Morgunblaðið - 27.05.2006, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 79
DAGBÓK
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Sameiginlegt
vorferðalag fimmtud. 8. júní: Ból-
staðarhlíðar s. 535 2760, Lindar-
götu s. 411 9450, Lönguhlíðar s.
552 4161 og Vesturgötu s.
535 2740. Ekið um Hvalfjörð,
komið við í Saurbæjarkirkju, veit-
ingar í Skessubrunni, Svínadal.
Lagt af stað kl. 12.30. Skráning og
greiðsla fyrir 5. júní. Ath. takmark-
aður sætafjöldi.
Dalbraut 18–20 | Félagsmiðstöðin
er öllum opin kl. 9–16. Félagsvist
mánudaga kl. 14. Hárgreiðslustofa
Guðrúnar, sími 553 3884. Hádeg-
ismatur alla daga. Alltaf heitt á
könnunni. Dagblöðin liggja frammi.
Handverksstofa Dalbrautar 21–27
opin kl. 8–16. Sími 588 9533.
Félagsheimilið Gjábakki |
Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Mánu-
daginn 29. maí er opið kl. 9–16.30,
leiðsögn í vinnustofum fellur niður
til hádegis, vegna frágangs handa-
vinnu- og listmunasýningar. Uppl. á
staðnum og í síma 575 7720
Hæðargarður 31 | Vorhátíð. Sýn-
ing Listasmiðju, ávarp fulltrúa not-
endaráðs, Tungubrjótar skemmta,
kvæðagerðarhópur kynnir nýút-
gefna ljóðabók, Draumadísirnar
syngja. Glaumur og gleði að hætti
Hæðargarðs. Hlaðborð. Kók og
prins fyrir börnin. Opið laugardag
kl. 14–17. Sýningunni lýkur 1. júní.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð |
Handverkssýning verður dagana
28.–29. maí. Opið frá kl. 13–17
báða dagana. Kaffi og góðar veit-
ingar. Komið og sjáið fallegt hand-
verk.
Kirkjustarf
SÁÁ, félagsstarf | Dansleikur og
félagsvist í Ásgarði Stangarhyl 4
laugardaginn 27. maí. Spila-
mennskan hefst kl. 20, dans að
henni lokinni um kl. 22.30.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Sýningin Huldukonur í íslenskri myndlist
fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru
nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar.
Þær nutu þeirra forréttinda að nema
myndlist erlendis á síðustu áratugum 19.
aldar og upp úr aldamótum. En engin
þeirra gerði myndlist að ævistarfi.
Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæ-
björnsdóttur og Mark Wilson að skapa
listaverk. Skytturnar skutu haglaskotum á
kort af miðborg Reykjavíkur. Gæludýra-
húsin sem urðu fyrir skoti voru mynduð og
eru til sýnis á Veggnum. Líka var unnið
með nemendum Austurbæjarskóla og má
sjá afraksturinn á Torginu. Til 11. júní.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á
kosningaminjum fyrri ára. Rifjið upp lof-
orðin og skemmtilegar minningar. Sýning
sett saman af nemendum Guðmundar
Odds í Listaháskóla og starfsmönnum
Borgarskjalasafns. Staðsetning: Grófar-
hús, Tryggvagata 15, 1. hæð. Ókeypis að-
gangur.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn frá kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðlunar-
sýning og gönguleiðir í nágrenninu. Sjá
nánar á www.gljufrasteinn.is
Listasafn Árnesinga | Tvær sýningar í
safninu. Sýningin HÉR er verðlaunasýning
Hrafnhildar Sigurðardóttur, en hún tók við
norrænu textíllistaverðlaununum í Svíþjóð
2005. Sýningin FORMLEIKUR – GEO-
METRIA er sýning Sonju Hakansson, en
hún var tilbúin með þessa einkasýningu
sama ár og hún lést árið 2003. Til 18. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sýnir Sig-
ríður myndir sem hún hefur tekið af börn-
um. Til 7. júní.
Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla
daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum fjölda leikmynda sem segja sög-
una frá landnámi til 1550. ww.saga-
museum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla dag kl. 11–18. Sjá nán-
ar á www.hunting.is
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning í bókasal:
Það gisti óður – Snorri Hjartarson 1906–
2006. Skáldsins minnst með munum,
myndum og höfundarverkum hans. Aðrar
sýningar: Handritin – m.a. Snorra Edda,
Eddukvæðin og Íslendingasögur. Þjóð-
minjasafnið svona var það – þegar sýning
þess var í risinu. Fyrirheitna landið –
vesturfarar.
Þjóðminjasafn Íslands | Nú stendur yfir
sýning á níu fornleifarannsóknum Kristni-
hátíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2. hæð.
Hér gefst tækifæri til að skoða úrval gripa
sem komið hafa úr jörð á síðustu árum en
mikil gróska hefur verið í fornleifarann-
sóknum. Vafalaust munu niðurstöður
þeirra með tímanum breyta Íslandssög-
unni. Boðið er upp á fræðslu og þjónustu
fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safn-
búðar og kaffihúss. Opið alla daga kl. 10–17.
Leiklist
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ | Skagaleik-
flokkurinn sýnir Hlutskipti eftir Kristján
Kristjánsson í Bæjarleikhúsinu í Mosfells-
bæ. Miðapantanir í síma 431 3360. Miða-
sala við inngang.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hermann Ingi jr. spilar og
syngur í kvöld.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Góðir landsmenn leikur fyrir dansi.
