Morgunblaðið - 27.05.2006, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 75
FRÉTTIR
ÞAÐ er greinilega kominn mikill
kosningaskjálfti í Samfylkinguna,“
sagði Gunnar Birgisson bæjarstjóri
Kópavogs á miðvikudag, um and-
stöðu Samfylkingar við vatnssamn-
ing Kópavogs og Garðabæjar.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar
greiddu atkvæði gegn samningnum,
sem gildir til fjörutíu ára og er óupp-
segjanlegur af hálfu Kópavogsbæjar.
Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi
Samfylkingar, segir að kostnaður
Kópavogsbúa verði um 270 milljónir í
stofnkostnað en auk þess muni þeir
niðurgreiða vatn til Garðbæinga á
þessu fjörutíu ára tímabili og sjálfir
greiða hærra vatnsgjald fyrir vikið.
Fyrstu tíu árin greiði Garðbæing-
ar 3.44 kr fyrir hvert tonn, næstu 10
árin þar á eftir 6.08 kr og 20 árin þar
á eftir 8,10 kr. fyrir tonnið. Raun-
kostnaður sé hins vegar 10 – 12 kr og
mismuninn greiði Kópavogsbúar. Þá
segir í tilkynningunni að kostnaður
Kópavogsbæjar bara til þess að
koma vatninu til Garðbæinga sé
röskar 90 milljónir. Líklega þurfi svo
að bora sérstakar holur fyrir 180
milljónir eða samtals 270 milljónir úr
bæjarsjóði í þágu Garðbæinga, fyrir
svo utan það að borga niður vatnið
þeirra í 40 ár.
„Kaldar kveðjur til Gusts“
„Vatnssamningurinn er mjög hag-
kvæmur báðum aðilum,“ segir Gunn-
ar. „Til að nýtt hestasvæði og nýtt
íbúasvæði Kópavogs geti komið til,
verður að leggja niður vatnsból
Garðabæjar við Vífilsstaðavatn.
Kópavogur leggur til vatn á lágu
verði fyrstu tíu árin en Garðabær
verður framtíðarkúnni Kópavogs
með vatn.“
Hann leggur áherslu á að þetta séu
kaldar kveðjur til hestamannafélags-
ins Gusts frá Samfylkingunni rétt
eina ferðina. „Þau vilja greinilega
þetta félag feigt. Ef samningurinn
gengi ekki eftir væri ekki mögulegt
að byggja hesthús á Kjóavöllum og
aðra aðstöðu,“ bætir Gunnar við og
segir ekki rétt að bora þurfi aukahol-
ur, í mesta lagi víkka þær sem fyrir
eru, með sáralitlum kostnaði.
Samfylkingin sakar meirihluta
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
um klúður í málefnum Gusts. Gunnar
vísar þeim ásökunum á bug og segir
Samfylkinguna hafa samþykkt deili-
skipulag fyrir íbúabyggð sem geri
hana samseka. „Svo er ljóst að hesta-
mannafélagið hefði ekki getað verið
til framtíðar beint við hraðbraut og
niðri við byggð.“
Hafsteinn bendir á að hægt sé að
koma hestum sem nú eru á svæði
Gusts, fyrir á Kjóavöllum án þess að
færa vatnsverndarlínu. Garðbæingar
ætli hvort eð er að stækka hesthúsa-
byggðina og hefðu því hag af að færa
vatnsverndarsvæðið.
Greinir á um hesthús
og vatnssamning
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mb.is
TALSVERÐAR verðhækkanir
hafa orðið í þjónustuverslunum og
klukkubúðum matvörukeðjanna
þegar bornar eru saman verðk-
annanir í matvöruverslunum í jan-
úar og nú í maí,
að því er fram
kemur á vef
ASÍ. Mun
minni hækkan-
ir hafa orðið í
lágvöruverðs-
verslunum.
Segir ASÍ að
verð á innflutt-
um vörum á
borð við kex og
morgunkorn, kaffi og ýmsar
pakkavörur hafi hækkað talsvert
milli kannana, en einnig brauð-
meti og drykkjarvörur auk græn-
metis og ávaxta. Þá hækkaði verð
á osti víðast hvar milli kannana.
