Morgunblaðið - 02.09.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 19
Dolce & Gabbana
Chanel
Prada
Donna Karan
Lindberg
Versace
Roberto Cavalli
Bulgari
Tom Ford og fl.
Linsur - Gleraugu - Sjónmælingar
Gleraugu eru skart
LOSUN manna á koldíoxíði út í and-
rúmsloftið mun hafa alvarleg áhrif á
heimshöfin, valda hlýnun í loftinu en
einnig hærra sýrustigi í sjónum, seg-
ir í nýrri skýrslu sérstakrar ráð-
gjafanefndar þýskra stjórnvalda,
WGBU, en nefndin fjallar um breyt-
ingar í heiminum og rétt viðbrögð.
Mun þessi þróun ásamt ofveiði draga
enn frekar úr styrk fiskistofna.
Hækkun sjávarborðsins veldur auk-
inni tíðni flóða og hvirfilbylja í
strandhéruðum heimsins og verður
því að grípa til nýrra verndarað-
gerða fyrir slík svæði og finna leiðir
til að takast á við vanda flóttamanna
frá svæðunum þegar þar að kemur.
Brugðist verði skjótt við
Ekki næst árangur í slíkum að-
gerðum nema barist verði að kappi
gegn hlýnandi loftslagi og hækkandi
sýrustigi í heimshöfunum, segir í
skýrslunni sem nefnist Heimshöf
framtíðarinnar: Þau hitna, hækka og
súrna. Umræddar breytingar eigi
allar rætur í aukinni losun svo-
nefndra gróðurhúsalofttegunda,
segir í skýrslunni, einkum koldíox-
íðs, og því sé brýnt að stöðva aukna
losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið í
tæka tíð.
WGBU leggur áherslu á að hratt
verði brugðist við þróuninni, vegna
þess hve hægt hljóti að ganga við að
snúa við slíku tafli við muni aðgerðir
mannkynsins núna ákvarða ástand
heimshafanna til marga alda.
Bent er á að aukið hlutfall koldíox-
íðs í loftinu hafi ekki einvörðungu
þau áhrif að hækka hitastig í and-
rúmsloftinu, koldíoxíð leysist einnig
upp í sjó og valdi þetta hærra sýru-
stigi í höfunum sem sé þegar farið að
verða mælanlegt. Verði ekki brugð-
ist við þeirri þróun geti sýrustigið
hugsanlega orðið hærra í höfunum
þegar á þessari öld en það hafi verið í
margar milljónir ára. Sýrustigið hafi
einkum slæm áhrif á kóralla og ann-
að í lífríki hafsins sem gegni lykil-
hlutverki í fæðukeðjunni og hnatt-
rænni myndun lífefna.
Tryggja beri sjálfbæra
nýtingu fiskistofna
„Hækkandi hitastig sjávar ógnar
fjölmörgum samfélögum sjávarins
og fiskstofnum,“ segir í skýrslunni.
„Áhættan sem þessu fylgir er óút-
reiknanleg, einkum varðandi trygga
öflun matar fyrir fólk: Um 15% af
öllu prótíni sem við borðum koma úr
fiski.“
WGBU segir að tryggja verði
sjálfbæra nýtingu á náttúruauðlind-
um hafsins, einkum sé brýnt að
koma í veg fyrir ofveiði á fiski.
„WGBU leggur einnig til að minnst
20–30% af hafsvæðum heimsins
verði gerð að verndarsvæðum,“ seg-
ir í skýrslunni og lögð er áhersla á að
framfylgt verði ákvörðunum um
verndarsvæði sem teknar hafi verið,
m.a. á heimsráðstefnunni um sjálf-
bæra þróun í Jóhannesarborg.
„Þessum [ákvörðunum] verður nú að
framfylgja og bæta úr skortinum á
reglum um opin hafsvæði með því að
gera viðeigandi alþjóðasamninga.“
Að dæla koldíoxíði í jarðlög
Skýrsluhöfundar segja að til séu
aðferðir til að klófesta koldíoxíð sem
losnar úr jarðefnaeldsneyti í orku-
verum og koma því síðan fyrir í jarð-
lögum á landi eða lögum á hafsbotni.
Einnig sé rætt um að dæla koldíoxíði
í djúp sjávarlög en ókostirnir séu að
slík aðferð geti valdið tjóni á lífríkinu
þar. Þeir vilji því að almennt sé
bannað að nota þá aðferð.
„Á hinn bóginn getur það verið
bráðabirgðalausn og verndað lofts-
lagið að koma koldíoxíði fyrir í jarð-
lögum á hafsbotni, til viðbótar sjálf-
bærari aðferðum eins og að nýta
betur eldsneyti og auka notkun end-
urnýjanlegra orkugjafa. Aðeins ætti
þó að leyfa slíkar ráðstafanir ef um
er að ræða trausta varðveislu í ljósi
umhverfisverndar og ljóst sé að
næstu 10.000 árin sé um örugga
geymslu að ræða.“
„Hitna, hækka og súrna“
Þýsk sérfræðinganefnd segir heimshöfin í hættu vegna vax-
andi koldíoxíðlosunar og telur brýnt að grípa til aðgerða
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is »Örlítið koldíoxíð er í ölluandrúmslofti en hlutfallið
hefur aukist vegna kola- og ol-
íubrennslu.
»Losun koldíoxíðs frá orku-verum og farartækjum er
talin eiga þátt í hækkandi með-
alhitastigi á jörðinni.
»Aukinn hiti veldur bráðnumjökla sem hækkar yfirborð
sjávar. Það getur komið illa
niður á láglendum strand-
svæðum.
Í HNOTSKURN
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111