Morgunblaðið - 13.04.2006, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
F
A
B
R
IK
A
N
��������������� ����� ����
������ ���� ����� �� ���� � ����������� ��������
4. flokki húsbréfa 1992 - 50. útdráttur
4. flokki húsbréfa 1994 - 43. útdráttur
2. flokki húsbréfa 1995 - 41. útdráttur
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800
�������� �� ���� ����
������ ��� �������
��� ���� ������ �� �
��� ��� ��
��� ������� ��� ���� � ������������������
����������� �� �������� ������� �� ������
����� � ��� ����� ��������������� ��������
��������� ��������
Elísabet önnur Bretadrottning
fylgdist í gær með hátíðlegri athöfn
í Sandhurst-herskólanum þegar
liðsforingjar voru útskrifaðir en
meðal þeirra var Harry prins, yngri
sonur Karls ríkisarfa. Harry gæti
verið kallaður til þjónustu í Írak
eða Afganistan og er staðráðinn í
að vera þá í fremstu átakalínu með
félögum sínum. Harry sést hér með
eldri bróður sínum, Vilhjálmi (t.v.),
sem þegar hefur útskrifast.
Reuters
Harry reiðubúinn að berjast
Nýju Delhí, Lucknow. AFP. | Fjöl-
miðlar á Indlandi fóru í gær ham-
förum gegn yfirvöldum í Uttar Pra-
desh-ríki sem í fyrradag sögðu það
rangt, að meira en 100 manns hefðu
farist í eldsvoða í borginni Meerut á
mánudag. Fullyrtu ýmis helstu blöð
landsins að yfirvöld vildu gera lítið
úr slysinu, en ríkisstjóri Uttar Pra-
desh sagði á þriðjudag að aðeins um
30 hefðu dáið.
„Fjöldi látinna: enginn veit í raun
og veru,“ sagði blaðið The Hind-
ustan Times og The Hindu sagði í
fyrirsögn að menn vildu fela sann-
leikann í málnu. The Times of India
sagði a.m.k. 52 hafa látist og 150
slasast og bætti því við að sífellt
væru að berast fréttir af fólki sem
saknað væri. The Statesman sagði
ráðamenn í Uttar Pradesh hafa
ákveðið að lækka tölu látinna í því
skyni að breiða yfir vanrækslu yf-
irvalda á staðnum í málinu.
Slysið varð er eldur læsti sig í
sýningartjöld raftækjasýningar í
Meerut á mánudag. Munu skipu-
leggjendur ekki hafa uppfyllt lág-
marksöryggisviðbúnað til að mega
halda sýninguna og hefur lögreglan
hafið leit að þeim.
Fyrstu fréttir gáfu til að kynna,
sem fyrr segir, að meira en 100
manns hefðu dáið í eldsvoðanum í
Meerut, sem er í um 400 km fjar-
lægð frá Lucknow, höfuðstað Uttar
Pradesh-ríkis. Á þriðjudag drógu
yfirvöld þær tölur hins vegar í efa
og sögðu aðeins 31 hafa dáið.
Óljóst um
fjölda þeirra
sem fórust í
eldsvoða
YFIRLÝSINGU stjórnvalda í Íran um að vís-
indamönnum landsins hafi tekist að auðga úran
með skilvindum hefur verið illa tekið í höf-
uðborgum helstu stórvelda heims. Þykir hún vera
til marks um að klerkastjórnin í Teheran sé stað-
ráðin í að hunsa tilmæli öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, sem óttast að markmið Írana sé að
smíða kjarnorkusprengju þótt þeir séu aðilar að
alþjóðasamningi gegn frekari útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
Um er að ræða mikilvægan áfanga í tilraunum
Írana, að sögn sérfræðinga, en sjálfir segjast Ír-
anar eingöngu vera að koma sér upp tækni til að
framleiða eldsneyti í kjarnorkuver til frið-
samlegra nota. Er þá úrangrýti hreinsað, unnið úr
því gas sem að lokum er sett í fjölmargar skil-
vindur sem keyrðar eru samtímis og frá efninu
skilst þá auðgað úran.
Öflugasta hluta þess er hins vegar hægt að nota
til vopnagerðar. Írönum hefur nú tekist að nota
164 skilvindur samtímis. Hins vegar þarf að nota
mörg þúsund skilvindur samtímis til að framleiða
nægilegt magn af öflugasta hluta auðgaða úrans-
ins. Telja sumir að liðið geti allt að þrjú ár áður en
þeim tekst það en aðrir að ekki muni líða nema
eitt ár.
„Ekki gagnleg“ yfirlýsing
Vestræn ríki fordæmdu aðgerðir Írana í gær og
sögðu Bretar, sem hafa ásamt Frökkum og Þjóð-
verjum reynt að fá Írana til að stöðva kjarnorku-
tilraunirnar, að hún væri „ekki gagnleg“. Frakk-
ar, Þjóðverjar og Bandaríkjamenn voru ívið
hvassari í sínum ummælum og hvöttu Írana til að
fara að fyrirmælum Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar, IAEA, í Vín sem vill meðal annars fá
að gera fyrirvaralausar skyndikannanir í til-
raunastöðvum Írana. Scott McClellan, talsmaður
George W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði að mál-
ið sýndi vel hvers vegna alþjóðasamfélagið hefði
„miklar áhyggjur af áætlunum stjórnvalda Írana í
kjarnorkumálum“.
Ísraelar sem lengi hafa varað við kjarnorku-
tilraunum Írana en eru sjálfir taldir eiga slík
vopn, vöruðu þjóðir heims við afleiðingum þess að
klerkastjórnin kæmi sér upp kjarnorkuvopnum.
Íran búið kjarnorkuvopnum væri „ógnun við allan
heiminn og ekki einvörðungu Ísrael,“ sagði Dan
Halutz, forseti ísraelska herráðsins í útvarps-
viðtali. Getur hafa verið leiddar að því að Ísraelar
myndu ef til vill reyna að gera loftárás á til-
raunastöðvar Írana. En bent hefur verið á að þær
séu sumar neðanjarðar þannig að óvíst sé hvort
slík árás myndi yfirleitt draga úr hættunni sem
menn telja geta stafað af tilraununum.
Rússar gagnrýna en vara
við of hörðum viðbrögðum
Rússar, sem annars hafa stutt Írana með því að
leggjast eindregið gegn alþjóðlegum refsiaðgerð-
um gegn þeim, gagnrýndu þá í gær. „Við teljum
að þetta sé skref í ranga átt. Það er í andstöðu við
ákvarðanir IAEA og samþykktir öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Míkhaíl Kamynín,
talsmaður utanríkisráðuneytisins í Moskvu, í gær.
Sergei Lavrov utanríkisráðherra varaði menn
samt við því að bregðast of hart við og ítrekaði þá
afstöðu Rússa að ekki kæmi til greina að beita Ír-
an hervaldi til að stöðva tilraunirnar.
Sumir sérfræðingar IAEA álíta, að sögn breska
ríkisútvarpsins, BBC, að þrátt fyrir yfirlýsingar
Írana um að þeir hafa fullan rétt til að nýta sér
kjarnorku, muni þeir í ljósi almennrar andstöðu í
öðrum löndum við meintar vopnatilraunir þeirra
grípa tækifærið og koma til móts við kröfur
IAEA. Þeir séu nú búnir að sýna að þeir geti til-
einkað sér tæknina og því um minni álitshnekki að
ræða gagnvart almenningi í Íran en ella þótt
hliðrað verði til. Og þannig geti klerkastjórnin
komist hjá því að samþykktar verði refsiaðgerðir.
Stórveldin gagnrýna hart
kjarnorkutilraunir Írana
Talið að íranskir vísindamenn hafi náð mikilvægum áfanga í átt að smíði sprengju
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, fór í gær
flugleiðis frá borginni Khaf, um 900 km frá Teh-
eran, en forsetinn sagði á fundi í borginni á
þriðjudag að Íranar væru farnir að auðga úran.
Colombo. AFP. | Sextán manns týndu
lífi og fimmtíu særðust þegar
sprengja sprakk á grænmetismark-
aði í borginni Trincomalee í norð-
austurhluta Sri Lanka í gær. Fyrr
um daginn höfðu tveir lögreglumenn
verið myrtir á svipuðum slóðum.
Þessir atburðir koma daginn eftir að
skæruliðum tamíla, tígrunum svo-
kölluðu, var kennt um sprengjutil-
ræði sem varð tólf sjóliðum að bana.
Embættismenn telja að líkurnar á
að friðarsamningar milli Tamíla og
stjórnvalda í höfuðborginni Colombo
takist hafi enn dvínað eftir atburði
síðustu daga. Útgöngubann var fyr-
irskipað í Trincomalee eftir tilræðið í
gær en óeirðir brutust út í kjölfar
þess og var eldi hleypt að a.m.k. sjö
verslunum í borginni og margir bílar
voru eyðilagðir. Stjórnvöld kenndu
Tamíl-tígrunum um ódæðið.
Norðmenn hafa haft milligöngu
um friðarsamninga og ótryggt
vopnahlé hefur ríkt um nokkurt
skeið. Erlendir sendimenn og ríki
sem hafa veitt landinu þróunaraðstoð
hafa lagt hart að Tamílum að taka
þátt í samningafundum sem áform-
aðir eru í Sviss 19.–21. apríl og á að
nota til að reyna að bjarga vopna-
hléinu sem Norðmenn komu á í febr-
úar 2002.
Rútan sem sprengd var í fyrradag
var á leið frá hafnarborginni Trinco-
malee til Kantale, næststærstu borg-
ar héraðsins. Nokkrir útlendingar,
þ.á m. þrír Bretar í flutningabílnum,
voru meðal þeirra sem særðust. Gerð
var svipuð árás á norðurhluta eyj-
unnar á mánudag og féllu þá fimm
hermenn og tveir óbreyttir borgarar.
Varnarmálaráðuneyti Sri Lanka
gaf eftir þá árás út tilkynningu um að
búið væri að styrkja varnirnar á
Jaffna-skaga á norðurhluta eyjunnar
þar sem árásirnar voru gerðar en þar
eru Tamílar í meirihluta.
Rösklega 20 milljónir manna búa á
Sri Lanka. Tamílar eru hindúar en
Sinhalar, sem eru mikill meirihluti
íbúa landsins, eru flestir búddistar.
Einnig er nokkuð af múslímum og
kristnum í landinu. Um 60.000 manns
hafa fallið í átökunum í eyríkinu, sem
er við suðurodda Indlands, síðan
1972.
AP
Hermaður á Sri Lanka í varðstöð í höfuðborginni Colombo í gær. Gripið hefur verið til víðtækra öryggisráðstafana
vegna mannskæðra tilræða Tamíl-tígra undanfarna daga sem draga mjög úr vonum um að friður verði saminn.
Tugir falla í tilræð-
um á Sri Lanka