Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 49
UMRÆÐAN
Starfsmenntanám
vi› LBHÍ
Kynntu flér starfsmenntanám
vi› LBHÍ - www.lbhi.is
Búfræ›i *
Gar›yrkja
• Blómaskreytingar
• Gar›yrkjuframlei›sla *
• Skógur og umhverfi *
• Skrú›gar›yrkja
* fiessar brautir bjó›ast einnig
í fjarnámi
7
júní
Umsóknafrestur fyrir
skólavist 2006 / 07
Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000
www.lbhi.is
ÍSLAND er of stórt og fámennt
fyrir lestarsamgöngur. Viðamiklum
samgöngum á milli landshluta er m.a
haldið uppi með flugvélum.
Erlendar borgir státa af járn-
brautarstöðvum og hafa þar að auki
flugvelli sem næst miðborginni. Má
þar nefna Berlín og London.
Þriðjungur Berlínar
er opin svæði. Samt er
hún fjölmennasta og
fjölsóttasta borg
Þýzkalands.
Stærsti flugvöllur
Berlínar, Berlin Tegel,
sem er millilanda-
flugvöllur, er nánast í
miðri borginni, 8 km
fjarlægð frá „Centr-
um“, einnig Tempelhof
flugvöllurinn í aðeins 6
km fjarlægð. Í þessari
glæsilegu borg eru
opnu svæðin og flug-
vellirnir ekki talin vandamál heldur
miklir kostir.
London státar af 4 flugvöllum og
er völlurinn London City Airport í
miðri borginni. Flugvöllurinn í Düs-
seldorf er 8 km frá Centrum; völl-
urinn í Hamborg 8 km ; Zaventem
völlurinn í Brussel 10 ; Kastrup 11
km frá miðborg K-hafnar; og svo
mætti lengi telja. Víðast hvar er lögð
áhersla á að hafa flugvellina innan
borgarmarka nema alstærstu milli-
landaflugvellina.
Það er fráleitt ásættanlegt fyrir
Reykvíkinga og aðra íbúa Stór-
Reykjavíkursvæðisins að láta bjóða
sér Keflavíkurflugvöll í 50 km fjar-
lægð sem innanlandsflugvöll. Um
landsbyggðina þarf ekki að fjölyrða.
Hólmsheiðarflugvöllur sýnist einn-
ig út úr korti vegna lakari veðurskil-
yrða.
Fráleitur er sá áróður að rútur geti
keppt við lestir. Það geta aðeins flug-
vélar enda ferðast lestirnar auðveld-
lega á 250 km hraða eða meir.
Að láta sér detta í hug að svipta
borgina eina alvöru almennings-
samgöngutækinu ber vott um ótrú-
lega annesjamennsku. Sjóndeild-
arhringurinn virðist
bara ná að næsta kaffi-
húsi hjá sumum.
Aðförin að Reykjvík-
urflugvelli hófst með
viðhorfskönnun í mars
2001 undir fölsku flaggi.
Með aðeins 18,4 %
Reykvíkinga að baki
sér lét þáverandi borg-
arstjóri (ISG) sig hafa
það að lýsa niðurstöð-
una stefnumarkandi.
Þetta ráðslag gekk
þvert á kynntar reglur
um lágmarks þátttöku
fyrir bindandi niðurstöðu. For-
ystusauðir Samfylkingarinnar vilja
innanlandsflugið til Keflavíkur. Þriðji
maður á listanum í Rvík (SJH), hefur
lýst sömu skoðun. Borgarstjóraefni
flokksins (DBE) talar óljóst eins og
honum er lagið og standa þeir tal-
færafimleikar væntanlega fram yfir
kosningar enda dagljóst að skoð-
anakönnun Gallup frá nóvember sl.
hefur valdið forystu flokksins áfalli.
Komið er á daginn að útboð á veg-
um Reykjavíkurborgar um skipulag
Vatnsmýrarinnar hefur verið dæmt
ólöglegt og það stöðvað. Útboðið gæti
því dagað uppi sem aukaforsýning á
því hvernig ekki á að beita opnu lýð-
ræði.
