni. Þar
er réttilega vakin athygli á þeim
vanda sem skapast hefur og felst
m.a. í því að friðsamir íbúar borg-
arinnar verða of oft fyrir alvarlegu
aðkasti af hálfu ógæfu-
samra einstaklinga
sem ryðjast fram með
ofbeldi. Ástæðuna fyrir
þessu ástandi má lík-
lega oftast rekja til
misnotkunar á vímu-
efnum og því ekki
mögulegt að fást við
málið án þess að taka
tillit til forvarnastarfs.
Athygli vekur hins
vegar að sjónarmið
leiðarahöfundar eru
býsna mótsagnakennd
þegar kemur að afstöð-
unni til forvarna. Á einum stað segir
höfundur að forvarnir gegn fíkni-
efnaneyslu og glæpum henni tengdri
séu góðra gjalda verðar. Síðar í
greininni kveður við annan tón og er
höfundurinn þar orðinn allherskár
og æstur í úrræði lögregluríkisins,
heldur því fram að forvarnir séu
tímafrekar og skili oft takmörkuðum
árangri.
Úrræði þau sem leiðarahöfundur
telur að skili okkur betri og öruggari
borg felast fyrst og fremst í þyngri
refsingum og sýnilegri lögreglu.
Vissulega þarf að ræða og end-
urmeta þann refsiramma sem dæmt
er eftir þegar glæpir eiga sér stað og
vissulega er virk og sýnileg lögregla,
ekki síst hverfislögregla í samstarfi
við íbúana, hið besta mál. Vandinn
verður hins vegar ekki leystur nema
að hluta til með þessum hætti.
Það eru engin ný sannindi að stór
hluti glæpa, s.s. ofbeldisbrot, inn-
brot og þjófnaðir, á orsakir sínar í
neyslu ólöglegra vímuefna þar sem
sjúkir einstaklingar eiga í hlut. Við
getum losað okkur við vandann af
götunni með því að dæma alla til
refsivistar til lengri eða skemmri
tíma en það leysir ekki þann brýna
vanda sem nú steðjar að íbúum
borgarinnar. Jú, við værum laus við
þá af götunni, en einhvern tíma
koma þeir aftur og eru þeir þá ein-
hverju skárri eftir refsivistina? Það
kæmi mér ekki á óvart að þeir yrðu
jafnvel skemmdari.
Ráðaleysið í meðferðarúrræðum
og þá ekki síst meðferðarúrræðum
barna og unglinga er sá vandi sem
brýnast er að takast á við. Af störf-
um mínum á meðal grunnskólanema
undanfarin ár hef ég því miður of oft
fengið að kynnast dapurlegum ör-
lögum þeirra sem leiðst hafa út á þá
vafasömu braut sem fylgir neyslu
vímuefna. Oftar en ekki hafa þessir
einstaklingar þurft að bíða vikum og
jafnvel mánuðum sam-
an til þess að fá við-
unandi meðferð-
arúrræði. Á meðan á
þessari bið stendur,
sem sjaldnast er vitað
fyrirfram hversu löng
er, eru heimilin í upp-
námi, skólaganga í mol-
um og þessir ungu ein-
staklingar sökkva æ
dýpra ofan í fen ógæf-
unnar.
Þegar ungt fólk,
jafnvel á grunn-
skólaaldri, á í hlut
reynir á að koma þeim sem fyrst til
aðstoðar, því hver vika og í raun
hver dagur sem líður án þess að
meðferðarúrræði séu til staðar get-
ur skipt sköpum í lífi þeirra og sam-
borgara þeirra. Það sem er brýnast í
þessum málaflokki er að koma í veg
fyrir að við sjáum á eftir fleira ungu
fólki inn í þennan frumskóg ógæf-
unnar.
Ég get tekið heilshugar undir með
leiðarahöfundi þegar hann segir það
vera mikið hagsmunamál fyrir borg-
arbúa að ástandið verði bætt. Það
verður hins vegar að gæta hófs í
refsigleðinni því ekki verður tekið á
þessum málum með lögregluvaldinu
einu saman. Það er ekki bara brýnt
hagsmunamál borgarbúa að losna
við þessa einstaklinga af götunni,
það er brýnt hagsmunamál allra að
viðunandi meðferðarúrræði séu fyrir
hendi um leið og vandinn kemur
upp.
