Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 21
ERLENT
Kandahar. AP, AFP. | Talibanar réðust
á lögreglubifreið í Austur-
Afganistan í gærmorgun og felldu
einn mann. Í kjölfarið fylgdi klukku-
stundarlangur skotbardagi eftir að
lögreglan sendi liðsauka. Að sögn
lögreglu féllu tíu uppreisnarmenn
Talibana í bardaganum. Árásin var
gerð í Ghazni-héraði þar sem upp-
reisnarsveitir Talibana höfðu leitað
skjóls en voru umkringdar af lög-
reglu.
Afganskir stjórnarhermenn full-
yrtu á miðvikudag að allt að sextíu
meintir uppreisnarmenn úr röðum
talibana og fimm afganskir örygg-
issveitarmenn hefðu fallið í hörðum
átökum í suðurhluta landsins á
þriðjudag. Átökin urðu í Uruzgan-
héraði, að sögn Rahmathullah Raufi
hershöfðingja. Talsmaður Banda-
ríkjahers sagði hins vegar að aðeins
24 uppreisnarmenn hefðu fallið.
Bardagarnir á þriðjudag urðu
skammt frá héraðshöfuðstaðnum
Tirin Kot á þriðjudag. Mikið mann-
fall hefur orðið síðustu vikurnar í
sunnanverðu Afganistan og allt að
200 talibanar eru taldir hafa fallið
en einnig tugir óbreyttra borgara.
Embættismenn segja að átökin á
þriðjudag hafi byrjað þegar ráðist
var á eftirlitssveit sem samanstóð af
hermönnum úr röðum erlendu herj-
anna í Afganistan og afgönskum
hermönnum. Fjórir afganskir her-
menn og lögreglumaður féllu í þeim
átökum. Raufi hershöfðingi sagði að
í kjölfarið hefðu hermennirnir byrj-
að viðamikla leit á svæðinu sem
leiddi til þess að tugir talibana féllu.
Mannskæð átök
í Afganistan
Bangkok. AFP. | Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
fór þess á leit í gær við herfor-
ingjastjórnina í Burma að leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, Aung San
Suu Kyi, yrði sleppt lausri, en hún
hefur verið í stofufangelsi um árabil.
„Ég treysti á þig, Than Shwe
hershöfðingi, að þú gerir hið eina
rétta,“ sagði Annan í yfirlýsingu, en
í dag þarf herforingjastjórnin að
taka ákvörðun um endurnýjun úr-
skurðar um að Suu Kyi skuli vera í
stofufangelsi eða sleppa henni
lausri.
Vonir vöknuðu um að Suu Kyi
yrði látin laus þegar henni var leyft
að eiga fund með erindreka Samein-
uðu þjóðanna í síðustu viku. Hafa
fjölmargar ríkisstjórnir heims sent
yfirvöldum í Burma tilmæli um það
nýverið að þau sleppi Suu Kyi úr
haldi.
Aung San Suu Kyi og lýðræð-
ishreyfing hennar unnu mikinn sig-
ur í þingkosningum í Burma árið
1990, en fengu aldrei tækifæri til að
stýra landinu því að herinn tók öll
völd og hefur haldið þeim síðan. Hef-
ur Suu Kyi lengst af verið í stofu-
fangelsi.
Suu Kyi er sextug. Árið 1991 hlaut
hún friðarverðlaun Nóbels fyrir bar-
áttu sína fyrir lýðræði og mannrétt-
indum í Burma. Tveir synir hennar
tóku við verðlaununum í Ósló.
Verður Suu Kyi
sleppt úr haldi?
104732
Flügger tréolía
Fljótleg og einföld í notkun
www.flugger.is
0,4 ltr. 934 kr.
Tréolíu sprey
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Egilsholt 1
EINI hryðjuverkamaðurinn sem komst lífs af í
Beslan í Suður-Rússlandi árið 2004 var í gær
dæmdur í ævilangt fangelsi í borginni Vladikav-
kaz. Maðurinn er 25 ára gamall trésmiður frá
Tétsníu og heitir Núrpashi Kúlajev. Rúmlega
360 manns féllu í Beslan, meira en helmingurinn
börn. Maðurinnn segist algerlega saklaus af
ákærunum og sýndi engin merki iðrunar. Sak-
sóknari hafði krafist dauðadóms en dómarinn,
Tamerlan Agúzarov, sagði Rússa ekki lengur
leyfa dauðarefsingu.
Aguzarov sagði á hinn bóginn að brot sak-
borningsins væru þess eðlis að dauðarefsing
hefði verið við hæfi. Kúlajev
var dæmdur fyrir hryðju-
verk og morð en réttarhöld-
in yfir honum stóðu yfir í ár.
Verjandi hans taldi í gær lík-
legt að dóminum yrði áfrýj-
að til æðra dómstigs.
Atburðirnir í Beslan
vöktu óhug um allan heim.
Um var að ræða hóp 32 Téts-
éna sem lögðu undir sig
skóla í Beslan sem er í Norður-Ossetíu í Kákas-
us, lýðveldi í rússneska sambandsríkinu. Voru
þeir að mótmæla hernaði Rússa í Tétsníu og
héldu skólanum og um 1000 manns, börnum,
foreldrum og kennurum, í gíslingu í þrjá daga.
Svo fór að rússneskir hermenn gerðu árás á
skólann og er margt enn á huldu um þau atvik
öll. En niðurstaðan varð mikið blóðbað.
Núrpashi fannst í felum undir vörubíl nálægt
skólanum eftir hryðjuverkið og minnstu munaði
að reiðir íbúar tækju hann þá af lífi. „Okkur
finnst að þetta hafi verið einstök illvirki og refsa
hefði átt fyrir þau í samræmi við það,“ sagði ein
móðirin, Aneta Gadíeva. Aðrir sögðu að stjórn-
völdum mundi aldrei verða fyrirgefið en margir
furða sig enn á því að ódæðismennirnir skyldu
komast í gegnum margar varðstöðvar.
Dæmdur fyrir
hryðjuverkið í Beslan
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Ættingjar reyna að róa konu við dómshúsið í Beslan. Margir kröfðust dauðadóms yfir Kúlajev.
Núrpashi Kúlajev