Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
AFTURHVARF til fortíðar er ekki
bara í klæðaburði og húsgagnastíl
heldur líka í vali á áfangastað í sum-
arfríinu, a.m.k. hjá Dönum. Á vef
Politiken kemur fram að sumarleyf-
isstaðir sem voru vinsælir á áttunda
og níunda áratugnum, eins og Rho-
dos og Mallorca, séu nú aftur orðnir
vinsælir.
Tyrkland og Egyptaland hafa ver-
ið vinsælir áfangastaðir á und-
anförnum árum en vinsældirnar
hafa hrapað að undanförnu. Tals-
menn ferðaskrifstofa telja að ástæð-
an sé hryðjuverk á þessum stöðum,
auk þess sem Múhameðsteikninga-
málið hafi sitt að segja. Ferða-
málafrömuðirnir segja að Mallorca
hafi notið vinsælda í öll þessi ár en
vinsældirnar hafi enn aukist að und-
anförnu. Mallorca nýtur mestra vin-
sælda hjá barnafjölskyldum og eldra
fólki, helst fyrir stuttan ferðatíma
og gott veður. Búlgaría nýtur einnig
aukinna vinsælda meðal danskra
barnafjölskyldna.
Afturhvarf til fortíðar
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Ómar
Upplifun mín af landinu varmjög blendin þó ég hafikomið heim reynslunniríkari. Á tímabili snerist
líf mitt um að þrauka því umhverfið
er mjög yfirþyrmandi fyrir okkur
Vesturlandabúa. Sumir verða ofs-
ahrifnir, en aðrir minna hrifnir,“
segir Sigrún Gunnarsdóttir, sem fór
ásamt sambýlismanni sínum, Gísla
Jónssyni, deildarforseta Guðspeki-
félagsins á Íslandi, til Indlands, m.a.
til að sækja árlega ráðstefnu í Ady-
ar, höfuðstöðvum Guðspekifélagsins
í Madras.
Adyar-garðurinn nær yfir 108
hektara svæði, sem stendur við sam-
nefnda á í Tamil Nadu-fylki við
borgarmörk Madras. Fjölmargar
byggingar eru innan garðsins sem
nýttar eru sem gistihús, skrifstofur,
fundasalir, bænahús og bókasafn
með yfir 250 þúsund bókatitlum og
20 þúsund ára gömlum handritum,
rituð á pálmablöð. Þarna er líka 400
ára gamalt „banyan“-tré og ná
greinar þess yfir ríflega fjögur þús-
und fermetra svæði.
Upplifði strax öryggisleysi
Eftir flug frá London og lendingu
í Madras tók bílstjórinn Kristófer á
móti íslensku ferðalöngunum og
flutti á ágætt hótel í borginni þar
sem áætlað var að dvelja í þrjá
daga. „Ég upplifði strax blendnar
tilfinningar og visst öryggisleysi því
þarna var maður svo sannarlega
komin í annan heim. Mestu monsún-
rigningum í 120 ár var að ljúka og
trúariðkun heimamanna, sem byrj-
uðu að kyrja um miðjar nætur, rask-
aði svefnró okkar. Við fundum hins-
vegar helstu verslunarmiðstöðina í
Madras, Spencer Plaza og þar vor-
um við komin í vestrænt umhverfi,
sem við könnuðumst við.
Við skoðuðum Marina Beach, sem
er fögur strönd miðsvæðis í borg-
inni. Þar er geysistór markaður,
sem gaman er að eyða kvöldstund á.
Kristhnamurti Center í Vasanta
Vihar, handan Adyar-árinnar, var
líka mikið aðdráttarafl, en það er
yndislegur garður með snyrtilegum
byggingum og gistingu. Þarna í frið-
sældinni gátum við horft á mynd-
bönd með fyrirlestrum Kristhna-
murtis og hugleitt.“
Madras byggist upp úr mörgum
borgarkjörnum þar sem íbúarnir
eru um sjö milljónir talsins. „Erfitt
er að finna eiginlega miðborg og til-
tölulega flókið er að koma sér á milli
staða. Við notuðum mest þriggja
hjóla „rickshaw“, sem eru einskonar
leigubílar heimamanna.
