Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 53
UMRÆÐAN
Sony Ericsson Z300i
11.980 kr.
• Fallegur samlokusími
• Ytri skjár
• Valmyndakerfi á íslensku
• Vekjari og dagbók
Sony Ericsson W810i
37.980 kr.
• 2.0 megapixel myndavél
• Walkman MP3 spilari
• 512 MB minni
• Íslensk valmynd
www.siminn.is/davinci
Fáðu þér
Da Vinci
síma
KÆRI Hafnfirðingur!
Það er komið að tímamótum. Kjördagur er hátíðisdagur lýðræðisins
og tækifæri íbúa til að ákvarða hverjum er best treystandi fyrir stjórn
bæjarins okkar og að leggja fram áherslur fyrir næstu fjögur árin.
Sjálfstæðisflokkurinn býður fram fólk með ólíka reynslu; öflugan hóp
fólks sem tilbúinn er til forystu í Hafnarfirði.
Í fremstu röð
Við sjálfstæðismenn göngum til kosninga með það í huga að ætla að gera
góðan bæ betri. Við viljum koma Hafnarfirði í fremstu röð bæjarfélaga.
Metnaður okkar og markmið er að hér verði best að búa,
þjónustan við íbúana til fyrirmyndar og lífsgæðin eins og
best verði á kosið. Það er dýrt að búa í Hafnarfirði og því
vilja sjálfstæðismenn breyta. Okkur finnst óviðunandi að
Hafnfirðingar greiði einhverjar hæstu álögur á suðvest-
urhorninu. Við sjálfstæðismenn treystum okkur til að
bjóða fyrirmyndarþjónustu án þess að skattpína íbúana.
Þar skilur á milli stefnu sjálfstæðismanna og vinstri
aflanna. Í ljósi hagstæðra ytri skilyrða í efnahagslífinu er
enn frekari ástæða til að leyfa bæjarbúum að njóta góðærisins í meiri
mæli í eigin vasa. Það er hægt að gera með lægri sköttum.
Orð skulu standa
Samfylkingin í Hafnarfirði lofaði fyrir síðustu kosningar að lækka álög-
ur á bæjarbúa. Það var ekki gert og er umhugsunarefni fyrir íbúa á
þessum degi. Það er ekki stjórnmálamönnum sæmandi að setja fram
kosningaloforð sem ekki er staðið við. Sjálfstæðisflokkurinn í Hafn-
arfirði ætlar að lækka álögur á bæjarbúa fái hann umboð til þess frá
kjósendum að stjórna bænum okkar næstu fjögur árin.
Samfylkingin hefur reynt að gera þetta kosningaloforð okkar tor-
tryggilegt og þá fyrst og fremst til að verjast því að ræða hvers vegna
þeir efndu ekki sambærilegt kosningaloforð sem í dag er fjögurra ára
gamalt. Hafið þetta í huga þegar þið veljið ykkur listabókstaf í kjörklef-
anum.
Lýðræðið er dýrmætt
Lýðræði er afar dýrmætur hlutur og með því að nýta kosningaréttinn
erum við að ástunda lýðræðið. Ég hvet alla Hafnfirðinga til að hafa
skoðanir á þeim sem eru að bjóða sig fram til að stjórna Hafnarfirði
næstu fjögur árin og hvað þeir standa fyrir. Ég vil að lokum nota tæki-
færið og óska okkur öllum til hamingju með daginn!
Sjálfstæðisflokkinn
til forystu
Eftir Harald Þór Ólason
Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
ÞAÐ ER ótrúlegt en satt, að þrátt fyrir kuldakastið
síðustu daga er sumar í nánd. Óvíða eru vorkvöldin feg-
urri en hér við Breiðafjörð og af Snæfellsnesinu. Fegurð
sem eru forréttindi okkar sem fáum hennar notið án fyr-
irhafnar eða útgjalda úr eldhúsglugg-
anum, eða hvar annars staðar sem við er-
um stödd hér um slóðir.
Mótun og myndun Snæfellsbæjar
Með hækkandi sól fara hlutirnir að ger-
ast, náttúran tekur á sig nýjar myndir,
skammdegisskuggarnir hverfa, birta og
bjartsýni tekur hug okkar. Eins er það
með mig og flesta aðra. Þegar litið er til baka yfir fjög-
urra ára kjörtímabil hef ég notið þeirra forréttinda að
taka þátt í mótun og myndun Snæfellsbæjar. Þrátt fyrir
erfiðleika sem oft á tíðum hafa virst óyfirstíganlegir
vegna bágrar skuldastöðu bæjarfélagsins hefur okkur
tekist að hlúa að uppbyggingu bæjarins á fjölmörgum
sviðum,
Hagsmunir heildarinnar
Við sem höfum farið með stjórn bæjarfélagsins sl. fjögur
ár höfum á fjölmörgum sviðum borið gæfu til að snúa
bökum saman varðandi ýmsa þætti í rekstri bæjarins.