Og ég spyr: Mætti ekki færa fjár-
magn einhvers staðar til í borginni
svo koma megi börnum og ungling-
um til hjálpar án þess að þau þurfi
að bíða vikum saman í óvissu, skað-
leg sjálfum sér og samborgurum sín-
um? Athugum það.
Óreiðan í borginni
Jóhann Björnsson skrifar
um borgarstjórnarmál
’Ráðaleysið í meðferð-arúrræðum og þá ekki
síst meðferðarúrræðum
barna og unglinga er sá
vandi sem brýnast er að
takast á við.‘
Jóhann Björnsson
Höfundur skipar 8. sætið á V-lista
Vinstri grænna í Reykjavík.
FÁTT virðist nú geta komið í veg
fyrir að íslenzka Rík-
isútvarpið verði gert
að hlutafélagi á því
þingi sem nú stendur
yfir. Það væri mjög
mikið óheillaspor, –
ekki vegna þess að
hlutafélög þurfi alltaf
að vera vond í sjálfu
sér, heldur vegna hins,
að hér á landi hefur
hlutafélagavæðing rík-
isfyrirtækja nær alltaf
verið undanfari einka-
væðingar – og sölu,
síðar.
Í fyrstu grein frumvarps rík-
isstjórnarinnar um þetta efni stend-
ur að vísu: „Sala félagsins eða hluta
þess, sameining þess við önnur félög
eða slit þess er óheimil.“
En trúir nokkur lifandi maður
slíkri yfirlýsingu? Alveg áreiðanlega
ekki þeir sem muna alla svardagana
og yfirlýsingarnar sem gefnar voru
þegar var verið að gera Landssíma
Íslands að hlutafélagi. Og hvers
vegna að leggja þessa ofuráherzlu á
hlutafélagavæðinguna, en hafna öll-
um öðrum lausnum á „málefnum
RÚV“, ef ætlunin væri ekki einmitt
sú að opna leiðina til einkavæðingar,
ef ekki nú, þá síðar? Auðvitað. En
jafnvel þótt þessari yfirlýsingu væri
trúað, sem fáir munu raunar gera,
þá nægir það ekki til. Jafnvel þótt
þessi ríkisstjórn nái
ekki svo háum aldri hér
eftir, að hún fái tíma til
þess að einkavæða og
selja Ríkisútvarpið, þá
er það ekki heldur nóg.
Með því að gera
stofnunina að hluta-
félagi er verið að opna
dyrnar í hálfa gátt. Þá
gefst íslenzkum pen-
ingaöflum, gömlum og
nýjum, kærkomið tæki-
færi til þess að troða
fætinum á milli stafs og
hurðar og hremma
þennan bita, sem þá hefur svo lengi
dreymt um.
Brá mönnum ekkert í brún, þegar
það fréttist, að nýríkur auðmaður
hefði ætlað að kaupa heilt dagblað,
til þess eins að leggja það niður? Slík
geta örlög svokallaðra „frjálsra“
fjölmiðla hæglega orðið.
Sú ríkisstjórn sem nú situr getur
ekki, fremur en aðrar ríkisstjórnir,
stýrt gerðum þeirra stjórna sem eft-
ir hana munu komast til valda. Þess
vegna ætti hún ekki undir neinum
kringumstæðum að ýta undir neinar
þær athafnir komandi ríkisstjórna,
sem hún sjálf kynni að hafa van-
þóknun á. Ef þessi ríkisstjórn vill
ekki selja Ríkisútvarpið – sem hún
segist ekki vilja – þá ætti hún ekki
heldur að auðvelda öðrum vald-
höfum slíkan verknað.
