Morgunblaðið - 17.09.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.09.2006, Blaðsíða 22
fólk 22 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Rannveig er farsæl kona ístarfi og einkalífi ogdregur ekki dul á aðhennar mesti styrkur í lífinu sé góð og traust fjölskylda. Málefni fjölskyldunnar, barna og foreldra, hafa löngum verið meg- inbaráttumál hennar og réttlæt- iskenndin og samkenndin eru tveir gildustu þættirnir sem pólitísk hugsjón hennar er ofin úr. Rannveig er ættuð af Horn- ströndum í báðar ættir. Foreldrar hennar voru Sigurjóna Jónasdóttir frá Sléttu í Sléttuhreppi og faðir hennar Guðmundur Kr.Guðmunds- son frá Stakkadal í Aðalvík. „Pabbi var skipstjóri á Ísafirði, einn af stofnendum Samvinnufélagsins og þar með einn af upphafsmönnum Samvinnubátanna sem var dálítið sérstakt fyrirbrigði í íslenskri at- vinnusögu, segir hún þegar við hefjum samtalið. Hún er ein níu systkina, næstyngst, og af þeim komust átta til fullorðinsára. Síðar í samtali okkar vísar hún til upp- vaxtaráranna þegar hún veltir fyrir sér spurningunni hvernig henni hafi tekist að sigla heilu fleyi í gegnum öldugang jafnaðarmanna- hreyfingarinnar frá því á fyrri hluta tíunda áratugarins. „Það er góður undirbúningur fyrir stjórn- málamann að alast upp í stórum systkinahópi. Við áttum það til að kýta og rífast en að kvöldi skriðum við undir sæng sæl í þeirri trú að allir væru ein elskandi fjölskylda.“ Eiginmaður Rannveigar er Sverrir Jónsson, tæknifræðingur frá Ísafirði, og þau héldu upp á 48 ára trúlofunarafmæli sitt sl. fimmtudag, 14. september. „Við vorum skólasystkini og pabbi hans var kennarinn minn, Jón H. Guð- mundsson, sem síðar varð skóla- stjóri Digranesskóla í Kópavogi og var mikilhæfur skólamaður. Sverr- ir er elstur níu systkina þannig að samanlagt erum við í býsna stórri fjölskyldu.“ Börn þeirra Rann- veigar og Sverris eru þrjú, Sig- urjóna, Eyjólfur Orri og Jón Einar. Barnabörnin eru sex, „fjórir flottir strákar og tvær yndislegar stelpur. Svo við erum sannarlega mjög rík.“ Gott að alast upp á Ísafirði Rannveig lítur til baka til æsku- áranna með gleði og þakklæti. „Það var mjög gott að alast upp á Ísa- firði á fimmta og sjötta áratug síð- ustu aldar. Ísafjörður var mikill menningarbær þótt maður gerði sér enga sérstaka grein fyrir því sem barn. Við krakkarnir tókum snemma þátt í atvinnulífinu, ég fór fyrst að vinna tólf ára gömul við að pilla rækjur og síðar vann ég við fiskvinnslu, bæði á sumrin og einn- ig með skólanum þegar landburður var af fiski og allar vinnufærar hendur þurfti til að bjarga verð- mætunum. Í dag erum við í raun- inni að herma eftir þessum að- stæðum með því að sveitarfélögin bjóða unglingum á skólaaldri að vinna á sumrin til að kynna þau fyr- ir atvinnulífinu. Andrúmsloftið á Ísafirði á þessum árum var svo já- kvætt og kröftugt; kennararnir voru góðir og krakkarnir ólust upp í sjálfstrausti og trú á sjálfa sig og það er örugglega engin tilviljun að frá Ísafirði kom á ákveðnu tímabili margt af helsta athafnafólki þjóð- arinnar. Ísafjörður var á sínum tíma annar af tveimur „rauðu“ bæj- um landsins, þar sem jafnaðarmenn höfðu verið í meirihluta um allangt skeið. Hinn bærinn var Hafn- arfjörður. Þetta hafði örugglega mikil og góð áhrif,“ segir Rannveig brosandi og rifjar upp að spennan fyrir bæjarstjórnarkosningar hafi verið slík að krakkarnir í skólanum héldu kosningar fyrir sig. „Þá var ég á þeim sama stað í pólitíkinni og ég hef verið síðan. Á heimili mínu var ekki mikil flokkspólitísk um- ræða en jafnaðarmennskan var samt sem áður sú hugsun sem ríkti á æskuheimili mínu. Aftur á móti var tengdafjölskyldan mín mjög pólitísk og Jón tengdafaðir minn var bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins og ég hrærðist strax inn í pólitíska umræðu á því heimili. Við vorum miklir vinir og eftir að ég fór út í pólitíkina þá varð hann minn dygg- asti stuðningsmaður og það var mér geysilega mikils virði að eiga hann að í baráttunni.