Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 38
38 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra afhenti nýlega Vest-
urfarsetrinu á Hofsósi tvo góða
gripi til varðveislu. Þarna var ann-
ars vegar um að ræða mynd og hins
vegar útskorið listaverk í valhne-
tutré. Báðir þessir gripir koma frá
Kanada og tengjast afkomendum
Íslendinga þar.
Halldór gerði grein fyrir ástæð-
um þess að hann kom með þessa
gripi. Þegar hann var í heimsókn í
Kanada á síðasta ári afhenti Garry
Doer, forsætisráðherra Manitoba,
honum mynd sem hann óskaði eftir
að Vesturfarasetrið varðveitti.
Myndin sýnir þann stað við Winni-
peg-vatn þar sem fyrstu landnemar
Nýja Íslands tóku land 21. október
1875. Á þessum stað fæddist nokkr-
um dögum síðar fyrsti Íslending-
urinn og þarna hefur verið reist
minnismerki um þann atburð.
Útskorna listverkið sem ber
nafnið Lífsgátan var gert af
Tryggva Thorleif Larum og er gjöf
hans til íslensku þjóðarinnar. Verk-
ið gerði hann til minningar um
móður sína, Láru Gunnarsdóttur.
Fyrirmynd af verkinu er lítil silf-
urnæla sem fannst við uppgröft í
Rangárvallasýslu en nælan er talin
vera frá tólftu öld. Lífsgátan er fá-
gætt listaverk sem lögð hefur verið
gríðarleg vinna í. Sagði Halldór að
ráðamönnum þjóðarinnar hefði
fundist það vel við hæfi að verkið
yrði varðveitt í Vesturfarasetrinu.
Mikilvægt væri að hafa þar sem
flesta muni sem tengdust samskipt-
unum við Vestur-Íslendinga.
Valgeir Þorvaldsson, for-
stöðumaður Vesturfarasetursins,
veitti þessum munum viðtöku.
Hann sagði í ávarpi við þetta tæki-
færi að safnið væri stolt af því að
varðveita þessa gripi og það væri
ánægjuleg viðurkenning á starfi
Vesturfarasetursins að fá slíka
muni í húsið.
Fágætt listaverk afhent
Vesturfarasetrinu
Eftir Örn Þórarinsson
STOFNAÐUR hefur verið styrktarsjóður í Kanada fyrir
Vesturfarasetrið á Hofsósi og var greint frá honum á Þjóð-
ræknisþinginu í Victoria fyrir skömmu.
Vesturfarasetrið á Hofsósi var opnað fyrir um 10 árum
og segir Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóri þess frá
byrjun, að sjóðurinn skipti mjög miklu máli. Honum sé ætl-
að að styrkja starfsemi Vesturfarasetursins, viðhalda
tengslunum og aðstoða fólk sem leitar þangað eftir þjón-
ustu.
Helstu hvatamenn að stofnun sjóðsins með Valgeiri eru
Craig Beveridge, Robert Frederickson og Bill Valgardson
frá Victoria og eru þeir jafnframt í stjórn sjóðsins.
Styrktarsjóður fyrir Vesturfarasetrið
Morgunblaðið/Steinþór
Craig Beveridge, Robert Frederickson, Bill Valgardson og Valgeir Þorvaldsson í Victoria.
LANDSSTJÓRINN í Kanada,
Michaelle Jean, hefur tilkynnt að
Guðrún Bjerring Parker í Montreal
sé í hópi þeirra sem fái í ár næst-
æðsta stig kanadísku orðunnar The
Order of Canada. Guðrún verður
heiðruð fyrir framlag sitt til kan-
adískrar kvikmyndagerðar. The
Order of Canada er æðsta opinbera
orðan og hefur síðan 1967 verið
veitt árlega fólki sem hefur þótt
hafa skarað fram úr á ýmsum svið-
um.
