Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 37
MENNING
www.listahatid.is
Opin virka daga kl. 12 til 18, um helgar kl. 12 til 16.
Sími 552 8588 – Miðasala á netinu á www.listahatid.is
Miðasala við innganginn hefst klukkustund fyrir viðburð.
Miðasalan Bankastræti 2:
Brennandi hjarta Monteverdis í Kirkju
og menningarmiðstöðinni Eskifirði í dag kl.
16.00 og Íslensku óperunni á morgun,
sunnudag kl. 17.00. Miðaverð: 3.200 kr.
Sköpunin eftir Haydn í Kirkju og
menningarmiðstöðinni Eskifirði í kvöld
kl. 20.00. Samstarfsverkefni með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Sex
einsöngvarar og hundrað manna kór.
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson.
í Bretlandi - I Fagiolini
Tónlistarhópur ársins
Miðnæturmúsík með Tríói Björns Thoroddsen og Andreu
Gylfadóttur í Iðnó í kvöld kl. 23.30.
Sunnudagsmorgnar með Schumann í Ými í fyrramálið kl. 11.00.
Flytjandi: Kristín Jónína Taylor píanó.
Skærasta stjarnan í íslensku tónlistarlífi
í dag flytur nýtt efni í nýjum búningi með
hljómsveit. Á morgun, sunnudagskvöld, kl.
21.00. Miðaverð: 2.500 kr.
Danshátíð á Listahátíð
Trans Danse Europe
Í dag, laugardag í Borgarleikhúsinu:
OBSTRUCSONG, Granhöj Dans, Danmörk
kl. 17.00.
Hélium, Moussoux-Bonté, Belgía kl. 20.00.
Á morgun, sunnudag í Borgarleikhúsinu:
Magnolia, Dada von Bzdülöw Theatre kl. 20.00.
Miðaverð: 2.000 kr.
Í kvöld og á morgun:
Ástsælustu söngvarar þjóðarinnar,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Gunnar
Guðbjörnsson og Bergþór Pálsson ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytja Le
Pays / Föðurlandið.
Týnda óperan sem gerist á Íslandi.
Seinni sýning í porti Hafnarhússins
í dag kl. 16.00. Miðaverð: 3.900 kr.
Góða skemmtun!
Heimsferðir bjóða frábært
tilboð til Benidorm í lok maí
og byrjun júní. Þú bókar og
tryggir þér flugsæti og 4
dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú býrð.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
1. eða 8. júní
frá kr. 29.990
Síðustu sætin
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára. Stökktu tilboð 25. maí, 1. eða
8. júní. Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herb./stúdíó/
íbúð. Stökktu tilboð 25. maí og 1. júní.
Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
8. júní, kr. 5.000 aukalega á mann
MATTHÍAS Johannessen skáld
heimsótti Svíþjóð í vikunni. Hann
hélt fyrirlestur í Uppsölum um al-
þjóðavæðingu og ógn við íslenska
tungu og las úr verkum sínum á
menningarvöku í Stokkhólmi á
uppstigningardag.
Menningarvakan var haldin í
Finnsku kirkjunni í gamla bænum
á vegum íslenska sendiráðsins í
Svíþjóð. Guðmundur Árni Stef-
ánsson sendiherra bauð um hundr-
að manns velkomna sem voru
komnir að hlýða á ljóðalestur og
söng Kórs Flensborgarskólans í
Hafnarfirði undir stjórn Hrafnhild-
ar Blomsterberg.
Á menningarvökunni í Stokk-
hólmi fengu gestir að heyra ljóð
Matthíasar, Lennon, á sænsku í
flutningi leikkonunnar Báru Lyng-
dal Magnúsdóttur. Sjálfur las
Matthías nokkur ljóð úr nýjustu
bók sinni á íslensku, eða „eldgam-
alli sænsku“ eins og hann sagði
Svía sem hann hitti í Gautaborg
eitt sinn, hafa kallað íslensku.
Guðmundur Árni Stefánsson
sendiherra var ánægður með
menningarvökuna. „Ég kalla það
gott að hundrað manns hafi mætt,
þar sem uppákomuna bar brátt að
á sænskan mælikvarða,“ segir
hann brosandi. Hann segir að
örugglega muni verða framhald á
menningarviðburðum sem þessum
í Svíþjóð.
Vakti athygli og ánægju
Heimir Pálsson, lektor í íslensk-
um fræðum við Uppsalaháskóla,
kynnti Matthías Johannessen sem
kominn var til Svíþjóðar að hans
frumkvæði. Heimir sagði fyr-
irlestur Matthíasar í Uppsölum
hafa vakið mikla athygli og
ánægju, en hann var haldinn á veg-
um áhugafélags um íslensk fræði
sem þar hefur verið starfrækt í
hálfa öld.
Að sögn Heimis talaði Matthías
þar um alþjóðavæðinguna og ógn
við íslenska tungu. Stöðu tungu-
mála í heiminum, sérstöðu ís-
lenskrar tungu og um skyldu Ís-
lendinga að varðveita þá tungu.
Einnig þá sérstöðu að vera eina
þjóðin í Evrópu sem getur lesið svo
gamlar bókmenntir. „Þetta var
bæði skáldlegt og innblásið erindi
um þetta efni og vakti mikla at-
hygli,“ segir Heimir í samtali við
Morgunblaðið.
Að hans mati stóð upp úr hve
húmanisminn er áberandi hjá
Matthíasi núna. „Það sem stóð upp
úr eru helst allar þær tengingar
sem Matthías getur gert. Hann er
óvenju vel lesinn og vel að sér bæði
í samtímamenningu og fornri
menningu og getur því búið til
tengingar hingað og þangað. Svo
hefur hann sitt skáldlega lag og
sýn til að tala um mikilvæg efni.
Og kannski ekki síst að gamli húm-
anisminn verður sterkari og sterk-
ari í skrifum hans og það skein
mjög í gegn í erindinu. Þetta snýst
um húmanisma; um það að vera
manneskja og varðveita það.“
Miðstöð í norrænum fræðum
Heimir segir mjög mikilvægt að
halda úti kennslu í norrænum
fræðum í Svíþjóð, en að jafnaði
stunda 40–60 manns nám í íslensk-
um fræðum við Uppsalaháskóla.
Hann er eini háskólinn í Svíþjóð
sem hefur fastar stöður kennara í
öllum norrænum málum. „Við er-
um að berjast fyrir því að á þessu
verði framhald, að þarna verði
miðstöð í norrænum fræðum.“
Spurður hvort þurfi að berjast fyr-
ir því segir Heimir að a.m.k. megi
ekki gleyma að tala fyrir því, þar
sem skorið sé niður í öllum háskól-
um í Svíþjóð.
Bókmenntir | Matthías Johannessen heimsækir Svíþjóð
Húmanisminn áberandi
Morgunblaðið/Steingerður
Matthías Johannessen og Guðmundur Árni Stefánsson.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér skáld-
söguna Flugdrekahlauparann í kiljuút-
gáfu. Bókin kom fyrst út í október síð-
astliðnum og seldist upp fyrir jól.
Í tilkynningu frá forlaginu segir:
„Flugdrekahlauparinn er heillandi
skáldsaga um vináttu og svik, ástir og
örlög, sakleysi og sekt. Hún er allt í
senn: pólitísk og persónuleg, grimm
og hlý, harmræn og fyndin. Khaled
Hosseini sýnir okkur mannlíf, menn-
ingu og sögusvið sem flest okkar
þekkja ekki nema af afspurn. Við lif-
um okkur inn í frásögn aðalpersón-
unnar og sögumannsins Amirs sem
tekst á hendur för heim til Afganistan
til að gera upp gamlar syndir. Ferða-
lagið gæti kostað hann lífið, en Amir
sem segir sjálfur að hann sé hvorki
göfugmenni né hetja, verður að bæta
fyrir brot sem hann framdi þegar hann
var strákur, brot sem hefur hundelt
samvisku hans alla daga síðan.
Sagan um vinina, Amir og Hassan,
bregður upp leiftrandi myndum af
daglegu lífi í Afganistan frá áttunda
áratugnum til dagsins í dag. Við kynn-
umst fólki af öllum stéttum, sorgum
þess og gleði, draumum og þrám;
fólki sem þrátt fyrir stríð, hörmugar og
ótrúlega grimmd yfirvalda á hverjum
tíma hefur ekki gefið upp vonina um
betra líf.“
Nýjar bækur
LONDON Oriana-kórinn heldur
tónleika í Langholtskirkju í dag
kl. 17. Kórinn er einn þekktasti
áhugamannakór Breta og hefur
haldið tónleika víða um heim, m.a.
í Prag og St. Pétursborg.
Hugmyndin um að halda tón-
leika á Íslandi varð til eftir heim-
sókn Mikes Boltons, eins meðlima
kórsins, til landsins á síðasta ári,
sem hreifst af landi og tónlist hér.
Síðan þá hefur kórinn verið önn-
um kafinn við að undirbúa ferð
sína til Íslands. Stjórnandi kórsins
er David Drummond.
Á tónleikunum verður fjölbreytt
dagskrá, m.a. verður verk eftir
samtímatónskáldið Richard Allain,
kórtónlist úr óperum Verdi og
Bizet og amerískir sálmasöngvar.
Einnig verða flutt íslensk verk
eftir tónskáldin Atla Heimi
Sveinsson og Þorkel Sigurbjörns-
son.
Kórinn mun að auki syngja við
morgunmessu í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 28. maí.
London Oriana-kórinn í Langholtskirkju