Morgunblaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.expressferdir.is
Express Fer›ir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Nánar á www.expressferdir.is
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
FÓTBOLTAVEISLA Í MANCHESTER
79.900 kr.
INNIFALI‹:
21.–24. APRÍL
Laugardaginn 22. apríl mætast
Chelsea og Liverpool í undanúrslitum í
ensku bikarkeppninni á Old Trafford í
Manchester. Hvort liðið kemst í
úrslitaleikinn í Cardiff?
Ekki missa af þessum hörkuleik!
Flug og flugvallaskattar,
rútur til og frá Manchester, íslensk
fararstjórn, 3 nætur á hóteli með
morgunverði og miði á leik Chelsea og
Liverpool. Miðað er við að tveir séu
saman í herbergi.
CHELSEA–
LIVERPOOL
FÓTBOLTAFERÐ TIL MANCHESTER
OLÍS og Shell hækkuðu í gær verð
á eldsneyti á bensínstöðvum sínum,
degi eftir hækkun Olíufélagsins, og
er algengasta verð á bensíni og dís-
ilolíu í sjálfsafgreiðslu nú það sama
hjá olíufélögunum þremur. Skýring-
arnar eru hækkanir á heimsmark-
aði og veiking krónunnar. Atlants-
olía og Orkan hækkuðu sínar
verðskrár í gærkvöldi.
Olís hækkaði verð á 95 oktana
bensíni um 3,60 kr. á 95 oktana
bensíni, og um 2,4 kr. á dísilolíu.
Þetta er sama krónutöluhækkun og
gerð var hjá Olíufélaginu í fyrradag.
Shell hækkaði 95 oktana bensín um
3,50 kr. og dísilolíu um 2,40 kr.
Verð hækkaði einnig hjá EGO-
sjálfsafgreiðslustöðvunum og ÓB-
sjálfsafgreiðslustöðvunum, og er al-
gengt verð á lítra af 95 oktana
bensíni 121,30 kr. eftir hækkunina,
en algengt verð á lítra af dísilolíu
116,50 kr. Algengt verð á lítra af 95
oktana bensíni er nú 121 kr. hjá
Orkunni og 116 kr. á dísilolíu. Hjá
Atlantsolíu er verð á bensínlítra al-
mennt 121,3 kr. og 116,5 kr. á dísil-
olíu.
Eftir hækkunina er algengasta
sjálfsafgreiðsluverðið á 95 oktana
bensíni hjá Olís, Shell og Olíufélag-
inu 122,80 kr. og verð á dísilolíu
117,90 kr. Sé eldsneyti keypt á
þessu verði kostar 6.140 kr. að fylla
50 lítra tank af 95 oktana bensíni.
Þetta er um 14% hækkun frá ára-
mótum, þegar kostaði um 5.400 að
fylla sama tank.
Ökumenn stórra jeppa og pallbíla
geta einnig reiknað með hærri
reikningi kjósi þeir að fylla tankinn,
því nú kostar 11.790 kr. að fylla 100
lítra tank af dísilolíu. Um áramót
kostaði um 10.800 kr. að fylla sama
tank og munar því um 9%, eða 1.000
kr., á tankinum hjá eigendum þess-
ara bíla.
Bensíntankurinn hækkað
um 14% frá áramótum
FYRIRHUGUÐU setuverkfalli
ófaglærðs starfsfólks á hjúkrunar- og
dvalarheimilum, sem standa átti í
viku frá miðnætti 21. apríl, hefur ver-
ið frestað um tæpa viku, fram til 27.
apríl.
Álfheiður Bjarnadóttir, talsmaður
starfsmannanna, segir ástæðuna fyr-
ir því að setuverkfallinu var frestað
vera þá að góður skriður sé kominn á
viðræður og rétt að gefa samninga-
nefndum vinnufrið til að komast að
samkomulagi.
Fulltrúar ófaglærðs starfsfólks
funduðu óformlega með fulltrúum
Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjón-
ustu, ásamt fulltrúum stéttarfélags-
ins Eflingar, og verður fundahöldum
fram haldið eftir páska. Hún segir að
nú sé rætt um að koma til móts við
starfsmenn með breytingum á stofn-
anasamningum, en einhvern tíma
geti tekið að fullvinna tillögur.
Álfheiður segir ófaglært starfsfólk
öldrunarheimila finna fyrir miklum
stuðningi í samfélaginu, og hafi al-
menningur jafnt sem vistmenn á
hjúkrunar- og dvalarheimilum gefið
fé til baráttunnar.