Þátttaka Guðrúnar í kanadískri
kvikmyndagerð, fyrst og fremst
gerð heimildamynda, spannar um
40 ár og hjá Kvikmyndastofnun
Kanada (Canada’s National Film
Board, NFB) eru 55 myndir eyrna-
merktar henni. Hún var önnur kon-
an af íslenskum ættum til að vinna
að kvikmyndagerð í Kanada, næst á
eftir Margaret Ann Bjornson, sem
m.a. vann að heimildasöfnun fyrir
NFB vegna stuttmyndarinnar Ice-
land on the Prairies (1940). Guðrún
segist alla tíð hafa látið sig íslensk
málefni miklu varða og segist hafa
áhyggjur af landinu vegna átroðn-
ings stöðugt fleiri ferðamanna.
Foreldrar Guðrúnar, Sigtryggur
Olason Bjerring og Sigríður Jóns-
dóttir, fæddust á Íslandi, Sig-
tryggur á Húsavík 1885 og Sigríður
í Mývatnssveit 1886. Þriggja ára var
Sigtryggur sendur til Winnipeg, þar
sem Sigtryggur Ólafsson og kona
hans tóku hann að sér og ólu upp.
Foreldrar Sigríðar voru Jón Sig-
urðsson frá Gautlöndum og Guðrún
Einarsdóttir og flutti hún með móð-
ur sinni til Kanada 1893. Guðrún
fæddist 1920 og eftir að hafa út-
skrifast frá Manitoba-háskóla 1940
hóf hún störf sem blaðamaður hjá
Winnipeg Free Press. Fljótlega tók
hún viðtal við John Grierson, bresk-
an kvikmyndagerðarmann sem
vann fyrir kanadísku stjórnina, og
hann bauð henni að vera með í að
þróa deild fyrir gerð heim-
ildamynda hjá NFB. Hún tók boð-
inu og byrjaði hjá NFB í Ottawa
1942, bjó reyndar hjá fyrrnefndri
Margaret Ann Bjornson til að byrja
með, en Gordon Adamson, sem var
líka af íslenskum ættum og eig-
inmaður Margaret, var einnig í
kvikmyndagerðinni á þessum árum.
Guðrún og eiginmaður hennar,
Morten Parker, stofnuðu eigið kvik-
myndagerðarfyrirtæki, Parker Film
Associated Ltd., í Montreal og
framleiddu fjölmargar myndir áður
en þau hættu rekstrinum 1982. Síð-
an segist hún hafa notið lífsins en
maður hennar býr í New York á
veturna, þar sem hann kennir kvik-
myndanámskeið við New York-
háskóla.
Fyrir skömmu komu félagar í Ís-
lensk-kanadíska félaginu í Quebec
saman í kvikmyndasal NFB í Mont-
real til að gleðjast með Guðrúnu í
tilefni viðurkenningarinnar. Í hófinu
fór Guðrún yfir feril sinn og gestir
horfðu á þrjár myndir sem hún
stjórnaði, Listen to the Prairies
(1945), Opera School (1952) og
Stratford Adventure (1954).
Guðrún Parker fær
heiðursorðu Kanada
Haldið upp á áfangann. Frá vinstri: Wilbur Jónsson, Johanna Blondal, Sigrún Harðardóttir, Jóhannes Ólafsson,
Guðrún Parker, Rosé, Malcolm Olafson, Bernice Oddson Kinnon og Geneviève ’Sunneva’ Lussier.
Morgunblaðið/Steinþór
Guðrún Bjerring Parker á heimili sínu í Montreal.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
NEIL Ófeigur Bardal er á meðal 12
manns sem fá æðstu viðurkenningu
Manitoba-fylkis, The Order of Mani-
toba, við hátíðlega athöfn í næsta
mánuði. Hann er þriðji maðurinn af
íslenskum ættum til þess að hljóta
þessa viðurkenningu en hinir eru
Dr. Baldur R. Stefansson og John
Harvard.