Kannski var það neyðin eða erfið fjárhagsstaða bæj-
arfélagsins sem sneið okkur þann stakk, að heillavæn-
legra væri fyrir bæjarfélagið að bæjarstjórnin öll stefndi
að sömu markmiðum. Með þeim afleiðingum, að seinni
tvö árin bárum við gæfu til að ganga sameiginlega frá
fjárhagsáætlunum með hagsmuni heildarinnar að leið-
arljósi en ekki eftir persónulegum metnaði einstakra
bæjarstjórnarmanna.
Á okkur var hlustað
Þróun bæjarmála varð til þess að á okkur J-listamenn
var hlustað og ýmsu af því sem við lögðum til hefur verið
hrundið í framkvæmd, svo sem:
Grunnskólarnir á Hellissandi og í Ólafsvík voru sam-
einaðir undir eina stjórn. Gæfuspor fyrir samfélagið og
börnin og gerir skólastarfið markvissara og faglegra.
Það gleðilega hefur gerst að samkvæmt nýlegri einelt-
iskönnun kemur í ljós að einelti, sem er dauðans alvara
hverjum þeim sem fyrir því verður, hefur minnkað veru-
lega í kjölfar þess að Olweusar-áætlun hefur verið fylgt.
Hafin er bygging íbúða fyrir eldri borgara og ráðgert
er að byggja við Jaðar á næsta ári.
Gengið hefur verið frá gervigrasvöllum fyrir börn og
unglinga, sem er liður í markvissu forvarnarstarfi. Fátt
er betur til forvarna fallið en skipulögð afþreying svo
sem íþróttir og jákvætt og uppbyggilegt skóla- og ung-
lingastarf.
Bjart framundan
Hafinn er undirbúningur að byggingu vatnsátöpp-
unarverksmiðju sem áætlað er að veiti allt að 40 manns
atvinnu og jafnvel mun fleiri ef vel tekst til. Safnast hafa
þrír milljarðar króna í hlutafé erlendis, sem duga til
byggingar verksmiðjunnar. Samkvæmt upplýsingum
forsvarsmanns verksins eru 99,9% líkur á að verk-
smiðjan rísi.
Markmið J-listans eru m.a.:
Auka framboð á byggingarlóðum fyrir einstaklinga
og verktaka.
Leggja áherslu á að auðvelda fyrirtækjum að hasla
sér völl í Snæfellsbæ.
Tryggja fjölbreytilegt búsetuform fyrir aldraða
með hjúkrunarþjónustu og góðri og markvissri heima-
þjónustu og koma í veg fyrir einangrun eldri íbúa.
Lækkun leikskólagjalda og auðvelda barnafólki að-
gengi að leikskólum og dagmæðrum.
Taka til hendinni og bæta aðbúnað nemenda og
kennara í skólum bæjarins.
Koma á samfelldum skóladegi þ.m.t. íþrótta- og tón-
listarnám í samstarfi við stjórnendur skólanna og
íþróttahreyfinguna.
Við viljum gera Snæfellsbæ að sannkölluðum úti-
vistarbæ í sátt við náttúru og umhverfi og nýta alla þá
möguleika sem Snæfellsjökull og þjóðgarðurinn gefur.
Við viljum gera bæinn okkar að fyrirmyndarbæ
með góðu samgöngukerfi með göngustígum fyrir gang-
andi og hjólandi og reiðstígum fyrir hestamenn.
Við ætlum að bæta aðgengi fatlaðra um bæinn
þ.m.t. að opinberum byggingum.
Við viljum hlúa að útivist og íþróttum bæjarbúa og
styrkja hestamenn, golfara og knattspyrnumenn til að
byggja fjölnota reiðhöll sem hægt er að nýta fyrir allar
þessar íþróttagreinar sem ella liggja að meira eða minna
leyti niðri yfir vetrarmánuðina.
Firrum okkur ekki ábyrgð
Við frambjóðendur J-listans munum berjast fyrir því að
gera góðan bæ betri á næsta kjörtímabili verði okkur
veittur styrkur til þess af kjósendum Snæfellsbæjar. Við
firrum okkur ekki ábyrgð á rekstri bæjarins á liðnu kjör-
tímabili. Við hikum ekki við að axla þá ábyrgð sem því
fylgir að bera ábyrgð á stjórn bæjarins og munum leggja
okkur öll fram til að gera gott samfélag betra. Sameinuð
erum við afl sem ekkert fær staðist.
Vor undir Jökli
Eftir Gunnar Örn Gunnarsson
Höfundur er oddviti J-listans í Snæfellsbæ.