Morgunblaðið - 17.09.2006, Side 45

Morgunblaðið - 17.09.2006, Side 45
Nú hefur bæjarstjórn Akureyrar sótt um og fengið að halda Lands- mót UMFÍ 2009. Til þess þarf að byggja nýjan völl. Er þá ekki besti kosturinn að endurbyggja Akureyr- arvöll? Veðurfarslega er Akureyrarvöllur besti kosturinn. Að ætla sér að byggja nýjan völl ofarlega í bænum er ekki góður kostur, eða þekkja menn ekki veðurfarið hér í bæ? Aðstaða til að iðka frjálsar íþróttir er engin á svæðum félaganna og vafasamt að hægt sé að koma henni fyrir þar. Þriðjudaginn 12. september sl. horfði ég á fund bæjarstjórnar Ak- ureyrar í sjónvarpinu. Mikið lánleysi þótti mér yfir þeirri samkomu. Á þessum fundi var samþykkt nýtt aðalskipulag til ársins 2018. Í hinu nýja skipulagi er gert ráð fyrir því að Íþróttavöllur Akureyrar verði lagður niður og svæðið tekið undir útivistarsvæði, verslun og þjónustu ásamt íbúðabyggð. Spyrja má: Er íþróttavöllur ekki útivist- arsvæði? Skapar hann ekki líf í bæn- um? Verslun: Hvað er stórmarkaður og hvað hefur hann að gera í miðjum bæ og hvar tíðkast það? Í mínum huga er stórmarkaður gríðarlega stórt hús fullt af vörum og stórt bílastæði fyrir framan. Þar kemur fólk í bílum og leggur þeim í bílastæðin. Gengur inn í stórmark- aðinn og kemur svo út með troðfulla plastpoka, hendir þeim í skottið og ekur burtu án þess að horfa til hægri eða vinstri. Skapar þetta líf í miðbæ- inn sem alltaf er verið að tala um? Þetta kalla ég bílaumferð og ekk- ert annað. Bæjarfulltrúarnir voru ánægðir með nýja aðalskipulagið (99%) það væri harla gott og metnaðarfullt. Tveir bæjarfulltrúar (konur) vildu halda Akureyrarvelli í skipulaginu og fluttu mál sitt mjög skil- merkilega. Önnur þeirra flutti til- lögu þar um.Tillagan var felld með 7 atkv. gegn 2. Völlurinn skal burt. Bæjarfulltrúar tala mikið um hvað það landsvæði sem Akureyrarvöllur er á sé verðmætt. En hvað finnst þeim um æsku bæjarins? Er hún ekki það dýrmæt- asta sem við eigum? Í henni er fram- tíðin fólgin. Á hún ekki skilið það besta sem við getum látið henni í té? Er það mat bæjarfulltrúa að þetta landsvæði, sem er í raun hjarta bæj- arins, sé of dýrmætt fyrir hana? Einn bæjarfulltrúinn talaði um að menn ættu að vera stórhuga og ekki hanga alltaf í sömu holunni. Já, sannarlega var stórhugurinn mikill. Í Guðs friði. MAGNÚS BJÖRNSSON, Hólsgerði 8, Akureyri. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2006 45 Stórar eignarlóðir fyrir frístundabyggð í landi Kílhrauns í Skeiða- og GnúpverjahreppiSuðurlandsbraut 20 • Bæjarhraun 22Run lfur Gunnlaugsson vi skiptafr., l gg. fast.- og skipasali Krist n PØtursd ttir, l gg. fasteignasali Öll aðstaða í boði Á svæðinu í heild hafa verið skipulagðar 88 frístundalóðir, frá 5.500 fm til 11.600 fm að stærð, og eru þær allar eignarlóðir. Vegir verða komnir að lóðamörkum og landið allt afgirt. Á svæðinu verður aðgangur að rafmagni, köldu vatni og há- hraða internettengingu. Frábær staðsetning Kílhraun er einungis um 65 km frá Reykjavík (Rauðavatni). Frístundabyggðin er skammt frá Selfossi og í næsta nágrenni við margar af helstu náttúruperlum lands- ins s.s. Þingvelli, Laugarvatn, Kerið, Gullfoss og Geysi. Fjölbreytt afþreying er í boði í nágrenni svæðisins og má þar nefna golfvelli, sundlaugar, veiðisvæði, en alla þjónustu má nálgast á Selfossi sem er aðeins