Hinir flokkarnir í Reykjvík hafa
allir lýst andstöðu sinni við flutning
innanlandsflugsins til Keflavíkur.
Tillaga Arngríms fyrrum forstjóra
Atlanta að hopa með A-V flugbraut
úr Vatnsmýrinni og framlengja útí
sjó er það lengsta sem menn ættu að
teygja sig verði á annað borð hreyft
við vellinum.
Í nefndri Gallup-könnun meðal
Reykvíkinga, vildu langflestir hafa
völlinn áfram í Vatnsmýrinni enda
engin brögð í tafli eins og í ISG-
könnuninni frá 2001.
Draumur Samfylkingarinnar um
að „ræna“ landinu undan Vatsmýr-
arvellinum og selja Vatsmýrina
hæstbjóðendum undir allt að 20 þús-
und manna blokkarkumbalda til að
minnka skuldasúpuna er að leysast
upp í svifryk.
Áróðurinn gegn vellinum keyrði
um þverbak í prófkjörsslagnum sl.
haust og misbauð hreinlega brjóstvit-
inu enda iðulega tómt rugl.
Dæmi: „Það er dýr landsbyggð-
arpólitík að halda uppi Reykjavík-
urflugvelli og fáir nota innanlands-
flugið“.
Skoðum þetta nánar:
Skv. Hagstofu Íslands fóru 347
þúsund farþegar um Reykjavík-
urflugvöll árið 2003. Nú stefnir í hálfa
milljón. Þetta samsvarar því að næst-
um öll þjóðin fari um völlinn tvisvar á
ári. Umreiknað á Keflavíkurveg yrði
það aukning um eitt til tvö þúsund
bíla að meðaltali á dag.
Í þessu ljósi er vert að líta á um-
mæli sem birtust í leiðara Mbl. 17.
sept sl: „Um leið og komið er út úr
Hafnarfirði tekur ekki nema 15-20
mínútur að aka til Keflavíkur.“
Vegalengdin er um 40 km og ef rit-
stjórinn telur í lagi að aka hana á
korteri, þá þýðir það 160 km hraða á
klst. Skyldi ritstjórinn hafa séð fyrir
sér allt að 2000 bíla á Keflavíkurveg-
inum í slíkum vitfirringsakstri á degi
hverjum? Varla!
Dæmi um órökstuddan hræðslu-
áróður:
„Flugvöllurinn er tifandi tíma-
sprengja“ (baksíða Fbl. 11.09.05).
Á 64 ára starfrækslutíma vallarins
hafa sjaldan orðið flugslys á Íslandi
og aldrei stærri en orðið hafa á þjóð-
vegum landsins. Flugið hefur sýnt
sig að vera margfalt öruggari ferða-
máti en ferðalög í bíl og auk þess
ódýrari ferðamáti þegar allt er reikn-
að. Reykvíkingar nýta flugið ekkert
síður en aðrir landsmenn.
Banaslysin og limlestingarnar á
þjóðvegum landsins eru gríðarlegt
áhyggjuefni.
Sót á ísilagðri Reykjavíkurtjörn
stafar af bílaumferð þó sumir áróð-
ursmeistarar hafi reynt að halda öðru
fram.
Umfangsmiklar mengunarmæl-
ingar á vallarsvæðinu sýna að flug-
umferðin hefur ekki mælanleg áhrif á
loftmengunina og reynist minni en í
Laugardalnum!
Borgin er falleg eins og hún er, það
sést best þegar flogið er inn til lend-
ingar í Vatnsmýrinni.
Aðförin að Reykjavíkurflugvelli
Daníel Sigurðsson fjallar um
Reykjavíkurflugvöll ’Að láta sér detta í hugað svipta borgina eina al-
vöru almenningssam-
göngutækinu ber vott um
ótrúlega annesja-
mennsku.‘
Daníel Sigurðsson
Höfundur er sjálfstætt
starfandi véltæknifræðingur. AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111