Morgunblaðið - 02.09.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 23
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Það er hér troðfullt af
nemendum og við nýtum allar stofur
og sali eins og hægt er. Þetta er ansi
þétt og heilmikið mál að koma öllu
heim og saman og útbúa stundatöflu
fyrir þennan stóra hóp. Við erum með
þjálfað starfsfólk sem gengur frá
þessu öllu og það er visst afrek,“ sagði
Örlygur Karlsson skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurlands sem gegnir
starfinu þetta árið í fjarveru Sigurðar
Sigursveinssonar sem er í leyfi frá
skólanum. Hann er nú verkefnisstjóri
í menntamálaráðuneytinu og vinnur
að verkefni sem lýtur að breyttri
námsskipan til stúdentsprófs og
auknum sveigjanleika í skólakerfinu.
„Aðalbygging skólans er hugsuð
fyrir 650 nemendur en við höfum
fengið fleiri stofur í nýja íþróttahús-
inu Iðu,“ sagði Örlygur en benti á að
skólanum væri mikil nauðsyn að fá
meira húsnæði, einkum til þess að
geta sinnt nemendum varðandi verk-
legar greinar, þá væri orðið mjög
þröngt á kennarastofu skólans og
starfsmannaeldhús allt of lítið.
Þrjár íþróttaakademíur
Sjúkraliðabrú er nýjung á þessu
skólaári en þar er um að ræða styttra
nám til sjúkraliðaprófs. Til að komast
að á þeirri braut þurfa nemendur að
hafa lokið námskeiðum og hafa
ákveðna starfsreynslu. Þrjár íþrótta-
akademíur eru við skólann. Körfu-
boltaakademía með 12 nemendum
sem stofnuð var í fyrra, 25 eru í hand-
boltaakademíunni og í knattspyrnu-
akademíunni eru 40. Hestamennska
er nú á sérstakri braut, með 30 nem-
endur, og fer verkleg kennsla fram í
Austurkoti í nágrenni Selfoss. Hópur
nemenda úr grunnskólum á Suður-
landi stundar nám við skólann, sam-
tals 37 nemendur ýmist í fjarnámi eða
þeir koma í fjölbrautaskólann úr
Vallaskóla á Selfossi. Um 15 nemend-
ur úr grunnskóla munu koma inn sem
fullgildir nemendur um áramót og er
það nýjung.
„Þetta er stór hópur og gott sam-
félag hérna. Húsið hér er hannað sér-
staklega utan um skólastarf með
áfangakerfi í huga. Miðrýmið tekur á
móti öllum þegar þeir koma úr tímum
og það virkar vel, sagði Örlygur sem
hefur starfað við skólann frá stofnun
hans en síðan eru liðin 25 ár og verður
haldið upp á þau tímamót 13. sept-
ember en þann dag 1981 var skólinn
settur í fyrsta sinn.
„Það verður haldið upp á þetta með
dagskrá og við gerum ráð fyrir að all-
ir, nemendur og starfsfólk taki þátt í
afmælinu á einhvern hátt. Mér finnst
þetta nú eiginlega vera þannig að
skólinn eigi mig og ég hann. Maður
hefur helgað sig þessu í gegnum árin.
Þetta er mjög oft skemmtilegt og gef-
andi en líka erfitt. Það er ýmislegt
sem gerist sem erfitt er að mæta eins
og til dæmis slysum sem verða.“
Næsta skref er háskóli
Örlygur er mikill áhugamaður um
skólastarf. Hann ber hag nemend-
anna fyrir brjósti og vill að þeir fái
meiri tækifæri á heimaslóð. „Það
hlýtur að gerast á endanum að hér
verði háskóli af einhverri gerð, ann-
aðhvort sjálfstæður skóli eða háskóli
sem tengist Fjölbrautaskólanum og
Fræðsluneti Suðurlands. Það þarf að
koma meira fé til Fræðslunetsins frá
ríki og sveitarfélögum. Annað sem á
okkur brennur er að við þurfum
meira fé til þess að geta sinnt betur
nemendum sem eru illa staddir í
námi. Til að geta komið til móts við þá
þurfum við meira pláss fyrir verkleg-
ar valgreinar. Hér eru ótal nemendur
með greiningar af ýmsu tagi sem við
þurfum að geta sinnt betur. Ef við
náum því ekki getur myndast brott-
fallshópur sem ekki næst að virkja til
náms,“ sagði Örlygur.
Örlygur Karlsson skólameistari hefur starfað við Fjölbrautaskóla Suðurlands frá stofnun
Finnst oft að skólinn
eigi mig og ég hann
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Tímamót Örlygur Karlsson hefur starfað við Fjölbrautaskóla Suðurlands
frá stofnun, í aldarfjórðung, og vill sjá hann þróast frekar. Haldið verður
upp á afmæli skólans síðar í mánuðinum.
