Morgunblaðið - 13.04.2006, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 49
KIRKJUSTARF
Passíusálmalestur í
Keflavíkurkirkju
PASSÍUSÁLMAR Hallgríms Pét-
urssonar verða lesnir í Keflavík-
urkirkju á föstudaginn langa. Fjöldi
bæjarbúa sér um lesturinn, starfs-
fólk Reykjanesbæjar, Sparisjóðs
Keflavíkur, Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, Hitaveitu Suðurnesja
og Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Dagskráin hefst kl. 13.30 með
bæn, stuttri kynningu og tónlist-
arflutningi áður en lesturinn hefst.
Tónlistarflutningur verður einnig
um kl. 15.30 og kl. 18.45–19. Áætlað
er að dagskránni ljúki kl. 19. Leifur
A. Ísaksson, framhaldsskólakenn-
ari, hefur lesið einn Passíusálm á
hverjum degi í kirkjunni á föstunni
og skipuleggur dagskrána.
Passíusálmalestur á föstudaginn
langa er nýbreytni í starfi kirkj-
unnar. Keflvíkingar eru hvattir til
að fjölmenna í kirkjuna þennan dag
og hlusta á nokkra Passíusálma.
Fólk getur komið og farið eins því
hentar.
Passíusálmarnir
lesnir í Selfosskirkju
Á FÖSTUDAGINN langa, 14. apríl,
kl. 13 verða Passíusálmar síra Hall-
gríms Péturssonar lesnir í heild
sinni í Selfosskirkju. Áheyrendur
koma og fara að vild. Lesarar eru:
Magnús Hlynur Hreiðarsson, Óskar
H. Ólafsson, Guðmundur Jósefsson,
Gylfi Þ. Gíslason, Kjartan T. Ólafs-
son, Ólafur Helgi Kjartansson,
Björn Hjálmarsson, Páll Lýðsson,
Sigurður Símon Sigurðsson, Ólafur
Ólafsson, Jón R. Hjálmarsson og sr.
Gunnar Björnsson.
Sr. Gunnar Björnsson.
Kvenfélagið Seltjörn
gefur glerlistaverk
INGUNN Benediktsdóttir gler-
listakona hefur unnið glerlistaverk
sem staðsett verður í gluggum í
anddyri kirkjunnar. Kvenfélagið
Seltjörn gefur Seltjarnarneskirkju
þessa höfðinglegu gjöf og verður
verkið afhent í hátíðarmessu á
páskadagsmorgun kl. 8. Kirkju-
gestum verður boðið upp á heitt
súkkulaði og vínarbrauð í safn-
aðarheimilinu eftir messu. Verið
velkomin.
Nýr stjaki fyrir páska-
kerti í Breiðholtskirkju
VIÐ hátíðarmessu í Breiðholts-
kirkju á páskadagsmorgun kl. 8
verður að þessu sinni tekinn í notk-
un nýr stjaki fyrir páskakertið, sem
að venju er tendrað við upphaf
messunnar. Stjakann smíðaði lista-
konan Þuríður Steinþórsdóttir og
er þetta þriðji gripurinn, sem hún
smíðar fyrir kirkjuna.
Þá má geta þess, að boðið verður
til heilagrar kvöldmáltíðar í mess-
unni. Að henni lokinni er öllum
kirkjugestum síðan boðið til sam-
eiginlegs morgunverðar í safn-
aðarheimilinu og er fólk hvatt til að
taka eitthvað smávegis matarkyns
með sér á sameiginlegt morg-
unverðarhlaðborð.
Vona ég að við sjáumst sem flest í
kirkjunni okkar á páskadags-
morgun og eigum þar saman bless-
unarríka og uppbyggilega stund á
þessari mestu hátíð okkar kristinna
manna.
Gísli Jónasson.
