Morgunblaðið - 13.04.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 45
UMRÆÐAN
FYRIR fimmtíu árum var afi á
Grund. Hann lá þar, undir súð og
fannst alltof mikið fyrir sér haft.
Honum fannst elliheimilið ánægju-
legur forleikur andlátsins með öllum
þessum fallegu konum,
sem önnuðust hann. Afi
kom úr sveit og var af
kynslóð þar sem gam-
alt fólk lagðist í kör til
að flýta fyrir dauð-
anum af tillitssemi við
afkomendur. Mannrétt-
indi voru munaður sem
hann þekkti ekki.
Hann var ekki baggi á
Sjálfstæðisflokknum
sem þá stjórnaði borg-
inni.
Í dag byggi afi í eig-
in húsnæði og fengi
heimaþjónustu. Heimaþjónusta er
hagkvæm því hún dregur úr þörf á
að byggja stofnanir. Sveitarfélög
veita heimaþjónustu. Reykjavík veit-
ir mesta heimaþjónustu allra sveitar-
félaga. Ríkið sinnir heimahjúkrun. Í
Reykjavík er heimahjúkrun miklu
minni en annars staðar á landinu.
Reykvíkingar eru ekki baggi á rík-
issjóði.
Allir landsmenn undir 70 ára
greiða nefskatt í Framkvæmdasjóð
aldraðra. Þeir hafa greitt nærri
fimm milljarða í þennan sjóð, Reyk-
víkingar greiddu helminginn. Fjár-
málaráðherrar Sjálfstæðisflokksins
hafa misnotað þennan sjóð og ekki
nýtt nema helming hans til fram-
kvæmda í þágu aldraðra. Á meðan
hefur Reykjavíkurborg sett yfir hálf-
an milljarð króna í endurbætur á
Droplaugarstöðum, Seljahlíð og Eir.
Reykvíkingar borguðu það einir.
Árið 2002 gerðu Ingibjörg Sólrún
borgarstjóri og Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra samkomulag um
að hraða byggingu hjúkrunarheim-
ila, sem taka átti í notkun í fyrra
(2005) og næsta ár (2007). Geir
Haarde þáverandi fjármálaráðherra,
nú utanríkisráðherra og 1. þingmað-
ur Reykjavíkur, neitar
að efna samninginn og
því hafa engin af fyr-
irhuguðum þremur
hjúkrunarheimilum
verið byggð. Það lá
meira á sendiráði í
Berlín. Afi væri illa á
vegi staddur ef hann
þyrfti að treysta á sjálf-
stæðismenn í hjúkr-
unarheimilismálum.
Hundruð Reykvík-
inga búa við óþolandi
öryggisleysi vegna þess
að ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks,
ráðherrar og þingmenn Reykjavíkur,
neita að greiða starfsfólki hjúkr-
unarheimila sömu laun og Reykja-
víkurborg greiðir sínu fólki.
Yfir 300 Reykvíkingar bíða í ör-
væntingu eftir að komast inn á
hjúkrunarheimili vegna þess að þrjár
hjúkrunarheimilislóðir; í Mörkinni,
við Lágholtsveg og í Grafarholti
ásamt 360 milljónum í peningum
bíða eftir að ríkisstjórnin efni sam-
komulagið við Reykjavíkurborg frá
2002.
Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði
borginni í þrjá aldarfjórðunga og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson er búinn að
sitja í borgarstjórn í aldarfjórðung.
Þeir hafa fengið næg tækifæri til að
sýna hug sinn til aldraðra. Þeim er
ekki treystandi í þessu máli.
Það er komið nóg. Reykvíkingar
geta ekki beðið lengur. Samfylkingin
í Reykjavík krefst þess að öll málefni
öldrunarþjónustu verði tafarlaust
flutt úr höndum ríkisins til Reykja-
víkurborgar. Reykjavíkurborg hefur
sýnt á Droplaugarstöðum hvernig
aðbúnað hún vill bjóða Reykvík-
ingum. Samfylking vill auka öryggi
Reykvíkinga með sameiningu heima-
hjúkrunar og heimaþjónustu í hönd-
um borgarinnar og aukinni kvöld- og
helgarþjónustu. Samfylking krefst
þess að umsamið framlag verði sett í
byggingu hjúkrunarheimilanna sem
bíða. Samfylkingin vill í samvinnu
við eldri borgara tryggja byggingu
500 íbúða og tryggja rétt þeirra til
heimaþjónustu með þjónustutrygg-
ingu.
Öryggi og traust í öldrunarmálum
Stefán Benediktsson
fjallar um aðbúnað aldraðra ’Samfylkingin í Reykja-vík krefst þess að öll mál-
efni öldrunarþjónustu
verði tafarlaust flutt úr
höndum ríkisins til
Reykjavíkurborgar.‘
Stefán Benediktsson
Höfundur er frambjóðandi
Samfylkingarinnar í
borgarstjórnarkosningunum.
NIÐURSTÖÐUR ársreikninga
Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2005
sýna með skýrum hætti að fjármál
og rekstur sveitarfélagsins hafa
eflst og styrkst veru-
lega. Afkomutölur
eru afar jákvæðar,
framkvæmdir meiri
en áður þekkist og
íbúafjölgun ein sú
mesta á öllu landinu.
Með markvissum og
skipulegum hætti
hefur verið haldið ut-
an um rekstrar- og
framkvæmdamál
bæjarins og árang-
urinn liggur fyrir.
Rekstrarafkoma
Hafnarfjarðarbæjar
var jákvæð um 1.122
milljónir kr. á sl. ári
sem er verulega betri
árangur en áætlanir
gerðu ráð fyrir.
Rekstrarniðurstaða
fyrir fjármagnsliði er
jákvæð um 952 millj.
króna samanborið við
727 milljónir kr. árið
2004. Frávik rekstr-
argjalda frá áætlun
var rétt liðlega 1%,
sem er óverulegt í
jafnumfangsmiklum rekstri.
Lækkun erlendra
skulda um 35% –
skuldsetning aldrei minni
Erlendar skuldir A hluta sem
stóðu í 7,4 milljörðum í árslok
2004 lækkuðu um 2,5 milljarða á
árinu 2005 í tæpa 4,9 milljarða eða
um 35%. Eigið fé hækkaði veru-
lega á árinu eða um 23% á milli
ára og nam 6.016 milljónum króna.
Rekstur ársins 2005 fyrir fjár-
magnsliði skilar 225 milljóna
króna betri árangri en árið á und-
an, en tvö síðastliðin ár hafa nið-
urstöður samstæðu sveitarfé-
lagsins verið afar góðar. Skuldir
sveitarsjóðs pr. íbúa hafa ekki ver-
ið lægri um langt árabil þrátt fyrir
að ekki sé á nokkurn hátt tekið til-
lit til gatnagerðartekna.
Niðurstöðurnar sýna enn og aft-
ur jákvæða þróun í rekstri bæj-
arfélagsins jafnvel þó horft sé
fram hjá ytri skilyrðum sem fram
koma í jákvæðri gengisþróun og
óvenju miklu framboði af bygging-
arlóðum í Hafnarfirði. Markviss
skuldastýring á árinu og vöktun
hefur haft mikið að segja. Skipu-
lags- og stjórnsýslubreytingar þær
sem ráðist var í á árinu 2003 sem
miðuðu að því að styrkja innviði í
rekstri bæjarfélagsins og auka
þjónustu ásamt endurmati rekstr-
arþátta hafa einnig m.t.t. sam-
legðar og hagræðingar end-
urspeglað þessa jákvæðu
niðurstöðu.
Meðvitaðar ákvarðanir, und-
anfarin ár, um fjárhagslegt skipu-
lag til að treysta og efla bæj-
arfélagið til enn frekari framfara
hafa borið þann árangur sem nú er
ljós. Veltufé frá rekstri, ein af lyk-
ilstærðum í samanburðarviðmiði,
eykst ár frá ári og sannar að
Hafnarfjörður er á
fljúgandi ferð á réttri
leið.
Þessa niðurstöðu
höfum við fengið með
sameiginlegu átaki
fjölmargra starfs-
manna Hafnarfjarð-
arbæjar, þekkingar
okkar og reynslu.
Kostnaðareftirlit og
rekstrarþekking
stjórnendateyma,
hvort sem er í stjórn-
sýslu eða leik- og
grunnskólum hefur
aukist til muna. Virkn-
in er orðin betri og
ákvarðanir starfs-
manna eru teknar af
ábyrgð og festu.
Stöðug uppbygging
er nú í Hafnarfirði
Hafnarfjörður er
eitt öflugasta og fram-
sæknasta sveitarfélag
landsins. Í Hafnarfirði
eru í uppbyggingu
byggingarreitir fyrir
um á þriðja þúsund íbúðir fyrir
allt að 5.000 íbúa. Stór hluti af
þessum íbúðareiningum eru innan
þéttingar byggðar sem ekki kalla
á miklar fjárfestingar í grunn-
skólum og leikskólum umfram þær
fjárfestingar sem þegar hefur ver-
ið ráðist í. Bæjarfélagið er vel í
stakk búið að taka á móti auknum
íbúafjölda án þess að þurfa að ráð-
ast í miklar fjárfestingar. Þá má
ekki gleyma að á annað hundrað
lóðum hefur nýlega verið úthlutað
til fyrirtækja og stofnana sem
munu skapa hundruð starfa innan
bæjarfélagsins. Það er okkur
hvatning til að skipuleggja enn
frekar, en nú eru í skipulagsvinnu
lóðir fyrir enn fleiri íbúðir og fyr-
irtæki.
Okkur Hafnfirðingum finnst
mikilsvert að haldið sé áfram á
sömu braut. Að styrkja og efla
áfram fjárhagsstöðu Hafn-
arfjarðar, með því að sinna þeirri
kröftugu uppbyggingu sem verið
hefur í bæjarfélaginu. Brýnt er að
verja og treysta enn frekar þann
mikilvæga árangur sem náðst hef-
ur við fjármálastjórn bæjarins. Sú
mikla gróska og uppbygging sem á
sér nú stað í Hafnarfirði er skýr
vísbending um traust og trú á
Hafnarfirði og þeim verkum sem
bæjarstjórn og starfsmenn Hafn-
arfjarðarbæjar eru að vinna að á
öllum sviðum.
Góður árangur
í fjármálum
Hafnarfjarðarbæjar
Gunnar Svavarsson
fjallar um ársreikninga
Hafnarfjarðarbæjar
Gunnar Svavarsson
’Brýnt er aðverja og treysta
enn frekar þann
mikilvæga ár-
angur sem náðst
hefur við fjár-
málastjórn bæj-
arins.‘
Höfundur er forseti
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Skuldir pr. íbúa*
* á verðlagi ársins 2005 - leiðr. vegna gatnagerðartekna
* án lífeyris- og einkaframkvæmdaskuldbindinga
402.422 kr.
423.570 kr.
447.803 kr.
487.666 kr.
457.154 kr.459.511 kr.
426.209 kr.
302.496 kr.
250.000 kr.
300.000 kr.
350.000 kr.
400.000 kr.
450.000 kr.
500.000 kr.
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
Fréttasíminn
904 1100