Paddýs | Dúettinn Sessý og Sjonni leikur í
kvöld. Leikar hefjast á miðnætti. Frítt inn.
Ráðhús Þorlákshafnar | Hljómsveitin Til-
þrif leikur í kvöld.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verð-
ur í Ásgarði Stangarhyl 4 og hefst spila-
mennskan kl. 20. Dans að henni lokinni
fram efti nóttu.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur fyrir dansi um
helgina, húsið opnað kl. 22, frítt inn til mið-
nættis.
Þingborg | Dekurkvöld! Tískufatnaður G.
Elsu Ásgeirsdóttur, klæðskera og fata-
hönnuðar, undirfatakynning frá versluninni
Ynju. Matur frá Rauða húsinu á Eyrar-
bakka. Glæsileg danssýning, fiðluleikur og
söngur. Kynnir Bergsveinn Theódórsson.
Verð 3.800, pantanir í síma 691 7082 /
891 8884.
Mannfagnaður
Ásatrúarfélagið | Hið árlega Gróður- og
grillblót verður haldið í Aronsbústað kl. 14.
Jóhanna Harðardóttir Kjalnesingagoði
helgar blótið. Grill á staðnum en gestir
verða sjálfir að koma með grillmat. Allir
velkomnir, nánari upplýsingar hjá Jöhönnu
s. 566 7326 og 699 3250.
Þingborg | Í félagsheimilinu Þingborg
verða úrslit í kosningum til sveitarstjórnar í
nýja sveitarfélaginu í Flóanum birt og nið-
urstaða í könnun um nafn á sveitarfélagið
tilkynnt. Kosningasjónvarp á breiðtjaldi.
Kosningavakan hefst kl. 23.
Fyrirlestrar og fundir
Alþjóðahúsið | Félag túlka heldur aðalfund
í dag kl. 13, á þriðju hæð í Alþjóðahúsinu við
Hverfisgötu.
Þingborg | Erlingur Brynjólfsson sagn-
fræðingur heldur erindi um árveitur og
votlendi í Flóanum, 28. maí kl. 16–17.30.
Tómas Grétar Gunnarsson dýrafræðingur
fjallar um votlendi í Flóanum og gildi þess
fyrir fuglalíf og náttúru.
Þjóðminjasafn Íslands | Jónas Kristjáns-
son flytur fyrirlestur í dag kl. 14, um leið-
angur Þorfinns Karlsefnis og Guðríðar til
Vínlands hins góða. Þau bjuggu þar þrjá
vetur en urðu að hverfa frá vegna ófriðar.
Jónas kemur með nýtt mat fornra heimilda
og hefur m.a. kannað austurströnd Ný-
fundnalands þar sem hann telur Vínland
hafa verið.
Fréttir og tilkynningar
Austurvöllur | Ganga frá Hlemmi að Aust-
urvelli fyrir verndun íslenskrar náttúru og
gegn frekari stóriðjuframkvæmdum verður
í dag kl. 13. Stórsveit leiðir gönguna og að
henni lokinni verða tónleikar, bíó og karni-
valstemning á Austurvelli. Sigur Rós,
Hjálmar, Ragnhildur Gísla og KK eru meðal
þeirra fjölmörgu sem taka þátt.
GA-fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða
þína aðstandendur? Hægt er að hringja í
síma: 698 3888.
Útivist og íþróttir
Íþróttahúsið Mýrin | Vatnsleikfimi í Mýr-
inni Garðabæ fyrir eldri borgara kl. 9.30–
10.30, mánudaga og miðvikudaga. Fyrir
yngra fólk kl. 7.40–8.20, fjórum sinnum í
viku. Skráning er hjá Önnu Díu íþróttafræð-
ingi í síma 691 5508. Mýrin er við Bæjar-
braut í Garðabæ.
Þingborg | Gönguferð á Hvítárbökkum 28.
maí. Sameinast er í bíla við Þingborg Í
Hraungerðishreppi kl. 18 og lagt upp í
gönguferð. Úr Merkurhrauni að flóðgátt-
inni, inntaksmannvirki Flóaáveitunnar.
Vegalengd um 6 km. Göngustjóri Bolli
Gunnarsson.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is 60 ÁRA afmæli. Í dag, 27. maí, ersextugur Valur Hólm Sigur-
jónsson, vélfræðingur, Lerkilundi 11
á Akureyri. Hann verður að heiman,
ásamt eiginkonu sinni Fjólu Stefáns-
dóttur, á afmælisdaginn.
60ÁRA afmæli. Á morgun, sunnu-daginn 28. maí, verður sextug
Guðrún María Harðardóttir, Arnar-
kletti 23, Borgarnesi. Af því tilefni tek-
ur hún og fjölskylda hennar á móti gest-
um á Hótel Hamri (ofan við Borgarnes)
kl. 15-18. Blóm og gjafir afþakkaðar.
75 ÁRA afmæli. Á morgun, 28.maí, verður Bragi Ásgeirsson,
listmálari, lærimeistari, listrýnir og
greinahöfundur 75 ára. Hann tekur á
móti gestum á sýningu á nýjum mál-
verkum sem opnar í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg kl. 15-17 í dag.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Við erum
stoltar af stefnunni
okkar!