“ Fólk eins og ég Hvort sem það var góðum kenn- urum að þakka eða frábærum námshæfileikum þá lauk Rannveig landsprófi frá Gagnfræðaskóla Ísa- fjarðar vorið 1956 með ágæt- iseinkunn og hæstu einkunn í stærðfræði yfir landið. Hefði því mátt telja nær sjálfsagt að hún héldi áfram menntaveginn með þetta glæsilega veganesti. En skólagangan varð ekki lengri, strax sama vor réði hún sig til Landsím- ans á Ísafirði og gerðist tal- símakona og síðar við ritsímann. Hvers vegna? „Fyrir foreldra mína var það metnaðarmál að öll börnin þeirra lykju gagnfræðanámi. Fyrir for- eldra á þessum tíma var það jafn mikilsvert og er í dag að börnin manns ljúki stúdentsprófi eða til- svarandi áfanga. En þetta hefði örugglega ekki komið í veg fyrir lengra nám hjá mér ef ekki hefðu orðið miklar breytingar á högum fjölskyldu minnar árið áður. Móðir mín dó árið áður eftir stutt veikindi og fljótlega eftir það ákvað faðir minn að flytja suður í einsemd sinni eftir konumissinn. Ég bjó fyrst í skjóli þeirra eldri systkina minna sem enn voru heima og síðar hjá eldri systur minni sem flutti inn á heimilið. Mér bauðst að fara suður og fara í menntaskóla og búa hjá systur minni en ég hugsa að ég hafi bara ekki haft kjark til þess. Mitt skjól var að vera um kyrrt á Ísa- firði og byrja að vinna. Ég vann síð- an á Landsímanum þar til við Sverrir fluttum suður og ári síðar til Noregs þar sem hann fór í fram- haldsnám í tæknifræði. Þá var Sig- urjóna orðin fjögurra ára gömul.“ Og enn var talsvert langt í að stjórnmálamaðurinn Rannveig Guðmundsdóttir kæmi í ljós. „Á þessum árum datt mér aldrei í hug að ég ætti eftir að verða stjórn- málamaður. Ef ég hefði hitt spá- mann sem hefði spáð því að ég ætti eftir að verða langtímum saman forystumaður í bæjarmálum Kópa- vogs og síðar alþingismaður og ráð- herra þá hefði ég litið í kringum mig og svarað: Þú ert að tala um einhverja aðra konu. Fólk eins og ég fer ekki þessa leið í lífinu.“ Af hverju ekki fólk eins og þú? „Ég sá fyrir mér að þeir sem náðu frama í stjórnmálum var fólk sem annaðhvort var mjög athafna- samt í verkalýðshreyfingunni eða hafði gengið menntaveginn og byrj- að að hrærast í pólitískum straum- um í gegnum það sem undirbúning fyrir atvinnumennsku í stjórn- málum. En ekki sjómannsstelpa frá Ísafirði.“ Finnst þér þú koma úr annarri átt en þeir sem þú hefur átt sam- skipti við í stjórnmálabaráttunni? „Já, mjög oft hefur mér fundist það. Þegar ég var nýbyrjuð í bæj- arstjórn Kópavogs kom ég eitt sinn heim og sagði við manninn minn: Ég vildi að ég væri lögfræðingur, hagfræðingur og verkfræðingur með! Fljótlega áttaði ég mig á því að til þess eru sérfræðingarnir að þeir leggi fyrir mann valkostina og síðan byggjast stjórnmálin á því að velja rétta kostinn. Ég hef þess vegna aldrei burðast með nein vandamál útaf því að hafa ekki há- skólapróf heldur farið út á vinnu- markaðinn 15 ára gömul. Reynslan af því að byrja snemma að vinna fyrir mér og fara síðan til Noregs og takast á við allt sem fylgir því að dvelja erlendis hefur reynst mér ágætt veganesti í stjórnmálin.“ Noregsár Rannveigar og Sverris urðu samtals sex. „Fyrst þrjú ár frá 1963–66 meðan Sverrir var að læra og aftur 1969–1971. Árin tvö á milli bjuggum við í Reykjavík og það var rótlaus tími fyrir okkur. Við þurftum að flytja fjórum sinn- um og í hvert skipti þurfti Sig- urjóna að skipta um skóla. Ég dáð- ist að því þá og geri enn í dag Góð fjölskylda er grunnur Rannveig Guðmunds- dóttir, alþingismaður og fyrrverandi félagsmála- ráðherra, lýsti því yfir í vikunni að hún hygðist draga sig í hlé frá stjórn- málum að loknu þessu kjörtímabili. Í samtali við Hávar Sigurjónsson stiklar Rannveig á stóru um æsku sína og uppvöxt og tildrög þess að hún hóf þátttöku í íslenskum stjórnmálum, sem spann- ar tæpa þrjá áratugi, 10 ár í bæjarstjórn Kópa- vogs og 17 ára samfellda setu á Alþingi, þar af 8 ár sem þingflokksformaður og einnig forseti Norð- urlandaráðs. »Ég hef þess vegna aldrei burðast með nein vandamál út af því að hafa ekki háskólapróf heldur farið út á vinnumarkaðinn 15 ára gömul.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.