Morgunblaðið - 30.09.2006, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2006 49
GESTIR þátt-
arins Orð
skulu standa í
dag eru Hall-
grímur Thor-
steinsson fjöl-
miðlamaður
og Jakob Fal-
ur Garðarsson
stjórnmála-
fræðingur.
Þeir ásamt
liðstjórunum
Hlín Agnarsdóttur og Davíð Þór
Jónssyni fást við þennan fyrri-
part:
Leggur Ómar allt sitt starf
undir og kallast hetja.
Fyrripartur síðustu viku var
byrjun á limru um Magna Ás-
geirsson:
Það er mikill söngvari hann Magni
sem mjög þenur raddbönd af lagni.
Hlín Agnarsdóttir botnaði tvisv-
ar:
Fólk vakir um nætur,
vonar og grætur.
Það vill ekki að söngvarinn þagni.
Hann rokkar og rólar,
galar og gólar
og vonar að heimsbyggðin fagni.
Vigdís Jakobsdóttir átti líka tvo
botna, annan á ensku:
Með sveitta lófa Supernóva
sagði að hann kæmi ekki að gagni.
He played his guitar
and came back a star.
Er furða þótt smáþjóðin fagni?
Davíð Þór Jónsson leysti þetta
svona:
Þó hreppti loks hnossið
sá hási með glossið.
Því trúi ég Frónbúar fagni.
Pétur Blöndal hugsaði til föður
söngvarans:
Hann datt út úr keppni
fyrir kynduga heppni.
Held ég fjárbóndinn eystra því fagni.
Hlustendur áttu sinn hlut, t.d.
Eysteinn Pétursson:
Á Hawaiitíma
menn hringja í síma
svo heimsmeistaraefnið ei þagni.
Helga Stefánsdóttir notaði
enskar skammstafanir eftir efn-
inu:
Rokkaði’ OK
og reigði’ í LA
engin furða þótt landinn því fagni.
Bergljót Gunnarsdóttir fann
tvær útgáfur að botni:
Hann fékk heila þjóð
til að hitna sem glóð.
Þar Magni kom heldur að gagni.
Hann kom heilli þjóð
til að hitna sem glóð.
Ei kemur þó Alcoa að gagni.
Pétur Stefánsson sendi þennan:
Núna trúi ég því
að hann taki sér frí
og komi frúnni að frjósömu gagni.
Hildur Friðriksdóttir sendi m.a.
þennan:
Hann varð ekkert leiður
þó veittist ei heiður
að verða fjórða hjól undir vagni
Sigurður Einarsson braut upp
limruformið:
Hann leikur og syngur
við hvurn sinn fingur,
þessi bráðsnjalli Borgfirðingur.
Valdimar Lárusson botnaði og
bætti við stöku:
Hann söng af miklum sóma
er síðan flestir róma.
Og engin furða þótt þjóðin fagni.
Ekki er fyrir skildi skarð
„skríllinn“ stóð í blóma.
Magni leynt og ljóst því varð
landi og þjóð til sóma!
Útvarp | Orð skulu standa á Rás 2
Ómar kallast hetja
Hlustendur geta sent sína
botna í netfangið ord@ruv.is
eða Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Umsjónarmað-
urinn Karl Th.
Birgisson.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
RÚSSAR eiga von á góðu því Óp-
erukórinn í Reykjavík er að leggja í
tónleikaför til St. Pétursborgar. Í
tilefni af förinni mun Óperukórinn
halda kynningartónleika fyrir ís-
lenska áheyrendur undir yfirskrift-
inni „Austurleiðir vil ég halda“ í
Langholtskirkju kl. 17 í dag.
„Okkur er boðið til Rússlands til
að syngja Óðinn til gleðinnar eftir
Beethoven á árlegum fjáröfl-
unartónleikum St. Petersburg State
Hermitage Orchestra til styrktar
líknarstofnunum í St. Pétursborg.