Eftir Sigurð Jónsson
»Skráðir nemendur FSu erusamtals 1.024 á haustönn.
» 932 nemendur eru í dag-skóla, grunnskólanem-
endur í fjarnámi eru 19, á
sjúkraliðabrú eru 18 nemendur
og 30 nemendur eru í meist-
araskóla.
»Á Litla-Hrauni eru 22 nem-endur og 3 á Sogni.
»Kennarar eru 85 og aðrirstarfsmenn 34. Starfsmenn
við akademíur skólans og
hestabraut eru 10.
»Samtals eru 1.153 í námi ogstarfi við skólann.
Í HNOTSKURN
Selfoss | Atlantsolía hef-
ur fengið vilyrði fyrir lóð-
inni Fossnesi 2 á Selfossi
fyrir nýja bensínstöð með
sjálfsafgreiðslu. Lóðin
liggur að Suðurlandsvegi
við innkeyrsluna til bæjar-
ins.
„Það er ljóst að mark-
aðssvæðið fyrir austan
fjall er stórt og í reynd
miklu stærra en menn
gera sér grein fyrir við
fyrstu sýn. Það er ör vöxt-
ur á þessu svæði og því
mjög álitlegt að setja upp
sjálfsafgreiðslustöð
hérna,“ sagði Albert Þór
Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Atlantsolíu,
sem gerir ráð fyrir að undirbúnings-
ferli og bygging stöðvarinnar taki
um sex mánuði.
Í næsta nágrenni við lóðina er
stórt afhafnasvæði fyrirtækja og
meðal þeirra eru fjórar bílasölur. Al-
bert sagði að einnig væri litið til
þeirrar miklu umferðar sumarhúsa-
fólks sem fer um Biskupstungna-
brautina og sækir þjónustu á Sel-
foss.Við sjáum fyrir okkur að þjóna
bæði Selfossbúum, sumarhúsafólki
og reyndar Sunnlendingum öllum.
Við erum með þessari stöð að fylgja
eftir þróun okkar á höfuðborgar-
svæðinu.
Albert lét þess getið að hann ætl-
aði sjálfur að flytja búferlum austur
fyrir fjall og setjast að á Selfossi.
„Mér finnst þetta mjög gott svæði og
ég horfi til þess að hér er gott að ala
upp börn og þjónustan á svæðinu er
góð og fer vaxand,“ sagði Albert Þór
Magnússon.
Atlantsolía byggir bensínstöð á Selfossi
Stærra markaðssvæði
en í fyrstu sýnist
Lóðin Albert Þór Magnússon, framkvæmda-
stjóri Atlantsolíu, skoðaði nýju bensínstöðvar-
lóðina á Selfossi. Hann sest að á Selfossi á svip-
uðum tíma og stöðin verður opnuð.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfoss | Alla þriðjudagana í sept-
ember verða að venju haldnir tón-
leikar í Selfosskirkju. Tónleikarnir
eru haldnir á vegum Tónlistar-
nefndar Selfosskirkju og hefjast
kl. 20.30 og aðgangur er ókeypis.
Fyrstu tónleikarnir af fjórum
verða haldnir þriðjudagskvöldið 5.
september kl. 20.30. Þá leika séra
Gunnar Björnsson á selló og
Haukur Guðlaugsson og orgel og
píanó.
Á efnisskránni eru m.a. verk
eftir J.S. Bach, Fr. Handel, Chr.
W. Gluck, Claude Debussy, C.
Saint-Saëns, Árna Thorsteinson,
Pál Ísólfsson og Björgvin Þ. Valdi-
marsson.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Æfing Haukur Guðlaugsson og
Gunnar Björnsson æfa saman.
September-
tónleikar í
Selfosskirkju
ÖRLYGUR Karlsson notar tómstundir sínar til þess að lesa ljóð og raunar
bækur af öllu tagi.
„Ljóðin höfða gjarnan til mín og ég hef gaman af þeim, þau snerta mann
á sinn hátt. Svo fer ég yfirleitt í eina góða göngu á hverju sumri sem starfs-
menn skólans skipuleggja. Núna í sumar gengum við á Sveinstind og Gjá-
tind, um Skælinga og enduðum í Hólaskjóli. Það var mjög góð ferð. Svo
held ég tengslum við löndin þar sem ég bjó á námstímanum, Þýskaland og
Frakkland, það er alltaf mjög gott að koma þangað,“ sagði Örlygur.
Gengur og les ljóð