Lestur Passíusálmanna
í Hallgrímskirkju á
föstudaginn langa
SÚ hefð hefur skapast að einn eða
fleiri lesarar flytji alla Passíusálma
Hallgríms Péturssonar í Hallgríms-
kirkju á föstudaginn langa og verð-
ur svo einnig að þessu sinni. List-
vinafélag Hallgrímskirkju hefur
fengið Gunnar Eyjólfsson leikara til
þess að hafa umsjón með lestrinum
og hefur hann fengið til liðs við sig
valinkunna leikara.
Lesturinn hefst kl. 13 að und-
angengnum orgelleik Harðar Ás-
kelssonar og Björns Steinars Sól-
bergssonar. Þrisvar verður gert hlé
á lestrinum og flutt tónlist tengd
föstunni. Fyrsta hléið verður eftir
lestur 14. sálms, annað hlé eftir
lestur 25. sálms og þriðja hléið eftir
lestur 39. sálms. Hörður Áskelsson
og Björn Steinar Sólbergsson leika
þá m.a. orgelforleiki eftir J. S. Bach
og Auður Guðjohnsen mezzosópran
syngur aríu úr Mattheusarpassíu
eftir Bach.
Leikararnir sem lesa eru: Sig-
urður Skúlason, Edda Þórarins-
dóttir, Jóhann Sigurðarson, Guð-
rún Þ. Stephensen, Erlingur
Gíslason, Þóra Friðriksdóttir, Bald-
vin Halldórsson, Róbert Arnfinns-
son, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Sigþór Albert Heimisson, Krist-
björg Kjeld, Eggert Kaaber, Herdís
Þorvaldsdóttir, Jóna Guðrún Jóns-
dóttir, Helga E. Jónsdóttir, Stein-
dór Hjörleifsson, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Gunnar Eyjólfsson.
Þjáning og lausnir
FÖSTUDAGURINN í kyrruviku er
langur og tilefnið ógnvekjandi. Í
dagskrá í Neskirkju kl. 14 föstudag-
inn langa gefst tækifæri til að íhuga
pínu Jesú Krists og færa til sam-
tíma og okkar eigin lífs.
Dagskráin nefnist „þjáning og
lausnir“ og er flétta tónlistar, hug-
leiðinga, lestra úr Passíusálmum og
píslarsögu guðspjallanna. Lesarar
eru Ásdís Einarsdóttir og Auður
Styrkársdóttir. Gunnar Hersveinn
flytur hugleiðingu auk Nes-
kirkjupresta. Sönghópurinn Rinas-
cente sér um tónlistarflutning, und-
ir stjórn Steingríms Þórhallssonar.
Dagurinn verður langur og skelfi-
legur ef aðeins er staldrað við þján-
inguna og ekki hugað líka að lausn-
um. Boðskapur kristninnar er
lausnamiðaður og beinir sjónum og
huga til páskanna.
Verið velkomin í Neskirkju, í
hljómahaf og til íhugunar lífsvisk-
unnar.
Lestur Passíusálma
í Árbæjarsafns- og
Viðeyjarkirkju
Á FÖSTUDAGINN langa mun
Grétar Einarsson lesa Passíusálma
Hallgríms Péturssonar í Árbæj-
arsafnskirkju og Viðeyjarkirkju.
Hefst lesturinn í Árbæjarsafns-
kirkju kl. 9 og stendur til kl. 13.
Siglt verður frá Sundahöfn til Við-
eyjar kl. 14 og hefst lestur í Viðeyj-
arkirkju kl. 14.30 og lýkur um kl.
18.30. Siglt verður í land kl. 19.
Kaffisala verður í Viðeyjarstofu á
meðan á lestri stendur og kostar
samanlagt 1.000 kr. fyrir fullorðna
og 500 fyrir börn í ferju og létt
kaffihlaðborð.
Grétar Einarsson hefur lesið
Passíusálmana í kirkjum og bæna-
húsum víða um land í um tíu ár. Má
þar nefna bænahúsið á Núpsstað,
Bessastaða- og Grímseyjarkirkjum.
Eftir því sem næst verður komist er
þetta í fyrsta skipti sem sálmarnir
eru lesnir með þessu hætti í Árbæj-
arsafns- og Viðeyjarkirkju.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson