Morgunblaðið - 13.04.2006, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.04.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 9 FRÉTTIR Kringlunni – sími 581 2300 Gleðilega páska! Opið skírdag 13-17 laugardag 10-18 Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Lokað laugardaginn 15. apríl Gleðilega páska! Glæsilegar sumarvörur Bragðsemendist lengur Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is Nýkynslóð: Mýkraundirtönn! PrófaðuNicorette Freshmint SUMARÆVINTÝRI Í SVÍÞJÓÐ! fyrir unglinga - Upplifið sænskt sveitalíf hjá Íslendingum Fara á hestbak, kynnast sænska tungumálinu o.m.fl. Vikudvöl í júní - Allar upplýsingar á heimasíðunni okkar: www.islandshastar-vedum.se er komin – mikið úrval Full búð af nýjum vörum Opið í dag frá kl. 13-17 og laugardag frá kl. 10-18 Gleðilega páska SUMARLÍNAN FRÁ HISPANITAS Skóverslun – Kringlunni – Sími 553 2888 – www.skor.is SNJÓFLÓÐASETUR Veðurstofu Íslands hvetur ferðafólk til fjalla um páskana að hafa allan vara á sér gagnvart snjóflóðahættu. Rannsókn- ir sýna að yfir 90% af þeim sem lenda í snjóflóðum í óbyggðum hafa ann- aðhvort komið snjóflóðinu af stað sjálfir eða einhver úr þeirra hópi. Þess vegna er mikilvægt að læra að forðast aðstæður þar sem menn geta komið af stað flóði. Ef svo óheppilega vill til að ferða- maður grefst í snjóflóði er mikilvægt að ná honum upp sem fyrst. Tölfræð- in sýnir að um 90% af þeim sem nást úr flóði innan 10–15 mínútna frá því að þeir grafast lifa af svo framarlega sem þeir hafa ekki látið lífið vegna áverka. Eftir þann tíma aukast dán- arlíkurnar mjög hratt og eftir um hálftíma undir snjónum eru aðeins um 30% á lífi. Þetta á við um snjóflóð í óbyggðum. Þess vegna er mikil- vægt að þeir sem ferðast um fjall- lendi að vetrarlagi hafi tæki til þess að geta bjargað félögum sínum og kunni að fara með þau. Þrennt er al- veg ómissandi: snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng. Þeir sem ferðast um á skíðum eða snjóbrettum í óbyggðum, eða í brött- um brekkum utan troðinna leiða á skíðasvæðum, ættu alltaf að ferðast tveir eða fleiri saman og vera með ýli á sér og skóflu og stöng í bakpoka á bakinu. Snjókoma og nokkuð hvasst um páskana Á föstudaginn langa verður sam- kvæmt veðurspánni sunnan og suð- austan 8–13 m/s og rigning, fyrst sunnan- og vestantil en snýst um kvöldið í SV 5–10 með skúrum vest- anlands. Hlýnandi, hiti tvö til fimm stig. Á laugardag snýst vindur til norðlægrar áttar með snjókomu um landið norðanvert en léttir til syðra. Kólnar niður að frostmarki. Á páska- dag og annan í páskum verður ákveðin norðanátt, éljagangur og hiti um frostmark norðantil, en létt- skýjað og allt að fjögurra stiga hiti sunnanlands. Ferðafólk hvatt til að hafa vara á sér LÖGREGLAN í Reykjavík hefur undirbúið sérstakt eftirlit með inn- brotum um páskahelgina í ljósi reynslu fyrri ára af innbrotahrinum sem hafa dunið yfir þegar stórar ferðahelgar standa yfir. Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verða lög- reglumenn sendir í hert eftirlit í íbúðahverfum og verslunar- og fyr- irtækjahverfum í borginni. Segir hann fulla ástæðu fyrir fólk að ganga vel frá eigum sínum ef það bregður sér af bæ. Aðaláhersla lögreglunnar um páskahelgina verður á innbrotaeft- irlit og umferðarmál og hvetur Karl Steinar alla til að ganga tryggilega frá öllum hugsan- legum inngönguleiðum í íbúðir sínar, enda hafi það margsannast að slíkar ráðstafanir geta verið innbrotsþjóf- um hindrun á leið sinni. Einnig sé mikilvægt að láta nágranna sína vita að allar mannaferðir við húsnæði séu óeðlilegar á meðan húsráðendur eru í burtu. Ekki síst eru þeir sem fara ekki í burtu hvattir til að tilkynna lögreglu í síma 112 um óeðlilegar mannaferðir í hverfinu. Karl Steinar segir innbrotatíðnina vera mjög sveiflukennda og undan- farin ár hafi innbrotin oft tengst hin- um stóru ferðahelgum um páska, hvítasunnu og öðrum áþekkum árs- tímum. Einnig geti það haft áhrif á tíðnina hvaða síbrotamenn séu í af- plánun á hverjum tíma. Við þetta er að bæta að nokkuð hátt hlutfall sí- brotamanna eru í afplánun um þess- ar mundir að sögn Karls Steinars. Hert innbrotavakt verður um páskana TVEIR íslenskir vísindamenn eru á lista vísindaritsins Nature yfir þá vísindamenn í líftæknigeiranum sem hafa vakið athygli á síðustu 10 ár- um fyrir veruleg framlög sín í þágu líftæknigeirans og við- skiptum honum tengdum. Ritstjórar Nature völdu alls 291 einstakling á lista sem birtur var á vef tímaritsins í janúar og var fólkinu raðað niður í átta mismunandi flokka. Lesendur blaðsins völdu svo þá sem þeir töldu hafa skarað fram úr á síðasta áratug, og voru niður- stöðurnar kynntar í mars-tölu- blaði Nature. Evrópskur lífiðnaður Bæði Kári Stefánsson, for- stjóri deCODE, og Bernhard Pálsson, prófessor í lífverk- fræði og læknisfræði við Kali- forníuháskóla í Bandaríkjun- um, komust á lista ritstjór- anna, en hvorugur var talinn meðal 3–4 áhrifamestu ein- staklinganna í hverjum flokki. Kári Stefánsson var á lista ásamt 54 öðrum í flokknum „Evrópskur lífiðnaður“. Bern- hard Pálsson var einn 47 vís- indamanna á lista ritstjóranna í flokknum „Tækni“. Þykja skara fram úr í líftækni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.