Dettur viti bornum mönnum það
virkilega í hug í fullri alvöru að
stuðla að því nú með orði sínu og at-
kvæði að ein merkasta menning-
arstofnun íslenzku þjóðarinnar,
sjálft Ríkisútvarpið, hljóti þau örlög
að vera einkavætt og að lenda – nú
eða síðar – á markaðstorgi brasks-
ins, þar sem engu er eirt, – verða bit-
bein fjármálaafla? Slíku er erfitt að
trúa.
Og mikill meirihluti íslenzkra
kjósenda vill það áreiðanlega ekki.
Framtíð Ríkisútvarpsins
Valgeir Sigurðsson fjallar um
framtíð Ríkisútvarpsins ’… að ein merkastamenningarstofnun
íslenzku þjóðarinnar,
sjálft Ríkisútvarpið,
hljóti þau örlög að vera
einkavætt og að lenda –
nú eða síðar – á markaðs-
torgi brasksins …‘
Valgeir Sigurðsson
Höfundur er varaformaður
Hollvinasamtaka RÚV.
Sigur lífsins - Á slóðum Skaftárelda
Dagskrá á Kirkjubæjarklaustri í dymbilviku
og um páska 2006
13. apríl, skírdagur
21.00 Kvöldmessa í Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar
Prestur sr. Elínborg Gísladóttir
14. apríl, föstudagurinn langi
10.00 Á slóðum Skaftárelda, í Minningarkapellu
sr. Jóns Steingrímssonar
Inngangur: Jón Helgason
Erindi : „Jón Steingrímsson og þróun sjálfsmyndar
á Íslandi“, Hjalti Hugason prófessor
Upplestur úr sögum Jóns Trausta;
Holt og Skál og Sigur lífsins og úr Passíusálmum,
Gunnar Þór Jónsson og Jóna S. Sigurbjartsdóttir
Tónlist: Brian R. Haroldsson organisti
Hádegishlé
13.00 Söguganga frá Hunkubökkum að rústum
„eldmessukirkjunnar“ í gamla kirkjugarðinum
á Kirkjubæjarklaustri. Farið verður með rútu frá
Hótel Kirkjubæjarklaustri á útsýnisstað við Holt á Síðu
og skyggnst um yfir Skaftáreldahraunið. Ekið til baka
að Hunkubökkum og gengið þaðan í stuttum áföngum
austur brúnir að Systrastapa og þaðan í gamla
kirkjugarðinn við Minningarkapelluna, þar sem gangan
endar. Fararstjóri: Jón Helgason
15. apríl, laugardagur
13.00 Rútuferð frá Hótel Kirkjubæjarklaustri um
Skaftártungu og Álftaver. Litið verður yfir sögusvið
Skaftárelda og komið við á kirkjustöðum.
Fararstjóri Jón Helgason
20.30 Tónleikar kirkjukórs Prestsbakkakirkju
í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli
Undirleikari: Brian R. Haroldsson organisti
16. apríl, páskadagur
09.00 Sigur lífsins: Morgunganga frá Minningarkapellu
sr. Jóns Steingrímssonar að Prestsbakkakirkju á Síðu þar
sem gangan endar.
Fararstjóri: Elín Anna Valdimarsdóttir
11.00 Hátíðamessa í Prestsbakkakirkju. Prestur
sr. Elínborg Gísladóttir
Þeir sem hafa hug á þátttöku í rútuferðum á föstudegi og
laugardegi eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig í ferðirnar sem
fyrst og í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 12. apríl.
Þátttaka í gönguferðum er öllum opin. Gönguferðir taka mið af
veðri og aðstæðum og er fólki bent á að vera vel búið. Rútuferð á
föstudaginn langa, 14. apríl, að Holti og Hunkubökkum,
kostar 500 kr. pr. mann. Rútuferð á laugardeginum, 15. apríl um
Álftaver og Skaftártungu kostar 2000 kr. pr. mann, hressing
innifalin. Frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Skráning og nánari
upplýsingar fást í síma 487 4645, 892 9650 eða á netfanginu
kbstofa@simnet.is og olafiaj@centrum.is.
Dagskráin er á vegum Kirkjubæjarstofu, í samvinnu við
Guðfræðideild Háskólans og sóknarnefnd Prestsbakkasóknar.