Skoðaðar voru tvær vörukörfur
í mismunandi verslunargerðum
tveggja stærstu samstæðnanna á
matvörumarkaði.
Annars vegar var skoðuð vöru-
karfa í verslunum Hagkaupa,
Nóatúns, Bónuss og Krónunnar
og borið saman verð á henni í
könnunum í janúar og maí. Hins
vegar var skoðuð önnur vörukarfa
í verslunum Tíu-ellefu og Ellefu-
ellefu í sömu könnunum, en mis-
munur í vörukörfunum ræðst af
mismunandi vöruúrvali í þessum
verslunargerðum. Í maí kostaði
karfan 5.255 krónur í Bónus en kr.
5.329 krónur í Krónunni, en þarna
er aðeins 1,4% verðmunur.
Meiri munur í janúar
Munurinn á vörukörfunum milli
þessara verslana var mun meiri í
janúar, tæp 9% en þá kostaði karf-
an kr. 5.286 krónur í Bónus og kr.
5.758 krónur í Krónunni. Verð
körfunnar hefur hækkað mest í
verslun Nóatúns síðan í janúar,
um 7,6% og um 5,9% í Hagkaup-
um, að því er fram kemur á vef
ASÍ. Sama vörukarfan í lágvöru-
verðsverslunum lækkaði um 7,4%
í Krónunni en var nánast óbreytt í
Bónus þar sem hún lækkaði um
0,6%.
Seinni vörukarfan var aðeins
skoðuð í klukkubúðarkeðjunum
Tíu-ellefu og Ellefu-ellefu. Ekki
var um að ræða sömu vörukörfu í
klukkubúðunum og hinum versl-
ununum og því ekki unnt að bera
saman klukkubúðirnar tvær við
hinar verslanirnar. Lítill munur
reyndist á verði milli klukkubúða.
Í janúar kostaði karfan kr.
6.831 krónur í Tíu-ellefu en 6.862
krónur í Ellefu-ellefu sem er tæp-
lega 0,5% verðmunur. Í maí kost-
aði karfan kr. 7.152 krónur í Tíu-
ellefu en kr.7.125 krónur í Ellefu-
ellefu sem er 0,4% verðmunur.
Hækkaði karfa um 4,7% milli
kannana í Tíu-ellefu og um 3,8% í
Ellefu-ellefu.
Talsverðar verðhækkanir í
þjónustuverslunum og klukkubúðum
Kex og kaffi
dýrara
SIÐANEFND Blaðamannafélags
Íslands (BÍ) telur að DV hafi framið
ámælisvert brot gegn 3. grein siða-
reglna félagsins með fréttum, sem
birtust 20. og 23. janúar sl.. Þar var
m.a. fullyrt að framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hefði
beðið bréfbera í Keflavík að njósna
um íbúa. Framkvæmdastjórinn
kærði DV til siðanefndar.
Frétt birtist á forsíðu DV 20. jan-
úar 2006 undir fyrirsögninni:
„Magnús Guðjónsson, forstöðumað-
ur HES. Bað bréfbera í Keflavík að
njósna um íbúa. Ólöglegt segir for-
stjóri Persónuverndar.“ Mynd af
Magnúsi fylgdi fyrirsögninni og
frekari umfjöllun um málið var inni í
blaðinu. Magnús sendi blaðamanni
DV tölvupóst daginn sem fréttin
birtist og kvartaði undan fréttinni
sem hann sagði ranga og óskaði leið-
réttinga. Þann 23. janúar birtist síð-
an á forsíðu DV fyrirsögnin: „Magn-
ús H. Guðjónsson. Segir Póstinn
bera ábyrgð á njósnum“. Nánari frá-
sögn var inni í blaðinu.
„Framsetning DV í báðum þess-
um efnum, og sérstaklega forsíðu-
fyrirsagnir 20. og 23. janúar, er því
verulega ónákvæm og villandi og
ekki í samræmi við 3. grein siða-
reglna BÍ þar sem kveðið er á um að
blaðamaður vandi upplýsingaöflun
sína, úrvinnslu og framsetningu,
segir í niðurstöðu siðanefndarinnar.
Ámælisvert brot DV