Viðurkenningunni The Order of
Manitoba var komið á 1999 og er
veitt árlega en til þessa hafa 85
manns verið sæmdir henni. Hún er
veitt einstaklingum í Manitoba sem
hafa skarað fram úr á einhverju
sviði og vakið athygli fyrir fram-
göngu sína.
Peter M. Liba var fylkisstjóri
Manitoba 1999 til 2004 og var fyrst-
ur til að fá umrædda viðurkenningu
en hann var sá eini sem fékk hana
1999, þegar hann tók við embætt-
inu.
Tveir menn af íslenskum ættum
hafa verið sæmdir orðunni. Dr.
Baldur R. Stefansson, plöntuerfða-
fræðingur, gjarnan nefndur „faðir
matarolíunnar“, var heiðraður árið
2000 og John Harvard fékk orðuna
þegar hann tók við stöðu fylk-
isstjóra 30. júní 2004.
Neil Bardal er ættaður frá Svart-
árkoti í Bárðardal og hús hans í
Húsavík, rétt sunnan við Gimli, heit-
ir Svartárkot. Foreldrar hans voru
Njáll Ófeigur Bardal og Sigrid
Johnson. Afi hans og amma í föð-
urætt voru Arinbjörn Sigurgeirsson
Bárdal og Margrét Ólafsson. Þau
fluttu til Kanada seint á 19. öld rétt
eins og móðurforeldrar hans, Helgi
Jónsson frá Borgarnesi og Ásta Jó-
hannsdóttir.
Neil Bardal rekur, ásamt Annette
eiginkonu sinni, samnefnda útfar-
arstofu í Winnipeg og fetar þannig í
fótspor föður síns og afa, en auk
þess hefur hann verið mjög virkur í
íslensk-kanadíska samfélaginu í
fylkinu undanfarna áratugi. Neil
hefur látið til sín taka á öllum svið-
um þess og alls staðar verið í far-
arbroddi. Hann lét af störfum sem
kjörræðismaður Íslands í Gimli fyr-
ir þremur árum eftir að hafa hafið
störf fyrir utanríkisþjónustuna sem
aðalræðismaður í Manitoba 1994, en
er áfram þungavigtarmaður í flestu
sem viðkemur Íslandi og íslenskum
málefnum. Hann verður sæmdur
orðunni við hátíðlega athöfn í júlí.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Neil Ófeigur Bardal við heimili sitt
í Húsavík, rétt sunnan við Gimli í
Manitoba.
Neil Bardal
fær æðstu
viðurkenningu
Manitoba
ÍSLENDINGADAGSNEFND til-
kynnti fyrir skömmu að Erla
Helgason Wankling yrði fjallkona
ársins. Íslenska hátíðin í Gimli fer
fram fyrstu helgina í ágúst ár hvert
en fyrsta verk fjallkonunnar er að
leggja blómsveig að styttu Jóns Sig-
urðssonar fyrir framan þinghúsið í
Winnipeg 17. júní.
„Þetta kom mér mjög á óvart en
um leið er það mikill heiður að vera
valin fjallkona ársins 2006,“ segir
Erla og hlakkar til komandi verk-
efna.
Foreldrar Erlu voru Sigurveig
og Kristján Helgason frá Argyle,
suðvestur frá Winnipeg í Manitoba.
Foreldrar Kristjáns voru Jónas
Helgason og Sigríður Sigurð-
ardóttir. Þau bjuggu á Suður-
Neslöndum og sigldu frá Vopna-
firði áleiðis til Kanada 1887. Afi og
amma Erlu í móðurætt voru Hernit
Christopherson og Björg Björns-
dóttir sem bjuggu skammt frá
kirkjunni á Grund í Argyle eins og
föðurfjölskyldan.
Erla og Jim Wankling voru gefin
saman í Grundarkirkju, sem fjöl-
skyldumeðlimir hennar áttu þátt í
að byggja 1889. Þau eiga tvær dæt-
ur og tvö barnabörn.
Erla Helga-
son Wankling
fjallkona
ársins
Erla Helgason Wankling er fjall-
kona Íslendingadagsnefndar 2006.