í 13 mín. fjarlægð frá svæðinu. Leiðin Ekið er í gegnum Selfoss í um 10 mín. og þá beygt til vinstri inn á þjóðveg nr. 30. Þaðan er ekið í 3 mínútur og þá blasir auglýsingaskilti við á vinstri hönd. Einstök náttúrufegurð Landið er allt gróið og er það um 50 metra yfir sjávarmáli. Landið er nokkuð flat- lent með hrauni og er því frábært útsýni. Í miðju landsins er skógrækt Árnesinga- félagsins, með minnisvarða um Áshildarmýrarsamþykkt frá 1496. Lítill lækur lið- ast í gegnum landið og kemur hann úr uppsprettum undan hrauninu. Á honum er hlaðin steinbrú frá 19. öld. Landið hentar einstaklega vel til trjáræktar og er rétt að benda á 13 ára gamla skógrækt á landamörkunum í landi Merkurlautar, með 3 metra háum trjám. Verð og greiðslukjör Lögð var sérstök áhersla á að bjóða lóðirnar til sölu á góðu verði og er það með því allra besta sem gerist á þessu svæði. Möguleiki er á 50% láni frá seljanda til 10 ára með 6,5% vöxtum. Verð frá 1,2-3,2 millj. Nú er tækifærið! Í september bjóðum við nokkrar valdar lóðir á lækkuðu verði. Sölumenn hjá Fasteignasölunni Höfða veita allar nánari upplýsingar um lóðirnar í síma 565 8000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á hofdi@hofdi.is Ægifagur fjallahringur blasir við af landinu sem er allt gróið og kjörið til áframhaldandi ræktunar Byggja má allt að 200 fm hús á hverri lóð auk 25 fm geymslu eða gestahúss SÖLUSÝNING sunnudag kl. 12-17 Suðurlandsbraut 20 - Sími 533 6050 - Fax 533 6055 - Bæjarhrauni 22 - Sími 565 8000 - Fax 565 8013 Til sölu glæsileg 4ra herb. lúxusíbúð við Strandveg í Garðabæ með einstöku útsýni yfir Arnarnesvoginn og fjöruna þar sem kvöldsólar nýtur. Íbúðin er á jarðhæð en hefur óhindrað útsýni úr öllum gluggum yfir Arnarnesvoginn, Álftanes, Reykjavík, Kópavog og Garðabæ. Íbúðin er alls 125,7 fm með geymslu í kjallara. Vandaðar innréttingar. Granítborðplata og vandaðar flísar í eldhúsi og borðstofu. Fallegt eikarplankaparket á gólfum. Bílastæði í bíla- geymslu og þvottahús í íbúð. Edda tekur á móti áhugasömum, væntanlegum kaupendum milli kl. 14-15 í dag. Verð 41,9 millj. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Strandvegur 15 - Garðabæ - Opið hús Breiðholtsbúar sem vilja stækka við sig: Vel skipulagt og gott raðhús m. innb. bílskúr, samtals 211 fm. Stutt í alla þjónustu. Hverfið er rótgróið og miðsvæðis í höfuðborginni. Hiti í plani og stéttum fyrir framan húsið. Skjólsæll og fallegur suðurgarður. Eign sem býður upp á mikla möguleika. Verð 37,9 millj. Guðmundur og Ósk bjóða ykkur velkomin! Réttarbakki 9 Opið hús í dag milli kl. 16 og 18 Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Mjög björt og skemmtileg 85,7 fm 3ja herb. endaíbúð með glæsilegu útsýni til 3 átta. Stórar svalir til vesturs. Sérgeymsla (3 fm) er ekki inni í fermetratölu eignar. Stofa er björt, rúmgóð með stórum svölum og stórkostlegu útsýni. Parket og flísar á gólfum. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og baðkari. Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Stutt í alla þjónustu. Aðgangur að bílageymslu. Laus við kaupsamning. Brynja og Sveinn taka vel á móti gestum í dag milli kl. 15 og 17. Bjalla merkt Brynju og Sveini. Teikningar á staðnum. Opið hús milli kl. 15 og 17 í dag Fannborg 9 - Glæsilegt útsýni ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.