Þó ég hafi upplifað margt
skemmtilegt og fallegt, get ég ekki
sagt að Madras höfði til mín. Þar
líkist umferðin öngþveiti auk þess
sem lyktin, hitinn og mengunin er
megn.“
Vægt „sjokk“ yfir aðkomunni
Ferðalöngunum var ekið til Ady-
ar eftir fyrstu þrjá dagana í Madras
og þar var áformað að dvelja í tvær
vikur. „Það er óhætt að segja að ég
hafi fengið vægt „sjokk“ yfir aðkom-
unni, en svo vandist þetta fljótt.
Okkur var úthlutað gistirými fyrir
Vesturlandabúa í einu af fjölmörg-
um gistihúsum garðsins, en á svæð-
inu voru á þessum tíma 1.250
manns, auk starfsmanna. 120 manns
gistu í sama húsi og við í fjögurra til
sex manna herbergjum, sem að-
skilin voru með tjöldum en engum
veggjum. Tvö rúm með örmjóum
dýnum og moskítónetum biðu okk-
ar.
Lítið viðhald er á byggingunum
og ekki bætti úr skák að ég var
komin með skordýrabit út um allan
líkamann, blöðrur og sogæðabólgu,
en læknir Adyar-garðsins náði að
bæta líðanina með pensilíni, stera-
töflum og sterakremi. Þrátt fyrir
allt er stórfengleg upplifun að koma
til Adyar og Indverjar eru mjög
gestrisnir.
Fólk hvaðanæva að úr heiminum
frá öllum trúarbrögðum eða engum
tóku þátt í sex daga árlegri ráð-
stefnu. Fyrirlestrar og umræður
fóru fram á daginn og skemmti-
dagskrá var á kvöldin. Setning-
arathöfnin var einkar áhrifarík og
falleg þegar fólk af ólíkum trúar-
brögðum steig fram og fór með frið-
arbæn á sína vísu,“ segir Sigrún.
Fundu óvart flottan lúxus
Einn daginn tóku þau sér ferð á
hendur til Mahabalipuram, sem er
forn hafnarborg, 60 km norður af
Madras. „Við keyrðum meðfram
austurströndinni og lentum á frá-
bærum bílstjóra, sem fræddi okkur
alla leiðina. Á leiðinni stoppuðum við
m.a. í krókódílagarði, þar sem hægt
var að berja allar stærðir krókódíla
augum, og handverksmenn, sem
unnu í stein, voru víða við iðju sína
meðfram þjóðveginum. Við ókum
líka um þorp, sem hafði orðið fyrir
flóðbylgjunni miklu þar sem íbúar
hafast enn við í bráðabirgðaskýlum.
Sölumenn og betlarar reyndust
ágengir í Mahabalipuram, þar sem
er að finna stórkostlegar menjar og
höggmyndir frá sjöundu öld.
Eftir skoðunarferðina römbuðum
við inn í glæsilegan hótelgarð rétt
fyrir utan borgina, þar sem við
ákváðum að fá okkur snæðing. Þeg-
ar betur var að gáð vorum við komin
inn í alhliða heilsulind með sund-
laug, einkaströnd með hengirúmum,
hóteli og veitingastöðum. Við
ákváðum að vita hvort hægt væri að
fá gistingu á Ideal Beach Resort,
eins og staðurinn heitir og er einkar
vinsæll meðal Frakka, Þjóðverja og
Norðurlandabúa. Þarna dvöldum
við í góðu yfirlæti í þrjár nætur áður
en við héldum heim.“
INDLAND | Eyddu jólum og áramótum í höfuðstöðvum Guðspekifélagsins í Adyar á Indlandi
Öngþveiti og
andstæður
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.southindia-tours.com
www.ts-adyar.org
www.chennai-madras.com
www.idealresort.com
www.gudspekifelagid.is
Sigrún Gunnarsdóttir í Madras á
aðfangadagskvöld.
Hér er verið að dytta að frumstæðum bát heimamanna í fjörunni.
Stórkostlegar höggmyndir frá sjöundu öld er að finna í fornu hafnarborginni Mahabalipuram.
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa