Morgunblaðið - 17.09.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 252. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is JAZZHÁTÍÐ TÓNNINN SLEGINN FYRIR JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR MEÐ ÞRIÐJU PLÖTU TYFT » 56 KÓRÓNAN EASTWOOD ORÐAÐUR VIÐ TVO ÓSKARA KVIKMYNDIR » 20 ÞEGAR síðustu skoðanakannanir fyrir þingkosningarnar í Svíþjóð í dag voru birtar um helgina benti flest til að borgaraflokkarnir myndu hafa sigur og að kjósendur hefðu kosið að binda enda á tólf ára setu jafnaðarmanna í ríkisstjórn. Forskot bandalags mið- og hægri- flokkanna fjögurra var þó mismik- ið. Fredrik Reinfeldt, forsætisráð- herraefni hægrimanna, var bjart- sýnn á góð úrslit í gær en sagði þó of snemmt að fagna sigri. Könnun sem birt var í dag- blaðinu Svenska Dagbladet benti til þess að borgaraflokkarnir fengju 48,6% at- kvæða en jafnað- armenn og stuðningsflokkar þeirra 45,9%. Bilið er enn meira samkvæmt könnun Synovate Temo sem birt var í Dagens Nyheter, þar sem hægriflokkarnir fá 49,7% og vinstriflokkarnir 45,3%. Könnun Dagens Industri bendir hins vegar til að forskot hægriflokkanna sé minna, eða 2,1%. Fjórða könnunin, sem birtist á vefsíðu Skop-stofn- unarinnar, gaf hins vegar til kynna að borgaraflokkarnir fengju 48,3% en andstæðingar þeirra 47,6%. Óvíst er hvort þetta forskot muni reynast nóg til að fella stjórnina en jafnaðarmenn hafa oft komið betur út í kosningum en könnunum. Sprengjuhótun í blálokin Lokasprettur kosninganna þykir hafa verið æsispennandi og við- burðaríkur. Þannig kom upp önnur sprengjuhótun kosningabaráttunn- ar í gær, þegar grunsamlegri flösku hafði verið komið fyrir utan við kosningaskrifstofu jafnaðar- manna í borginni Västerhaninge. Skipta Svíar um stjórn? Fredrik Reinfeldt XL LEISURE Group, dótturfélag Avion Group, hefur náð samkomulagi um kaup á 100% hlutafjár í frönsku ferðaskrifstofunni Vacances Heliades. Heli- ades sérhæfir sig í ferðum til Grikklands og Kýpur, en með kaupunum verður XL Leisure Group fimmti stærsti ferðaþjónustuaðili Frakklands. Flugrekstrar- aðili XL Leisure í Frakklandi er Star Airlines, annað dótturfélag Avion, en Star er annað stærsta leiguflugfélag Frakklands. Magnús Stephensen, aðstoðarforstjóri XL Leisure Group, segir ætlunina að byggja upp svipað viðskiptamódel í Frakklandi og það sem reynst hefur vel í Bretlandi og séu kaupin á Heliades liður í þeirri uppbyggingu. „Kaup- in á Heliades auka enn frekar vaxtartækifæri í Frakklandi og eru góð viðbót við Star Air- lines,“ segir Magnús. „Mikil samlegðaráhrif felast í kaupunum fyrir XL Leisure þar sem breska ferðaskrifstofan Kosmar, sem er í eigu samstæðunnar, er að flytja farþega inn á sömu áfangastaði að hluta til. Þessi staðreynd býður upp á verulega hagræðingu í rekstri.“ Sjö milljónir farþega Samkvæmt upplýsingum frá Avion Group nam velta Heliades á síðasta ári 80 milljónum evra (um 7,2 milljörðum króna) og var hagn- aður félagsins fyrir skatta 3,3 milljónir evra. Verðið sem XL Leisure greiðir fyrir ferða- skrifstofuna er 7,7 milljónir evra (tæpar 700 milljónir króna), en kaupin eru fjármögnuð með eigin fé og lánsfé. Heliades mun koma inn í samstæðu Avion Group hinn 1. janúar næst- komandi. Farþegar Heliades á síðasta ári voru 120.000 talsins og eftir kaupin kemur Star Airlines til með að flytja ríflega milljón far- þega til meira en þrjátíu áfangastaða. Heliades flýgur frá þrettán stöðum í Frakk- landi til átta áfangastaða í Grikklandi og víð- ar. Heliades selur ferðir til áfangastaða á borð við Kýpur, Krít, Rhódos, Aþenu og grísku eyj- arnar. Einnig hefur félagið nýverið boðið upp á ferðir til Túnis, Marokkó og Egyptalands. Eftir kaupin á Heliades er fjöldi farþega sem Avion flytur á ári kominn upp í sjö milljónir. Avion Group kaupir franska ferðaskrifstofu Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Magnús Stephensen VATÍKANIÐ sendi frá sér yfirlýs- ingu í gær, þar sem kom fram, að Benedikt XVI. páfi væri „einstak- lega leiður“ yfir því að hafa móðgað múslíma í ræðu sinni á þriðjudag. Ræðan hefur verið harðlega gagn- rýnd og er óvíst hvort afsökunar- beiðnin muni slá á reiði múslíma, eftir að páfi tengdi saman ofbeldi og íslam. „Hans heilagleiki er einstaklega leiður yfir því að tilteknir hlutar landi, að páfi hefði „hugarfar aftur úr myrkri miðalda“. Þá spáði hann því, að páfi yrði flokkaður með Hit- ler og Mussolini í sögubókum. Ætti ekki að vanmeta áhrifin Abdullah Ahmad Badawi, for- sætisráðherra Malasíu, var öllu hófsamari í orðalagi og sagði páfa ekki mega vanmeta þá reiði sem orð hans hefðu vakið. Sheikh Mo- hammed, einn helsti kennimaður súnnímúslíma, tók í sama streng og sagði ummæli páfa ekki hafa hjálp- að við að koma á samræðu ólíkra trúarbragða og menningarheima. ræðu hans skyldu hafa móðgað múslíma og að þeir skyldu hafa verið túlkaðir á þann veg sem er í engu samræmi við ætlun hans,“ sagði í yfirlýsingunni. „Páfinn er fortakslaust hlynntur samræðum á milli trúarbragða og menningar- heima.“ Á sama tíma fór ólgan í múslíma- heiminum vaxandi, þegar hver leið- toginn á fætur öðrum blandaði sér í umræðuna um ummæli páfa. Víða hefur verið efnt til mótmæla en málið þykir hafa sameinað músl- íma óháð stjórnmálaskoðunum. Ummælin kunna einnig að hafa Páfi biðst afsökunar Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is AÐEINS voru um 200 varnarliðsmenn eftir í varnarstöðinni í Keflavík þegar Morgunblað- braut, og það sem eitt sinn var sjötta stærsta byggðarlag á Íslandi mun leggjast í eyði. | 27 ið bar þar að nýlega. Um mánaðamótin verð- ur síðasti varnarliðsmaðurinn horfinn á Morgunblaðið/Sverrir Á leiðinni af landi brott »Dagblaðið Al-Riyadhsegir páfa hafa „talað á máli krossferðanna“. »Klerkurinn SheikhAbubukar Hassan Mal- in í Sómalíu hafur hvatt trúbræður sína til að myrða páfa. HNOTSKURN sett fyrirhugaða heimsókn páfa til Tyrklands í nóvember í uppnám. Þannig sagði Salih Kapusuz, vara- leiðtogi stjórnarflokksins þar í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.