Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 88
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
HNÚFUBAKUR heimsótti gömlu höfnina í
Reykjavík um níuleytið í gærkvöld og
svamlaði þar í um hálftíma. Að sögn sjón-
arvotta var hvalurinn a.m.k. 15 metra lang-
ur.
Þetta er í annað skipti á tveimur árum
sem hnúfubakur heimsækir Reykjavík-
urhöfn, en það mun mjög sjaldgæft.
„Hann var kannski í hálftíma hér inni, en
svo fóru þeir út á eftir honum á hvalaskoð-
unarbátnum Eldingu og sáu síðast í hann í
hafnarkjaftinum við Ingólfsgarðinn,“ segir
Jónas Agnarsson hafnsögumaður í Reykja-
víkurhöfn.
„Við vorum á leiðinni í land með kennara
úr Klébergsskóla á Kjalarnesi, sem voru í
sjóstangaferð, þegar við fengum hringingu
frá hafnarvörðum um að það væri hvalur í
höfninni,“ segir Rannveig Grétarsdóttir,
starfsmaður hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu
Eldingu. „Þetta vakti mikla hrifningu hjá
fólkinu, sem hafði spurt hvort við gætum
farið í hvalaskoðunarferð, en það var ekki
tími til þess. Þetta var því mjög óvæntur og
skemmtilegur endir á ferðinni. Því við höf-
um ekki séð hnúfubak í þrjár vikur í hvala-
skoðunarferðum, þótt vissulega höfum við
séð aðra hvali.“
Ljósmynd/Elva Sara Ingvarsdóttir
Hnúfubakur í
gömlu höfninni FÉLÖG í eigu feðganna Björgólfs Guðmunds-
sonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar áttu í
viðskiptum á hlutabréfamarkaðnum í gær sem
nema 14–15 milljörðum króna. Um miðjan dag
var tilkynnt til Kauphallarinnar að eignarhalds-
félag þeirra, Samson, sem einnig er í eigu Hers-
is – ráðgjafar og þjónustu, hefði keypt 110,2
milljónir hluta í Landsbanka Íslands á genginu
21,3. Kaupverð hlutarins nemur því um 2,3
milljörðum króna og er eignarhlutur Samsonar
í Landsbankanum orðinn 41,2% eftir viðskiptin.
Fari eignarhald eins aðila í 45% myndast yf-
irtökuskylda.
Annað félag í eigu Björgólfsfeðga, Ópera fjár-
festingar ehf., gerði svo samning við Sund ehf.
um kaup á 15,55% hlutafjár í Fjárfestingar-
félaginu Gretti. Samkvæmt upplýsingum blaðs-
lög, öll tengd Björgólfi Thor og Björgólfi Guð-
mundssyni, um 37% hlut í Straumi-Burðarási.
Sund ehf., sem er í aðaleigu systkinanna Jóns
og Gabríelu Kristjánsbarna og móður þeirra,
Gunnþórunnar Jónsdóttur, átti svo í frekari við-
skiptum við Björgólfsfeðga í gær með tilfærslu
á hlutum í Tryggingamiðstöðinni. Sund seldi
32,9% hlut sinn í TM til Blátjarnar ehf.. fyrir um
10,4 milljarða króna, þar sem gengi á hlut var
33,9 kr. en gengi bréfa TM við lok viðskipta í
gær var 38,5 kr.. Blátjörn er í 49% eigu Sunds,
félögin Novator og Hansa, sem bæði eru í eigu
Björgólfsfeðga, eiga 24,5% hlut hvort og Hersir
á 2%. Hlutur félaga í eigu feðganna í þessum
viðskiptum var því um fimm milljarðar króna.
Einnig var tilkynnt sala á 28 milljóna króna
hlut TM í sjálfu sér, fyrir um 1,1 milljarð króna.
Þar af keypti Samherji tæpar 23,4 milljónir
hluta og Óskar Magnússon, forstjóri TM, tæpar
4,7 milljónir, sem var nýting á kauprétti.
ins var kaupverðið kringum 7–8 milljarðar
króna. Samanlagður hlutur Landsbankans og
Óperu í Gretti er nú um 51%, Tryggingamið-
stöðin á rúm 31% og Sund hélt eftir 18% hlut.
Grettir er stærsti hluthafinn í Straumi-Burð-
arási Fjárfestingabanka, með nærri 17% hlut,
en sem kunnugt er þá er Björgólfur Thor
stjórnarformaður Straums. Ef hlutur Lands-
bankans og Samsonar bætist við eiga þessi fé-
Breytingar á eignarhaldi í
Gretti, Landsbanka og TM
Eignarhaldsfélög tengd Samson eiga nú um 37% í Straumi-Burðarási
Eftir Kristján Torfa Einarsson
og Björn Jóhann Björnsson
8 #
.$
+ ! # ++
:&$3/
4;
"
%./#/
!<=./#/
< ./#/
)<>
<!>
=!<'>
#$
9*,##
&# #&? '>@
A #$#?!>@
SÍMALÍNURNAR hjá Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi voru nán-
ast rauðglóandi á miðvikudaginn
þegar frétt um grein Vals Ingi-
mundarsonar í Skírni um orrustu-
þoturnar í Keflavík birtist.
Gunnar Ingimundarson, starfs-
maður hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi, sagði að fólk hefði
bæði hringt til þess að spyrjast fyr-
ir um heftið og áskrift að tímaritinu
og talsvert margir hefðu komið til
að kaupa sér eintak. Þetta væri
óvenjulegt. „Svo virðist sem efni
um stjórnmál veki alltaf meiri
áhuga hjá fólki en greinar um
menningu, – jafnvel þótt skrifað sé
um hugsanlegan fund á beinum Eg-
ils Skallagrímssonar í Mosfellsdal
þá fáum við ekki svona viðbrögð.“
Halldór Guðmundsson hefur tek-
ið við ritstjórn Skírnis og er vor-
heftið það fyrsta sem kemur út
undir hans stjórn. Halldór segir
ekki ætlunina að umbylta þessu
aldna og virðulega tímariti en
áherslur færist auðvitað til með
nýjum ritstjóra. Hann segir að sér
hafi virst vera aukin eftirspurn eftir
alvöru greinum um samfélagsmál
og fræði í þjóðlífinu, eins og sjáist
af viðbrögðum við bók Andra Snæs
Magnasonar, Draumalandinu.
„Skírnir á að vera hluti af slíkri um-
ræðu um leið og hann er vettvangur
fræðigreina,“ segir Halldór og bæt-
ir við: „Hann á að vera eins og
hljómsveitin í Stuðmannamyndinni,
hæfilega þvæld en snyrtimennskan
ávallt þó í fyrirrúmi.“
Rauðglóandi símalínur hjá Skírni
Lesbók | 5
KOSNINGAR til sveitarstjórna
fara fram í dag og kjörkassar,
sem nota á við kosningarnar í
Reykjavík, voru fluttir í Ráðhús
Reykjavíkur í gær. Þeir voru
tilbúnir til notkunar í gær-
kvöldi, að sögn Ólafs Hjörleifs-
sonar, lögfræðings hjá Reykja-
hefst flokkun og talning at-
kvæðanna. Þegar kjörstöðum
verður lokað, klukkan 22, verð-
ur seinni skammtur kassanna
fluttur í Ráðhúsið og talningu
haldið áfram. Von er á fyrstu
tölum skömmu eftir lokun kjör-
staða.
kassa komið fyrir í hverri kjör-
deild. Kjörfundur hefst klukkan
níu í dag en milli klukkan 18 og
18.30 verður skipt um kassa á
kjörstöðunum, segir Ólafur, og
þá verða notuðu kassarnir flutt-
ir í Ráðhúsið og „innsiglaðir
með vöskum hópi fólks“ en svo
víkurborg. Ólafur sagði að
snemma í dag myndu fulltrúar
allra hverfiskjörstjórna taka á
móti kjörkössunum og kjör-
gögnum í Ráðhúsinu og flytja á
kjörstaði borgarinnar í lög-
reglufylgd. Kjörkassarnir eru
79 talsins og verður einum
Morgunblaðið/ÞÖK
Gunnar Guðjónsson var meðal þeirra sem unnu að því að koma kjörkössunum fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Kjörkassarnir til reiðu
„ÞAÐ verður verra ástand í sumar en er
núna. Það er órói og það er kvíði í starfsfólk-
inu.“ Þetta segir Anna Stefánsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri Landspítala – háskólasjúkra-
húss (LSH) um skort á
hjúkrunarfræðingum á spítalanum. Þessi
skortur hefur verið viðvarandi í nokkur ár,
en ástandið er að versna, að sögn Önnu. Nú
vantar um 100 hjúkrunarfræðinga til starfa.
Önnu reiknast svo til að á næstu 10 árum
hætti um 300 hjúkrunarfræðingar sökum
aldurs, en þetta er sá hópur sem útskrif-
aðist á áttunda áratugnum, þegar mun fleiri
voru í hjúkrunarnámi en nú. „Það er ekkert
sem bendir til þess að við munum hafa
nægilega marga hjúkrunarfræðinga til að
taka við þeirra störfum.“
Anna segir að vinnuálag á hjúkrunar-
fræðinga hafi aukist vegna fjölgunar sjúk-
linga og fjölgunar aðgerða. Sjúklingar á
legudeildum séu ennfremur bráðveikari en
áður. Álag á hjúkrunarfræðingum sé því
mikið og óánægja sé meðal þeirra með laun.
Spáir erfiðu
ástandi á
LSH í sumar
Nauðsynlegt | 44
♦♦♦