Þessir tónleikar eru aðaltilefni ferð-
arinnar en síðan, úr því við erum að
fara alla þessa leið, ætlum við að
halda okkar eigin tónleika líka og
uppistaðan í þeim er kynning á ís-
lensku efni,“ segir Ásrún Davíðs-
dóttir, aðstoðarskólastjóri Söng-
skólans í Reykjavík og meðlimur í
Óperukórnum. „Styrktartónleik-
arnir verða haldnir 7. október en
það er fæðingardagur Pútíns Rúss-
landsforseta. Kórinn flýgur út 4.
október og syngur svo á sínum eigin
tónleikum hinn 5. október.“
Safna í ferðasjóð
Ásrún segir það mikinn heiður
fyrir Óperukórinn að vera boðið að
koma fram á styrktartónleikunum.
„Við erum aðalatriðið á tónleik-
unum, enda tekur Óðurinn til gleð-
innar rúman klukkutíma í flutningi
en ásamt okkur koma fram nokkrir
einleikarar víðs vegar að úr heim-
inum. Það eru þýskir og enskir að-
ilar sem kosta þetta allt saman að
öðru leyti en því að allir tónlist-
armennirnir sem koma þarna fram
gefa sína vinnu. Við borgum okkar
far út og erum að reyna að safna
fyrir því, tónleikarnir hérna heima í
dag eru bæði til að lofa fólki að
heyra þetta áður en við förum út og
til að safna í ferðasjóð.“
Á tónleikunum í Langholtskirkju
flytur kórinn sömu lög og munu
hljóma á þeirra eigin tónleikum í
Rússlandi. „Íslenskir áheyrendur
mega eiga von á að heyra þjóðlaga-
perlur í útsetningum Jóns Ásgeirs-
sonar ásamt kórum úr óperum
hans, Þrymskviðu og Galdra Lofti,
nokkur af Íslands fegurstu kórlög-
um og svo atriði úr þekktum óp-
erum og óperettum. Þetta verða
fjölbreyttir og skemmtilegir tón-
leikar,“ segir Ásrún. Einsöngvarar
á tónleikunum hér heima og í Rúss-
landi eru Nanna María Cortes, Auð-
ur Guðjohnsen, Garðar Thór Cortes
og Jón Leifsson, stjórnandi er
Garðar Cortes.
Tónlist | Óperukórinn í Reykjavík með fjölbreytta dagskrá í Langholtskirkju
Þjóðlaga-
perlur og
falleg kórlög
Morgunblaðið/ÞÖK
Tónleikaför Óperukórinn í Reykjavík heldur tónleika í Langholtskirkju áður en hann heldur til Rússlands.
Trúbadúrinn trúaði Yusuf Islam,sem frægastur var þegar hann
kallaði sig Cat Stevens, hefur bæst í
hóp þeirra sem gagnrýnt hafa um-
mæli Benedikts páfa á dögunum.
Yusuf, sem sjálfur gekk í kaþ-
ólskan skóla sem drengur og var þar
kennt að páfi væri óskeikull, sagði í
viðtali við BBC að ummæli páfa
væru ill og ófögur ummæli miðalda-
texta um hina íslömsku trú.
Yusuf hefur hins vegar tekið af-
sakanir Benedikts gildar og segist
virða páfa og stöðu hans.
Fólk folk@mbl.is
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Einbýlishús óskast nú þegar
Æskileg staðsetning:
Garðabær, Seltjarnarnes eða Arnarnes.
Rétt eign má kosta allt að 150 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Æskileg stærð 350-400 fm
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir virðulegu einbýlishúsi í nágrenni
miðborgarinnar, t.d. í Þingholtunum. Rýming samkomulag.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í NÁGRENNI MIÐBORGAR-
INNAR ÓSKAST, T.D. Í ÞINGHOLTUNUM
– STAÐGREIÐSLA –