Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 143. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Þvert á
landamæri
Fjölþjóðlegur dans í
Borgarleikhúsinu | Menning
Lesbók | Heppinn maður, Mugison Einkavæðing minning-
argreina Börn | Flöskuskeyti í fjörunni Verðlaunaleikur
Íþróttir | Birgir Leifur meðal efstu manna Fór holu í höggi
Lesbók, Börn og Íþróttir
BRESKA tímaritið The Economist
hefur nú birt hamborgaravísitöluna,
„Big Mac“-vísitöluna, í 20. sinn en
hún þykir endurspegla ágætlega
verðlagið víða um heim. Samkvæmt
henni er „Big Mac“ dýrastur í Nor-
egi en Ísland er í öðru sæti.
Hamborgaravísitalan var upphaf-
lega nokkurs konar spaug en margir
hagfræðingar taka hana alvarlega og
benda á, að hún sýni vel ólíkar verð-
lagsforsendur og gengi einstakra
gjaldmiðla gagnvart bandarískum
dollara.
Kenningin er sú, að hamborgarinn
eigi að kosta það sama alls staðar en
kosti hann minna en í Bandaríkjun-
um, þýðir það, að gjaldmiðill viðkom-
andi er of lágt skráður. Með sama
hætti má segja, að norska krónan og
sú íslenska séu „ofmetnar“ gagnvart
dollara.
Á listanum núna trónir Noregur
efst en þar kostar „Big Mac“ 515,20
íslenskar krónur. Á Íslandi er hann
sagður kosta 465,40 kr. en 380,50 í
Sviss, sem er í þriðja sæti. Danmörk
og Svíþjóð eru síðan í fjórða og
fimmta sæti, 348,50 og 331 kr., en
meðalverðið í Evrópusambandsríkj-
unum er 275 kr. Í Bretlandi kostar
„Big Mac“ 266,70 kr. en í Kanada
229,50 kr.
Í Bandaríkjunum kostar „Big
Mac“ 226,50 kr. en lægst er verðið í
Kína, 96 kr.
Ísland næstefst á „Big Mac“
EINHVERJUM gæti dottið í hug að nám í
læknisfræði væri ærið viðfangsefni út af
fyrir sig. Cecilia Elsa Línudóttir setur ekki
svoleiðis úrtölur fyrir sig og stefnir á nám í
píanóleik við Listaháskólann samhliða
fyrsta ári í læknisfræði í haust.
„Ég var komin með áttunda stigið í tí-
unda bekk,“ segir hún og finnst ekki til-
tökumál að spila samhliða náminu. Við út-
skrift frá MR í gær spilaði hún einmitt á
píanóið í tónlistaratriði og hlaut tvenn
verðlaun fyrir námsárangur. Annars vegar
úr minningarsjóði Pálma Hannessonar
rektors fyrir góða kunnáttu í náttúrufræði,
íslensku og tónlist en hins vegar verðlaun
frá skólanum fyrir kunnáttu í lífrænni
efnafræði og lífefnafræði.
Flutti hingað 10 ára gömul
Cecilia flutti hingað til lands frá Kína tíu
ára gömul og hét áður Xibei Zhang. Að-
spurð hvort erfitt hafi verið að komast inn í
skólakerfið segir hún ákveðið nei. „Ég fann
eiginlega ekkert fyrir því.“
Hún segist fyrst hafa byrjað nám á al-
þjóðlegu IB-brautinni í MH. „En svo
breyttist klásus í inntökuprófið í lækn-
isfræði og þá borgaði sig ekki fyrir mig að
læra á ensku, svo ég skipti eftir mánuð,“
segir Celia sem var á náttúrufræðibraut og
segir raunvísindin skemmtilegustu fögin.
Nú eftir útskriftina tekur við undirbún-
ingur fyrir inntökupróf í læknisfræði í júní,
sem um helmingur bekkjarins hennar úr
MR tekur. Svo er það tónlistarhátíð á Ítal-
íu. „Síðan fer ég til Kína með vinkonum
mínum og í læknisfræðina í haust.“ | 10
Morgunblaðið/Eyþór
Cecilia Elsa Línudóttir fékk verðlaun fyr-
ir góða kunnáttu í náttúrufræði, íslensku,
tónlist, lífrænni efnafræði og lífefnafræði.
Samtímis í
læknisfræði og
Listaháskólann
KOSIÐ er um samtals 529 sveitar-
stjórnarsæti í kosningunum sem
fram fara í dag. Rétt rúmlega 216
þúsund einstaklingar eru á kjör-
skrá. Þar af eru rúmlega 108.600
konur og um 107.500 karlar. Kjör-
staðir verða opnaðir kl. níu víða um
land og má búast við fyrstu tölum í
stærstu sveitarfélögunum rétt eftir
að kjörstöðum verður lokað í kvöld,
eða upp úr klukkan 22.
Alls 79 sveitarfélög eru í landinu.
Þar af eru boðnir fram listar í sextíu
sveitarfélögum, en sjálfkjörið er í
tveimur þeirra þ.e. í Breiðdals-
hreppi og Tjörneshreppi. Þá fer
fram svokölluð óbundin kosning í
nítján sveitarfélögum, þar sem eng-
in framboð komu fram. Það þýðir að
allir kjósendur eru í kjöri, nema
þeir sveitarstjórnarmenn sem hafa
formlega skorast undan því.
Kosningaaldurinn er miðaður við
átján ár, á kjördag, og hefur því
16.501 nýr kjósandi bæst við kjör-
skrána, vegna aldurs, frá síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Aukinheldur má geta þess að
4.468 erlendir ríkisborgarar, sem
eru búsettir hér á landi, hafa kosn-
ingarétt í dag. 944 eru frá hinum
Norðurlandaþjóðunum, 822 frá Pól-
landi, 279 frá Filippseyjum, 249 frá
Þýskalandi og 234 frá Bandaríkjun-
um, svo dæmi séu nefnd.
Rúmlega 85.600 einstaklingar
eru á kjörskrá í Reykjavík. Þar eru
þrettán kjörstaðir og verða þeir
opnaðir kl. níu og lokað kl. 22 í
kvöld. Talning atkvæða Reykvík-
inga fer fram í borgarstjórnarsaln-
um í Ráðhúsi Reykjavíkur. Um sjö-
tíu til áttatíu manns munu vinna þar
við talningu atkvæða, að sögn Ást-
ráðs Haraldssonar, formanns kjör-
stjórnar í Reykjavík.
Þeir verða lokaðir inni kl. 18.30 í
dag og hefja þá flokkun atkvæða.
Talning atkvæða má hins vegar
ekki hefjast fyrr en kjörstöðum hef-
ur verið lokað en það ætti að ganga
fljótt fyrir sig ef atkvæðin hafa þeg-
ar verið flokkuð. Því er miðað við að
fyrstu tölur verði lesnar upp nokkr-
um mínútum yfir tíu.
Kosið verður um 529
sveitarstjórnarsæti í dag
Um 16.500 ungir kjósendur bætast á
kjörskrána frá síðustu kosningum
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Allir keppa | 4
ODDVITAR flokkanna fimm sem keppt hafa um hylli Reykvíkinga und-
anfarið tóku umræðuna í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Mikil
spenna ríkir um úrslit kosninganna, en ekki var annað að sjá en frambjóðend-
urnir væru pollrólegir þar sem þeir voru undirbúnir fyrir útsendinguna.
Morgunblaðið/Eggert
Frambjóðendurnir á lokasprettinum