Aukin hætta á blóðtöppum
og legusárum
Neyðarástand mun skapast á
hjúkrunar- og dvalarheimilum í viku-
löngu setuverkfalli ófaglærðra starfs-
manna, segir Sveinn H. Skúlason,
forstjóri Hrafnistuheimilanna. „Setu-
verkfall mun bitna verst á þeim veik-
ustu, sem ekki fara fram úr. Þeir eiga
á hættu að fá legusár, eða jafnvel á að
fá blóðtappa vegna hreyfingarleysis,“
segir Sveinn.
Hann segir setuverkfall bitna á
þeim sem síst skyldi, eldra fólki sem
starfsfólkið sé gjarnan tengt vináttu-
böndum eftir áralanga samvist. „Upp
til hópa eru þetta alveg frábærir
starfsmenn sem bera hag þeirra öldr-
uðu mjög fyrir brjósti.“
Hann segir ljóst að þótt verið sé að
vinna í málinu sé útilokað að ná lend-
ingu á nokkrum dögum. Samninga-
nefnd hjúkrunarheimilanna muni
funda með fulltrúum Eflingar næst-
komandi miðvikudag, 19. apríl, en það
taki alltaf tíma að gera breytingar á
kjarasamningum.
Setuverkfalli ófaglærðra á öldrunarstofnunum frestað til 27. apríl
Góður skriður sagður
kominn á viðræður
ÓLI Rafn Gunnarsson rekur bæði bíl og bifhjól og seg-
ir hækkanir á eldsneyti mjög slæmar.
„Það er orðinn mjög stór hluti af mánaðarlegum út-
gjöldum bara að reka bíl og þá meira að segja bara
hvað bensín varðar. Það er rosalega stór póstur,“ segir
hann. „Ég bý í Reykjavík og vinn í Hafnarfirði og þetta
munar rosalega, bara að koma sér í og úr vinnu. Ferð-
irnar innan höfuðborgarsvæðisins eru dýrar svo ég tali
nú ekki um ef maður ætlar að kíkja til Akureyrar eða
eitthvað slíkt, þá kostar það bara tíu þúsund krónur í
bensín fram og til baka og það liggur við að ódýrara sé
að fljúga. Þetta er mjög leiðinlegt, ég á foreldra úti á
landi og það er til dæmis dýrt að heimsækja þá.“
Óli segir bensínverðið sífellt fara hækkandi en finnst
sem lítið gerist í vegaframkvæmdum á móti.
„Það eru boruð göng fyrir vestan sem tveir á dag
fara í gegnum en það er ekkert gert hér í bænum og á
annatíma tekur til dæmis klukkutíma að komast í
Hafnarfjörð úr Reykjavík,“ segir hann. „Þetta væri
kannski í lagi ef maður kæmist eitthvert fyrir pening-
inn.“
Stór hluti mánað-
arlegra útgjalda
Morgunblaðið/Sverrir
Óli Gunnarsson: Dýrt að heimsækja foreldrana.
VIÐMÆLENDUR Morgunblaðsins í gær voru almennt á
því að hækkanir á bensíni kæmu áþreifanlega við heim-
ilishaldið og þá fannst þeim margar nauðsynjavörur hafa
hækkað mikið í verði.
Aðalheiður Jörgensen var á bensínstöð að velta fyrir
sér eldsneytishækkunum dagsins í gær og í fyrradag
þegar blaðamaður tók hana tali.
„Mér finnst þetta alveg skelfilegt,“ segir hún. „Þetta
hækkar allt of mikið eins og annað sem hefur verið að
hækka undanfarið.“
Aðalheiður kveðst finna mikið fyrir eldsneytishækk-
unum í pyngjunni. „Já,“ segir hún hiklaust. „Ég er ein
með tvö börn og hækkanir hafa bæði komið við bílaút-
gjöldin og eins matarinnkaupin.“
Í hinum endurteknu hækkunum á eldsneytisverði
finnst henni hafa farið lítið fyrir lækkunum að sama
skapi og henni finnst hækkanir hafa verið óvenju miklar
á stuttum tíma.
„Ég hef nú reynt að styrkja Atlantsolíu og farið þang-
að en það er ekki alltaf í leiðinni hjá manni,“ segir hún.
„Mér hefur fundist þeir standa sig aðeins betur en aðrir.“
Allt of mikil
hækkun
Morgunblaðið/Sverrir
Aðalheiður Jörgensen: „Finnst þetta alveg skelfilegt.“
UNDIRBÚNINGUR fyrir byggingu
rannsóknaraðstöðu fyrir fuglaflensu-
tilvik er þegar hafinn, að sögn Vil-
hjálm Lúðvíkssonar, skrifstofustjóra
vísindamála hjá menntamálaráðu-
neytinu. Ekki hefur verið gerð tíma-
áætlun vegna verksins en Vilhjálmur
taldi líklegt að aðstaðan yrði komin í
gagnið á næstu 8–10 mánuðum. Rík-
isstjórn Íslands hefur ákveðið að
veita Tilraunastofu Háskóla Íslands í
meinafræðum að Keldum 87 millj-
ónir króna til að setja upp annars
vegar öryggiskrufningsstofu þar sem
m.a. verður hægt að mæla fugla-
flensusýni og taka á móti hræjum og
hins vegar öryggisveirurannsóknar-
stofu þar sem hægt verður að vinna
enn frekar með veirur. Sigurður
Ingvarsson, forstöðumaður tilrauna-
stofunnar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að mikilvægt væri að að-
staðan yrði komin í gagnið sem
fyrst, en sóst hefði verið eftir þessari
aðstöðu í sex ár. Nú þegar hafi sýk-
ingar komið upp í nágrannalöndum
og líklegt er að sýktir fuglar komist
yfir hafið og því sé mikilvægt að
vera með rétta aðstöðu, en hingað til
hafi sýni verið send til Svíþjóðar.
Sigurður sagði ekki vera ljóst hve-
nær aðstaðan yrði tilbúin en ljóst
væri að byggð yrði framtíðaraðstaða.
Hann sagði að í raun væri verið að
byggja hús innan rannsóknarstof-
unnar þar sem m.a. loftsíur koma í
veg fyrir að sýking berist út og loft-
straumi er stjórnað.
Aðstaða á næstu
8–10 mánuðum
Rannsóknarstofa fyrir fuglaflensutilvik
SVANURINN sem fannst dauður í
Fife í Skotlandi og reyndist sýktur af
fuglaflensuafbrigðinu H5N1 reyndist
vera svonefndur hnúðsvanur sem hef-
ur vetursetu í landinu en heldur sig á
sumrin á norðlægari slóðum, m.a. á
Íslandi. Ekki liggur fyrir hvort fugl-
inn sýktist á Bretlandseyjum eða í
öðru landi, líklega Þýskalandi, að
sögn AFP-fréttastofunnar. Sumir
sérfræðingar telja allt eins líklegt að
hann hafi drepist á hafi úti og skolað
upp að Skotlandsströnd.
Frá þessu greinir fréttavefur
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Álftin fannst 29. mars, en síðan
hafa engir aðrir fuglar á Bretlandi
greinst með H5N1. BBC hefur eftir
heimildamönnum að tilgátan sem vís-
indamenn gangi nú út frá sé að álftin
kunni að hafa drepist yfir Norður-
sjónum eftir að hafa sýkst í landinu
sem hún flaug frá. Frumniðurstöður
rannsókna bentu til þess að álftin hafi
verið sýkt af nær sama veiruafbrigði
og fuglar sem drápust úr H5N1 á
þýsku Eystrasaltseynni Rügen í liðn-
um mánuði.
Álftir frá Íslandi, Skandinavíu og
Norður-Rússlandi hafa vetursetu á
Bretlandseyjum, Niðurlöndum og við
sunnanvert Eystrasalt. Allmargar
álftir hafa verið rannsakaðar á Bret-
landseyjum undanfarið, en nið-
urstöður í öllum tilvikum verið nei-
kvæðar. Binda breskir vísindamenn
vonir við að álftin sem fannst í Skot-
landi hafi verið einangrað tilfelli.
Dauða álftin
einangrað tilfelli?
SAMKVÆMT skýrslu OECD eru
Íslendingar fremstir meðal þjóða
innan OECD í fjölda háhraðainter-
nettenginga og hafa tekið fram úr
Suður-Kóreu-búum sem hingað til
hafa verið í fyrsta sæti. Samkvæmt
skýrslunni voru 26,7% landsmanna
áskrifendur að háhraðainternet-
tengingu á síðasta ári en Suður-
Kórea fellur í annað sætið þar sem
25,4% landsmanna eru áskrifendur
og Hollendingar í því þriðja með
25,3%. Í fjórða sæti, og næst Ís-
lendingum á meðal Norðurlanda-
þjóða, koma Danir með 25%. Þess-
ar niðurstöður eru tákn um aukna
eftirspurn eftir háhraðanettenging-
um í Evrópu, en Finnar, Norð-
menn, Svíar og Belgar eru allir á
topp tíu-listanum yfir stærstu
markaði í háhraðanettengingum, og
til marks um vöxtinn bætti hver
þjóð við sig í kringum 6% á síðasta
ári. Bandaríkjamenn eru með mest-
an fjölda áskrifta innan OECD, eða
um 49 milljón áskrifta og er það um
31% allra áskrifta.
Mikil aukning hefur verið á há-
hraðatengingum innan svæðisins og
jókst hún úr 136 milljónum í 158
milljónir frá júní til desember í
fyrra.
Flestar háhraða-
tengingar á Íslandi